Þá er Carlos gamli ekki síðri plokkari en Chris. Hann lyftir þessi lagi í æðra veldi, án hans væri það bara gutl. Hann fær samt ekki að vera í útvarpsþætti að þessu sinni. Á sumarvegi er alltaf kl. 1300 alla virka daga í júli, útsending á mínum þætti: 17. júlí, ég er búin að hlusta á þáttinn og veit ekkert hvaða nefmælta stamandi kona er að fimbulfamba þetta um gamlar ferðasögur, frekar þvoglumælt…
Það er alltaf asnalegt að hlusta upptöku af sjálfum sér, ég er hins vegar sannfærð um að þetta er góður þáttur hjá þér og meira en það ! Ég verð við viðtækið 17. júlí kl 13.00 🙂