frá Magneu E
500 gr hveiti (má skella má spelti saman við)
1 1/2 dl mjólk ca.
200 gr mjúkt smjörlíki
200 gr sykur (hrásykur með)
1/2 tsk kanill
1 tsk lyftiduft (vínsteins)
1/2 tsk hjartasalt
vanilludropar
1 egg
rabarbarasulta
Smjörlíki mulið saman við þurrefnin. Eggi og vanilludropum bætt við. Deigið er síðan hnoðað (í hrærivél) uns það er slétt og sprungulaust. Má bíða í ísskáp yfir nótt ef vill ef maður er orðinn þreyttur eftir þetta. Deigið flatt út og stungið út með glasi, ca. 6-8 cm í þvermál. Sultuskeið á hverja köku (helst rabarbara), brotnar saman um miðju og lokað með gaffl (eða fingrunum). Bakað við ca.120-150°C þar til þeir verða ljósgullnir.
Mislukkuðust soldið hjá mér, þeir voru of stórir, deigið of þykkt, sultan lak út. Þessar kökur voru betri í minningunni (hjá mömmu).