Dagur 6

Fjórir múrarar mættir til að fræsa rendur í gólfið fyrir hitalagnir og loka gatinu þar sem ruslalúgan var. Ég hef bent á að hlífa þurfi parketinu þar sem það mætir flísunum og í stiganum og að skafa þurfi skít og skán af veggnum við lúguna en fengið svörin „Það þarf ekki!“ Var frekar pirruð þangað til að mér var bent á að ef ég vildi gera þetta gæti ég gert það sjálf. Sem er góður punktur.

92017862_545419606383141_4253723386481475584_n

Þessi ofn verður fjarlægður enda aldrei almennilega heitur hvort sem er.

Hér sést gólfhitinn með floti út á og verkstjórinn ásamt litaprufunum tveimur. Múrararnir mættu um hálf ellefu og klukkan fimm var allt búið. Röskir menn.

1 athugasemd

  1. Hahaha….kannast við þetta, og að fá múrara inn getur kostað mikil þrif…myndi setja pappa á parketið .-) og stigann..

Skildu eftir svar við Gunna Hætta við svar