Ég verð að taka undir með Dreng frænda mínum með vonbrigði vegna niðurstaðna í prófkjörum stjórnmálaflokkanna. Þetta er allt sama, gamla liðið, fúlir uppvakningar og múmíur með sömu lummurnar: taka á vanda heimilanna, koma hjólum atvinnulífsins í gang, krefjandi verkefni, mörg tækifæri og bla bla bla. Þetta fyrirkomulag, flokkar, prófkjör, listar, kosningarbarátta og kjaftæði, er algjörlega úrelt.
Ég sem óflokksbundin kona skammast mín sérstaklega fyrir Suðurkjördæmi og mest fyrir sjálfstæðisflokkinn sem „KÝS“ Árna Johnsen……siðlausan fyrirgreiðslupólitíkus með ákaflega takmarkað vit á hagkerfi landsins….vantaði virkilega svoleiðis fólk á þing ???
AMEN !