Bankaleikrit

„Hei strákar, muniði lánið þarna sem við tókum til að kaupa hlutabréfin í bankanum? Til að plata fólkið og græða smá sjálfir, og búa til flottar tölur í ársskýrsluna, ha muniði? Verðum við ekki að græja það eitthvað? Annars lendum við í að borga helvítis bréfin. Þetta eru margir milljarðar maður, ætlarðu að borga af því til dauðadags eða? Verðum við ekki að afskrifa þetta einhvern veginn og setja gróðann á góðan stað? Haldiði ekki að einhver fatti það? Nei, það eru allir sofandi og treysta okkur alveg hundrað prósent, nú, ef það fattast, þá verður það bara smá nöldur i svona hálfan mánuð, blásið upp í fjölmiðlum og svona einsog vanalega en svo er allt gleymt, maður. Já, ókei, þetta eru nú ekki geimvísindi, græjum þetta, núna!“

2 athugasemdir

Skildu eftir svar við Linda Hætta við svar