Óttar minn á afmæli í dag, sama dag og Quentin Tarantino og Mariah Carey. Það var fyrir 22 árum sem ég var send í snarhasti með sjúkraflugvél frá Þórshöfn á Langanesi til Akureyrar þar sem drengurinn fæddist, kl. 17.02, 47 cm og 2730 gr eða um 10 merkur. Yndislegur drengur og gleðigjafinn hennar mömmu sinnar. Eldklár húmoristi sem fer sínar eigin leiðir, hann er hrútur.
Til hamingju með hann!
Til hamingju með drenginn.
Til lukku með drenginn 🙂 bráðum kemur hann heim til mömmu 🙂