Brúður

lítið eitt innar í glaumnum

blaktir

ein flauelshvít svefnbæn:

óli krossbrá kemur og hellir blýi í

augun á mér hann er flinkur og stundvís

hann á litla regnhlíf og starir á mig

nakta – ég held það sé varasamt að

játast honum en mig langar

lifa hættulega

(Sigurbjörg Þrastardóttir 2010, bls. 40)

3 athugasemdir

  1. sæl kelling, nú þarftu að fara að gefa frá þér gáfulegar vísbendingar varðandi góða og uppbyggilega jólalesningu fyrir okkur almúgann

  2. Það er rétt! ég las stórgóða bók um daginn sem heitir Kaffihús tregans, frábæra ljóðabók sem heitir Vetrarbraut, mér fannst gaman að Geislaþráðum eftir Sigríði Pétursdóttur (var í MA ef ég man rétt) og Hreinsun er ansi mögnuð. Meira síðar!

Færðu inn athugasemd