Brynjar bóndi hefur verið að reyna að leiða mig fyrstu skrefin í töfraheimi Photoshop. Óendanlegir möguleikar sem auðvelt er að missa sig í, sjáið bara hvað eplið gljáir! En svona fallega fyrirsætu þarf ekkert að fótósjoppa.

Nei svo sannarlega er ekkert hægt að bæta hana Ingu.
En gætirðu fótósjoppað mig?
Það verður nú að segjast að í fyrsta lagi ert þú svo falleg að það væri að bera í bakkafullan læk. Í öðru lagi er það svo að þótt kennarinn sé mjög, mjög áhugasamur er nemandinn tregur og framfarir fremur litlar enn sem komið er svo það er langt í land.
Langsætust
Einhvern tímann hlýtur þó nemendinn að útskrifast þótt tregur sé og þá panta ég fótósjopp!
Inga er nátturulega algjört fótómódel….. mjög góð mynd