Gæfusöm er ég

f.v. Halla, amma og Friða. Guðbjörgu vantar á myndina

f.v. Halla, amma og Fríða. Myndin er tekin í Holti í sumar. Guðbjörg fjarri góðu gamni

Ég er gæfusöm í lífinu að mörgu leyti. Ég á t.d. spræka ömmu á tíræðisaldri og þrjár ömmusystur. Þær eru af þeirri kynslóð kvenna sem man tímana tvenna, átti mörg börn, fæddist í sveit en flutti svo á malbikið, fikraði sig út á vinnumarkaðinn þegar börnin voru uppkomin og hafði gömul gildi að leiðarljósi. Nægjusemi, nýtni og vinnugleði einkennir þessa kynslóð sem sækir messur og menningarviðburði, eldar þjóðlegan mat og heldur utan um fólkið sitt. Er eitthvað hægt að segja á þessum nótum um mína kynslóð?

2 athugasemdir

Færðu inn athugasemd