Dobermanntíkin Arwen kom í heimsókn til okkar um helgina en við höfum verið í sambandi við frábæran hundaþjálfara sem er með hana á sínum snærum. Tíkin Arwen er afskaplega falleg, stælt og vel byggð og hvers manns hugljúfi. Síðustu daga snerist allt líf okkar um hana og hennar þarfir, það þurfti að viðra hana, leika við hana, kynna hana fyrir gestum og gangandi, klappa henni og kela við hana. Hún er sérstaklega hrifin af Brynjari og var hann bókstaflega hundeltur alla helgina. Við erum algjörlega heilluð af þessari álfadís.

Arwen Tumadóttir
Og hvað?
Ættleiðing?
Ég sá leynigestinn 🙂 Tignarleg tík á stærð við folald….óskaplega þæg og lúf, enginn asi og læti hjá henni, greindarleg og glæsileg.
Ættleiðing er næst á dagskrá ef allt gengur að óskum.
Ja hérna hér, er hún núna sem sagt í „aðlögun“?
Hún var í aðlögun hjá okkur um helgina en er núna hjá þjálfaranum. Þetta er allt tekið í litlum skrefum. Vonandi fær hún að koma aftur sem fyrst.