Inga (17)

Inga hélt upp á 17 ára afmælið sitt á föstudagskveldið. Afi orti auðvitað til hennar vísu:
Iðkar grín en vill ei vín
varast hrín og gólin
Ingilín er afar fín
eins og skíni sólin.

Einnig skaut hann vísu á nafna sinn sem varð 25 ára á dögunum:
Óttar glaður er í kvöld
ekki missir trúna.
Helminginn af hálfri öld
hefur lifað núna.

3 athugasemdir

Skildu eftir svar við Þura Óttars Hætta við svar