Ný tæki

Í dag var keyptur nýr ísskápur á heimilið. Ég vildi vera ísskápahönnuður, þessi þarfaþing hafa bara ekkert breyst gegnum árin í takt við neysluvenjur nútímafólks. T.d. ættu ávallt að vera amk. tvær eða þrjár grænmetis-/ ávaxtaskúffur sem hægt væri auðveldlega að taka út svo maður þurfi ekki að bogra inní ísskápnum við að velja hráefni. Svo á ekki að vera hilla í hurðinni þar sem skúffan er, bara renna skúffunni hindrunarlaust út úr skápnum. Svo er alveg nóg að hafa lítið frystihólf (fyrir ber og klaka í boostið) neðst í skápnum, ekki efst, og óþarfi að spandera í  3 frystiskúffur, amk. fyrir þá sem eiga kistu. Blástur er bara óþarfi og bruðl, ég lærði það í dag en flöskuhilla getur komið í góðar þarfir. Ég skellti mér líka á eina brauðrist þar sem mín gamla blés eldglæringum um daginn. Sú nýja er 1100w sem er víst algjört möst, hún glóðar tvær brauðsneiðar á nýju brautarmeti og er líka geðveikt retró. En þessi tæki voru svo rándýr að nú hef ég hvorki efni á brauði í ristina né mjólkursopa úr ísskápnum – fyrir utan það að skápurinn passar ekki í innréttinguna svo ég verð að rífa helminginn af henni niður…

2 athugasemdir

  1. Gleymdi að geta þess að skápurinn sér náttúrulega um það sjálfur að „afþýða og afhríma“, það er ekki spurning.

Skildu eftir svar við steinunninga Hætta við svar