Það var eins konar kvikmyndahátíð hjá okkur á föstudagskvöldið, fórum fyrst í bíó og leigðum okkur svo 2xdvd. Við fórum á Tropic Thunder, stórfurðulega karlrembu-víetnam-grínmynd með þyrlum, blóði og sprengingum. Mér leist ekkert á byrjunina en svo rættist úr þessu og ég skemmti mér stórvel. Í myndinni er einvalalið leikara, Ben Stiller leikstýrir og leikur aðalhlutverkið en auk hans fer Robert Downey jr á kostum og var kominn tími á að hann risi úr öskustó. Tom Cruise sýnir á sér nýja hlið í myndinni og gaman var að sjá Nick gamla Nolte á hvíta tjaldinu, hann var nú aldeilis sjarmur í Gæfa og gjörvileiki í ríkissjónvarpinu forðum daga (1976) . Næsta mynd, Das Leben der Anderes (2006), var meira fyrir minn fágaða smekk. Falleg og dramatísk mynd eftir þýska leikstjórann Florian von Donnersmarck (f. 1973). Myndin gerist í Austur-Þýskalandi nokkrum árum áður en múrinn féll. Persónufrelsi er ekkert, íbúðir fólks eru hleraðar, ritskoðun ríkir á sviði bókmennta og lista og einkabréf fólks eru opnuð við gufu og lesin í leit að einhverju misjöfnu um kommúnistastjórnina . Síðasta myndin á þessari heimagerðu kvikmyndahátíð var 10.000 BC sem var alveg ótrúlega hallærisleg. Svo er víst alþjóðleg kvikmyndahátíð í bænum en þá þarf maður víst að fara út fyrir túngarðinn…
Höfundur: Steinunn Inga Óttarsdóttir
Haustverkin
Tivoli, tivoli, tivoli-li-li
Myndin af guði
Sir Ken Robinson heldur magnaðan ræðustúf um það hvernig skólakerfið drepur niður sköpunargáfu nemenda:
Skrattans móðurinn
Ég var í Kóngsins Kaupmannahöfn, dagana 10.-14. september. Mér fer að mörgu leyti líkt og Tómasi Sæmundssyni forðum en hann skrifar Jónasi svo:
Kaupmannahöfn, 30. sept. 1827
„…Hér er að mörgu gaman, ef maður hefur nóga peninga til að nota sér það, en ekki get ég fundið smekk í því sem fólk hefir sér hér til lystisemda. Mest fær á mig hljóðfærasöngurinn, og að heyra hann undir eikigreinunum, sem yfirskyggja á allar síður, gerir mann næstum frá sér numinn fyrst í stað. Alt getur maður haft hér, sem upphugsað verður, með peningum, og séu þeir (til), takmarkar ekkert manns frjálsræði nema flugurnar og flærnar, sem hvorki gefa um kopar né seðla. Fólkið hérna er fjarskalega glaðlynt og þægilegt og strax til reiðu með alls kyns þénustu, en alt verður að kosta peninga. Verst af öllu kann ég við skrattans móðinn og get ég aldrei liðið sjálfan mig, þegar ég lít utan á mig…“
Bréf Tómasar Sæmundssonar, 1907:19
Úr gömlu sendibréfi
Svo ritar Geir biskup góði:
„Lambastöðum, 1. apríl 1803
Veturinn byrjaði hér strax með Mikkaelsmessu með norðanveðri, frosti og snjó, svo heiðar urðu ófærar, og mörgum, sem á ferð voru, lá við stórslysum. Margir áttu þá enn hey úti, sem allt varð að litlum eða engum notum…
Svo var stór grasbrestur á Ströndum í sumar eð var, að tún urðu víða ekki ljáborin, og margir flúðu með gripi sína inn að Ísafjarðardjúpi og fengu þar leyfi að slá fyrir þeim, það sem aðrir ekki vildu nota, svo þessi sveit sýndist framar öðrum stödd í dauðans kverkum. Þar skal annars í Hælavík, skammt frá Horni, vera enn nú einu sinni strandað skip frá Skagaströnd, hlaðið með kjöt, tólg og ull. Menn meina menn komizt hafi lífs á land, en drukknað í forvaða einum, sem þaðan er yfir að fara til mannabyggða. Þingeyjar- og Norður-Múlasýsla eru og í mestu þrenging, í þeirri fyrri, einkum á Langanesi, Sléttu og allt að Reykjaheiði, skal fólk vera farið að ganga frá heimilum sínum og sumir að eta hordautt hrossakjöt, svo allir segja þar mannfelli óumflýjanlegan…“
(Íslensk sendibréf 1966:33. Geir biskup góði í vinarbréfum, 1790-1823)
Góðverk dagsins
Ég gekk 10 kílómetra í dag ásamt fjölda fólks (750 manns). Það var ganga til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini á vegum Göngum saman. Gengið var frá Árbæjarkirkju á messutíma sem leið lá um Elliðaárdalinn í sæmilegu veðri. Ég þrammaði með Heiðrúnu Kristjáns og vinkonu hennar og það var ekkert gefið eftir, gengið heldur rösklega, vorum klukkutíma og þrjú korter. Þetta var hressandi, svo hressandi að þegar heim kom svaf ég í klukkutíma eftir heitt baðið og sporðrenndi síðan 10 amerískum pönnukökum með sýrópi, einni fyrir hvern kílómetra.



