Árlegir snyrtibudduleikar voru haldnir í Vaglaskógi um síðustu helgi í flottasta sumarbústað norðan heiða. Mættar voru 14 hressar konur, frænkur og vinkonur og var mikið um dýrðir. Glæsilegur morgunverður, snyrting og dekur, fræðsla og menning, spurningakeppni, ræðuhöld, heitur pottur, gönguferð og kleinur frá Dillu, veislumatur, dans og það mikilvægasta: yndisleg samvera.
Fleiri myndir eru hér.
Þetta var frábært !
Dásamlegt hreint, buddur hafa nú ekki átt jafn fjörugt föstudagskvöld og núna! Ég var örugglega í pottinum í 7 klukkutíma!
Planið á föstudeginum var alltaf að fá sér einn kaldan og fara snemma að sofa. En þetta var miklu betra!