
Endalaus fegurð
Eftir hálfs mánaðar reisu á húsbílnum sný ég aftur í borgarysinn. Veðrið lék við okkur ferðalangana, það var barasta sól og blíða allan tímann. Hvítir sandar, klettar og fjöll, sögustaðir, stórkostlegt landslag, Ég tók myndina út um bílgluggann í Örlygshöfn, Arwen virðir fyrir sér endalausa fegurð Vestfjarða á einum sólskinsdeginum. Ferðasagan bíður betri tíma.
Frábært!
Velkomin heim öll.
vá öfunda ykkur ekkert smá að hafa staðið í þessum þrengslum í þessum blessaða bíl í TVÆR VIKUR .
neinei .. það er gott að þið eruð komin heim 😀