Bláir skór og hamingja

Sólsetur í Afríku

Sólsetur í Afríku

„Mma Ramotswe hallaði sér aftur í stólnum og lokaði augunum. Hún vissi að til voru staðir í heiminum sem voru alltaf grænir og gróskumiklir, þar sem vatn hafði enga merkingu því að það var alltaf til staðar, þar sem gripirnir voru aldrei horaðir og sljóir; hún vissi það. En hana langaði ekki til að búa á slíkum stað því hann væri ekki Botsvana, að minnsta kosti ekki hennar Botsvana. Uppi í norðri, nálægt Maun, við óseyrina þar sem áin rann öfugt, aftur inn í landið, var gróskan meiri. Hún hafði komið þangað margoft og tærir lækirnir og víðáttur Mopani-skóganna og hátt grasið hafði fyllt hana undrun. Hún hafði verið glöð fyrir hönd fólksins þarna því það hafði vatn allt í kringum sig, en henni hafði ekki fundist þetta vera sinn staður, heldur var hann í suðrinu, í brakandi þurru suðrinu“ (208).

Enn ein hugljúf saga um Mma Ramotswe á Kvenspæjarastofu nr. 1 eftir Skotann Alexander McCall Smith, sú sjöunda í röðinni. Maður er eiginlega kominn til Afríku og finnur lyktina af kraumandi graskersbitum í potti, rauðrunnatei og kleinuhringjum og iljarnar brenna í sjóðheitum sandi. Skemmtilegar persónur og góður andi svífur yfir, viska og yfirvegun; þetta er mannbætandi lesning. Og nú er verið að gera bíómynd um Kvenspæjarastofuna, það verður gaman að sjá. Ekkert popp og kók í hléinu, heldur  mopani-ormar og vatn.

2 athugasemdir

  1. Alltaf gaman að lesa um hana Ramotswe. Verst hvað mann langar þá alltaf til Afríku. Komum til Afríku!!
    Lestu svo um siðfræðinginn í Edinborg. Langar að vita hvað þér finnst.
    Annars þakka ég bara fyrir frábæra súpu og dásamlega kjaftastund (sem reyndar var alltof fljót að líða)

Skildu eftir svar við Jónína Ingibjörg Hætta við svar