Síðasta ástarjátningin

Í borg Davíðs

Ritdómur frá árinu 2016

Þrátt fyrir að allt sé í hers höndum hér á landi halda  bækur áfram að koma út, seljast og eru lesnar. Ungskáld láta sitt ekki eftir liggja þrátt fyrir rýran kost úr launasjóði rithöfunda. Dagur Hjartarson, handhafi bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2012 og ljóðstafs Jóns úr Vör 2016, spreytir sig nú á skáldsögugerð við góðan orðstír.

Styttan af Davíð

Síðasta ástarjátningin snýst bæði um Davíð Oddsson, tákn einhvers konar alltumlykjandi og þrúgandi afls, tíma eða hugarfars, og ástina. Sögulegir atburðir efnahagshruns á Íslandi eru í bakgrunni og veðrið er undirspil stórra atburða í lífi venjulegs ungs fólks. Aðalsöguhetjan, sem ekki lætur nafns síns getið, á vininn Trausta sem er með róttækar þjóðflagsskoðaur þjó með rs ssögunni,koma enn era afsaggafulla leirstyttuna af Davélagsskoðanir og algjörlega með Davíð Oddsson, fyrrum borgarstjóra og forsætisráðherra, á heilanum. Eftir því sem sögunni vindur fram virðist hann ætla að renna saman við styttuna af Davíð sem hann er að móta í kjallaraíbúð sinni. Styttan sú er þó sennilega hvorki jafn áhrifamikil né fögur eins og samnefnd stytta í Flórens en þó örlagavaldur í lífi allra persónanna.

Vesturbærinn 2007

Ást sögumanns til unnustunnar Katrínar er gamalkunnug krísa. Hún er að læra lögfræði og framtíðin brosir við henni en hann er reikult ljóðskáld og við það að koksa á einhverju námi. Þetta eru heldur klisjuleg kynhlutverk þar sem konan brosir fallega og þráir einfalt líf meðan karlinn leitar einhvers flóknara og æðra. Hann reynir síðan að berjast gegn því að sogast inn í styttuþráhyggju Trausta, verður afbrýðissamur út í susarann Baldur, félaga Kristínar í Félagi ungra náttúruverndarsinna (FUN), o.s.frv. Þetta er kunnuglegur söguþráður (minnir m.a. á  nýlega bók, Hendingskast) og sögusviðið sömuleiðis; Vesturbærinn og Þingholtin 2007.

Borgarstarfsmenn og barstelpur

Sagan snýst um það að vera ungur og ástfanginn, hafa hugsjónir og langa til að skapa og skrifa, um það að elska og missa og hvernig eftirvæntingin breytist í fjarveru. En um leið er hún analýsa á samfélagi og skáldskap. Þetta er hugljúf saga en ekki öll þar sem hún er séð. Í henni eru ansi djúpar pælingar sem gaman er að, s.s. um umhverfismál og aktívisma. Áhugaverðasta persónan er Trausti, hann er mikill hugsjónamaður og þroskast vel í sínu rugli.

Ýmis tilbrigði og stef ganga í gegnum söguna, mikið er lagt í myndmálið sem skapar einkar áhugaverða spennu milli þess einlæga og uppskrúfaða. Stíllinn er aðalsmerki sögunnar, það er orðið nokkuð langt síðan maður hefur séð svo mikla viðleitni til nýsköpunar í málinu, varla síðan Hallgrímur skrifaði Hellu 1990.

„Einhvers staðar innra með mér eru eru þrír gulklæddir menn að störfum, þetta eru borgarstarfsmenn bernsku minnar. Í þoku bera þeir fyrir sig vélsagir og skóflur og helluleggja huga minn með þúsund mislaga steinum“ (126).

„Í þessum skoðunarferðum sáum við oft dyraverði, tröllkarlana með steinhjörtun, og barstelpur á heimleið. Hvernig þetta fólk gekk út af börunum, eins og suðuramerískir námuverkamenn sem hafa ekki séð sólina í mánuð. Eins og að horfa á myrkrið stimpla sig út í morguninn…“ (189).

Gamlar formúlur

Sögumaður leggur mikið upp úr því að atast í lesandanum, t.d. með að rífa sig frá textanum og minna á að hann er aðeins hugarsmíð í þreytulegu formi þar sem hjakkað er í gömlum formúlum: „Eins og í öllum vondum skáldsögum tók veðrið upp á því að spegla innra ástand persónanna“ (183). Miðað við hvað Davíð Oddsson tekur mikið pláss í sögunni, hefði kannski mátt búast við úttekt, jafnvel gagnrýni eða dásömun á valdatíma hans, eða kannski nýjum hrunkenningum en því er ekki að heilsa, hvort sem manni líkar það betur eða verr.

Margt er afar fallegt í þessari bók, t.d. lýsingar á flugdreka, ömmu á elliheimili og hinn súrrealíski ísbjarnarblús í Hljómskálagarðinum. Sitthvað er líka skáldlegt og opið til túlkunar, t.d. leirstyttan og fallegu póstkortin frá Benidorm. Framan af er eins og Síðasta ástarjátningin sé venjuleg Reykjavíkursaga en hún vinnur á og reynir á form og stíl sem lofar góðu.