Það þarf alltaf tvo til að fífla (ísl. orðabók: gabba, glepja). Einn auðtrúa og annan svikulan. En látum ekki fjölmiðla og stjórnmálamenn hér á landi afsaka yfirstandandi arðrán og efnahagshrun með því að almenningur hafi hegðað sér eins og fífl.
Ýmislegt
Sektin og skömmin
Nú eru margir Íslendingar reiðir og bitrir. Sem vonlegt er, hér á landi er allt í tómu tjóni í efnahagsmálum. Öllu er snúið á haus, hinir ráðdeildarsömu tapa sparnaði og lífeyri en fjárglæframennirnir stinga af með þýfið og þurfa hvorki að skila einni einustu krónu eða bæta skaðann á nokkurn hátt. Þeir sem höfðu lágu launin og voru trúir yfir litlu borga brúsann næstu 150 árin og hafa enga von um kjarabætur á næstunni meðan peningasukkarar á ofurlaunum og makráðir stjórnmálamenn með feitan eftirlaunadíl setja upp sakleysissvip, halda því hiklaust fram að þeir séu ekki sökudólgar og vilja engar nornaveiðar. Og við látum þetta yfir okkur ganga með gamla viðhorfinu „þetta reddast, við komumst í gegnum þetta“.
Hér er þrusugott blogg sem allir ættu að lesa: Lára Hanna, skrifar um mótmæli og íslenska þjóðarsál.
Ég er hætt að hlusta á þreyttar klisjur og undanbrögð stjórnmálamanna í fjölmiðlum en er að átta mig á því að ef enginn af þessum glæponum er látinn taka ábyrgð eða sæta refsingu fyrir prettina og hrun íslenska fjármálamarkaðarins er ég meðsek í augum heimsins, stimpluð svikari eins og gróðapungarnir. Íslenskir námsmenn og ferðamenn erlendis hafa fengið að finna fyrir því á síðustu vikum, þeir mæta fjandskap og fyrirlitningu. Ímynd lands og þjóðar hefur beðið óbætanlegt tjón, sennilega meiri en við gerum okkur almennilega grein fyrir núna. Ég er ekki bara neydd til að borga reikninginn með erfiði mínu og striti það sem eftir er ævinnar heldur sit ég líka uppi með skömmina.
Vísindaleg könnun
Jákvæðni
Ég vona að jákvæðar breytingar verði hér á landi og í heiminum öllum í kjölfar kreppunnar. Að efnis- og neysluhyggjan fjari út og inn komi önnur gildi, manneskjuleg og fjölskylduvæn. Að mennta-, heilbrigðis- og velferðarkerfi blómstri og áhersla verði lögð á að skila góðum og heilbrigðum þegnum út í samfélagið. Að öllu fólki líði vel og komi vel saman burtséð frá stétt og stöðu, trú eða þjóðerni. Að við áttum okkur á því hvað heilsan er dýrmæt og fjölskyldu- og vinabönd mikilvæg. Að gömul gildi verði aftur höfð í heiðri. Að samlíðan með öllu sem lífsanda dregur breiðist út. Að samvinna komi í stað samkeppni, nýjar hugmyndir fæðist, menn horfi inn á við, taki til í sálarkirnunum og finni hjarta sitt slá í takt við alheiminn. Þá er þetta kreppufargan ekki til einskis.
Afmæli
Bölsýni
Er það nú að koma á daginn sem ég hef lengi óttast, að seilst verði í eignir lífeyrissjóðanna? Er það ekki rétt skilið hjá mér að eignir lífeyrissjóðanna eru sparifé almennings, það sem dregið hefur verið af launum fólks til að leggja fyrir til elliáranna? Eyrir fyrir lífið? Styðja við sjúka og aldraða? Búa heldri borgurum áhyggjulaust ævikvöld? Að vísu hef ég heyrt að einhverjir séu að gambla ábyrgðarlaust með þessa peninga bæði hér og í útlöndum og hafi jafnvel grætt eitthvað smá. En gróðabissnessinn er hverfull og það á ekki að taka áhættufé af lifibrauðinu.
Einhvern veginn hef ég lengi haft á tilfinningunni að þegar kemur að mér að fá lífeyrinn minn eftir áratugalanga þjónustu og farsælt ævistarf, þá verði peningarnir búnir.
Sannleikurinn?
Sumir segja að nú muni bágborið efnahagslífið rétta úr kútnum fyrst ríkið keypti í Glitni og að nú munum við skattborgararnir græða. Aðrir segja að nú fyrst fari að halla undan fæti og að ríkið hafi tapað milljörðum. Hvort er satt? Kannski hvorugt? Mér kemur það náttúrulega ekkert við.
Bekka snillingur
Bekka frænka veit hvað hún syngur. Sjá bloggsíðuna hennar sem er þrungin visku, þekkingu og reynslu og auk þess á gullaldarmáli.
Fávís kona
Nú er ég bara fávís kona, opinber starfsmaður og almennur launþegi. Ég vinn á skrifstofutíma alla daga sem ekki eru rauðir á dagatalinu, ég greiði mín launatengdu gjöld og legg mitt af mörkum til samfélagsins. Ég er svo gamaldags að ég legg áherslu á að standa í skilum, þrái að greiða niður skuldir mínar og langar að ávaxta mitt pund til að geta ornað mér við það í ellinni (mér sýnist eldri borgarar ekkert ofhaldnir). Svo heyri ég í útvarpinu að ríkið hafi skyndilega hlaupið til og keypt aftur mjólkurkúna sem sem var göbbuð út úr henni á spottprís í nafni einkavæðingarinnar og síðan blóðmjólkuð og útpískuð, á uppsprengdu verði. Mér skildist þegar var verið að gera kjarasamninga við almenning í landinu að engir peningar væru til. Ég bara sé ekki hvernig þessi „efnahagsaðgerð“ á að geta bætt hag minn og almennings í landinu (lækkað matarverðið, bensínið, heita vatnið…). Munu launin mín nú halda verðgildi sínu og hætta lánin að þenjast út? Það hélt ég að væri brýnast um þessar mundir. Hvað gerist ef banki fer á hausinn? Hvað gerist ef heimili eru í kröggum og fara á hausinn ? Kemur einhver og bjargar þeim? Eins og sjá má hef ég ekkert sérstaklega góða innsýn í efnahagsmál.



