Mig dreymdi að ég ætti marga elskhuga og vildi gleðja þá alla. Þeir voru a.m.k. þrír og allir saman komnir á einum stað, í húsi sem var í byggingu, rykugt og ófrágengið. Einn þeirra er maður sem ég þekki og elskaði forðum sem við skulum kalla G. Hina hef ég ekki fyrr séð, einn þeirra var miklu yngri en ég og hét M. Mér fannst mikilvægt að þeir rækjust ekki hver á annan. En í miðjum innilegum faðmlögum við G fannst mér ég verða að segja honum að ég væri líka að hitta M. Þá kólnuðu faðmlögin. Síðan birtist M, mér fannst hann hafði grennst gríðarlega og fríkkað til muna og hann var afar hávaxinn. Ég gladdist við að sjá hann en hann dró mig inn í lítið herbergi og stillti mér upp við vegg.
Noh……