Heima er best

Það var nú næs að vera á Akureyri, þeim fagra bæ. Verst hvað tíminn flaug hratt, ég hitti t.d. Nínu í hálftíma, Ester í korter og Dreng í 5 mín. svo ég nefni mína dyggustu blogg-áhangendur. Skrapp aðeins til ömmu sem er svo falleg og góð og eldhress á tíræðisaldri en það er jákvæð og gleðirík skapgerð hennar sem heldur henni ungri og frískri. Ætla að taka hana mér til fyrirmyndar í lífinu og kífinu.

Ferðalagið gekk vel þrátt fyrir að ég sé bæði nærsýn og náttblind og ökuskírteinið mitt löngu útrunnið… Og gott var að koma heim, náði Dagvaktinni alveg mátulega.

3 athugasemdir

  1. Hansa komnar i bílskúr og nú verður spennandi að fylgjast með því hvenær þær fara upp á vegg. Það verður tilkynnt um það hér á þessari síðu og birtar myndir til sannindamerkis.

Skildu eftir svar við steinunninga Hætta við svar