Ekið inn Dýrafjörðinn á fögru sumarkvöldi. Stutt í að sólin hverfi bak við fjöllin. Seinna um kvöldið lögðum við bílnum á Holtsbryggju í Önundarfirði. Þar voru steiktar fiskibollur bornar fram með hvítlaukssoðnum kartöflum, rjómalagaðri tómatsósu og fersku salati. Vindurinn vaggaði okkur í svefn og við vöknuðum árla næsta morgun við kríusöng…
Á ég að trúa því að þú hafir ekki stoppað í firðinum fagra?
Þetta er fallegasti staður á landinu. Það segir mamma mín að minnsta kosti!
Ég hugsaði svo sannarlega til ykkar mæðgna í Dýrafirðinum fagra. Þingeyri er fallegur staður, dúkkuþorp með huggulegri innisundlaug (ef starfstúlkurnar væru ekki svona mikið í tölvunni væri kannski ekki eins mikið af hárum í sturtunum). Svo er þar sætt kaffihús.
Af hverju hef ég aldrei komið til Þingeyrar?
Það er gott að eiga eitthvað skemmtilegt eftir að skoða á okkar fagra landi.