Góður dagur þegar búið er að fara í Sorpu með fulla kerru af drasli, viðra sængur, þvo þvott og hlaupa 11 km, elda léttan kvöldverð, hlusta á góða tónlist, lesa nýju bókina hennar Vigdísar Gríms og dreypa á eðalrauðvíni með (Pata Negra 2003). Svona er maður nú orðinn friðsæll og nægjusamur í lífinu.
Það er voða gaman að úðra svona í hreiðri sínu og grundvallaratriði að gera það með geði glöðu, þá verður maður friðsæll, nægjusamur og sáttur:-)