Ýmislegt
Ofvirkar kellingar
Flugstöð og fjárdráttur
Eru menn í alvöru að tala um að byggja nýja flugstöð í Reykjavík? Á forsíðu Fréttablaðsins í dag segir að hún muni kosta einn milljarð. Hann mætti nota í margt nytsamlegra. Í blaðinu segir að „aðstaða innanlandsflugsins sé óviðunandi“ og að stöðin verði létt og síðar megi auðveldlega fjarlægja hana. Til hvers þá að byggja hana fyrir alla þessa peninga? Og hvernig er aðstaðan óviðunandi, ætlar einhver að dunda sér þessari flugstöð meira en hann þarf? Er þetta ekki bara bruðl og óráðsía? Og annað af forsíðunni: „Fyrrverandi starfsmaður Kaupþings kærður fyrir hundruð milljóna fjárdrátt. Hafði fé af viðskiptavinum“. Hvernig er glæpur starfsmannsins öðruvísi en bankastjóranna sem engum kærum sæta? Voru þeir ekki líka að ræna viðskiptavinina?
Hárprúð afkvæmi
Þýðingar
Gamli gamli
Kjöthleifurinn risinn upp frá dauðum? Í ekkert smá flottu vídeói, alltaf rosadrama hjá honum. Það sem ég hef gaulað undir með honum og dansað við hann í gegnum árin.
Tónleikar

Faðmast í hléinu. Læknesstaðasvipurinn leynir sér ekki
Það voru frábærir tónleikar í Salnum í kvöld undir yfirskriftinni Tónsnillingar morgundagsins.
Sæunn Þorsteinsdóttir Skúlasonar Þorsteinssonar lék á selló og einhver hávaðaseggur á píanó (Kristinn Örn Kristinsson). Leiknar voru sónötur og stef eftir Debussy, Beethoven o.fl. Selló er eitthvað svo smart með djúpum og seiðandi tóni og Sæunn alveg frábær, svo falleg, geislandi og gefandi og töfraði fram englatóna úr hljóðfærinu einhver veginn áreynslulaust. Svo var mjög gaman að hitta stolta foreldrana, þau Þorstein og Ólöfu, sem maður sér í mesta lagi einu sinni á ári.
Rex og pex
Mikið finnst mér sjónvarpauglýsingarnar frá Intersport eitthvað hallærislegar. Ungmenni kklæðir sig í útivistarfatnað eða hleypur á bretti í myrkri og svo allt í einu kviknar ljós og þá er eins og viðkomandi hafi brotist inn í búðina og verið staðinn að verki. Hvað á það að þýða? Er þetta einhver vísun í að þjófnaður á Íslandi sé bara töff, líka þegar maður er gripinn glóðvolgur? Og hvernig er það, er þetta ekki Útsvars-stefið sem hljómar undir þessari púkalegu auglýsingu, er því stolið líka? Svo fannst mér eitthvað verulega ógeðfellt við fréttina á baksíðu Fréttablaðsins í fyrradag um Audda og Sveppa að sæða kýr og myndin með fréttinni afar ósmekkleg. En hallærislegast og ósmekklegast af öllu er að skuldsetja lítil börn fyrir hlutabréfaláni, hirða milljónaarð af bréfunum og láta svo allt ganga til baka (nema gróðann).
Michael, maðurinn í speglinum
Þegar ég heyrði fyrst í Michael Jackson, Off the Wall (1979), varð ég mikill aðdáandi tónlistar hans. Svo eltist ég en ekki hann svo leiðir skildu. Nú er ég komin með Man in the Mirror á heilann. Hér er vídeóklippa sem einhver jútjúbnörd hefur límt saman með svipmyndum frá tónleikum með tilheyrandi múgæsingu og yfirliðum unglingsstúlkna:
Smellið HÉR til að lesa grein um goðið úr Mogganum, frá 15. febrúar 2003.
Gestir

Góðir gestir komu í kvöld, Eiríkur Arnar og Siggi Magg, vinir og frændur Brynjars. Kjúklingur og rískubbar í matinn, kaffi á eftir og djúpar samræður. Það er svo gaman þegar gestir koma, látið sjá ykkur!



