Þá er risinn virkisveggurinn mikli, vantar ekkert nema skotraufarnar. Vinnumenn voru hraktir og kaldir í rigningunni í dag en létu það ekkert á sig fá. Nú er bara eftir að klæða hinum megin á vegginn með pallaefni og setja svo harðvið í litla bilið við stofuna. Það verður rafmagn í veggnum og næst á dagskrá er að velja smart útiljós og skipuleggja reisugillið.
Ferlega flott!