Það eru ýmsir snúningar með Arwen aðrir en að fara með hana út að ganga. Hér er t.d. verið að klippa á henni langar og svartar klærnar. Síðan fer lafðin í bað (Inga sér um það) og er nudduð hátt og lágt með fína vellyktandi sjampóinu sínu, þurrkuð með mjúku handklæði og svo fær hún nammi á eftir. Öllu þessu tekur hún með jafnaðargeði.