Bókmenntagagnrýni 1999-2016

Ég hef skrifað bókmenntagagnrýni / ritdóma árum saman, fyrst á DV 1999 og síðan á MBL og í um fjögur ár í Kvennablaðið þar til það lagði upp laupana 2016. Það er krefjandi að skrifa gagnrýni en stórskemmtilegt  og ég legg mig fram um að vera fagleg og óháð í mínum ritdómum. Ég þakka þeim sem hafa lesið skrif mín yfir fyrir mig í gegnum árin, gagnrýnt þau, hvatt mig áfram og stungið að mér góðum hugmyndum, sérstaklega þeim Huldu Egilsdóttur og Steinunni Haraldsdóttur. Hér á þessum vef eru ritdómar mínir frá upphafi  komnir á einn stað og aðgengilegir þeim sem vilja, njótið vel. Mundu að geta heimildar (höfundur, ártal, titill ritdóms, slóð og dagsetning) ef meiningin er að nota úr dómunum í ritgerðir o.þ.h.

Færðu inn athugasemd