Vonarstræti

„Sýslumennirnir eru margir furðu lostnir þegar dagur byltingarinnar rennur upp í september. Hvaða fólk er þetta? spyr einn þeirra skrifara sinn þegar hann sér kjósendur streyma á staðinn. Þar á meðal eru vinnumenn og alls kyns lýður, að vísu ekki konur og eignaleysingjar. En hvers kyns fáráðar sem sýslumaður hefur aldrei séð áður á kjörstað og geta ekki haft neitt vit á stjórnsýslu. Þetta eru nýju kjósendurnir, segir skrifarinn grafalvarlegur. …  Best gæti ég trúað að þetta væru auðnuleysingjar sendir af helvítinu honum Skúla Thoroddssen og agentum hans, tautar sýslumaður. Eftir allt það sem heimastjórnin hefur gert fyrir þá! Það er ekki útilokað, segir skrifarinn og bregður ekki svip. Síðan gengur sýslumaður á milli kjósenda og ygglir sig framan í þá. Honum er meinilla við þessa leynilegu kosningu. En allt kemur fyrir ekki. Þeir horfa á móti með sauðssvip. Að kjörfundi loknum er hann ekki lengur þingmaður sinnar eigin sýslu“ (122-123).

Vonarstræti eftir Ármann Jakobsson (sjá um bókina hér). Fín bók um sjálfstæðisbaráttuna, kvenfrelsið og tíðarandann í byrjun 20. aldar. Mektarhjónin Skúli og Theodóra Thoroddsen dregin skýrum dráttum, svo og ráðherrann og sjarmatröllið Hannes Hafstein, Þorvaldur Thoroddssen o.fl. sögufrægt fólk.  Búum við ekki öll í einhvers konar vonarstræti um þessar mundir?

Hálf gul sól

Börnin i Biafra

Fyrsta sjónvarpsstríðið?

„Hann skrifar um heiminn sem stóð þegjandi hjá meðan íbúar Bíafra dóu. Hann heldur því fram að  Bretar hafi átt sök á þessari þögn. Vopnin og ráðleggingarnar sem Bretar létu Nígeríumönnum í té gáfu öðrum þjóðum tóninn. Bandaríkin töldu Bíafra til „málefna Bretlands“. Kanadíski forsætisráðherrann spurði hæðnislega: „Hvar er Bíafra?“ Sovétríkin sendu tæknifræðinga og flugvélar til Nígeríu, himinglaðir yfir að fá tækifæri til að hafa áhrif í Afríku án þess að móðga Ameríku eða Bretland. Og Suður-Afríka og Ródesía með sínar hvítu ríkisstjórnir horfðu háðslega á enn eina sönnun þess að ríkisstjórn sem skipuð var svörtum var dæmd til að mistakast“ (312).

Hálf gul sól eftir Chimamanda Ngozi Adichie. Leiðir mann inn í frelsis- og sjálfstæðisbaráttu Biafra á sjöunda áratugnum sem var draumsýn um sameinaða Afríku sem fékk hörmulega útreið. Áhrifamikil saga um ást og stríð, frelsi og hugsjónir, hungur, ofbeldi og dauða. Var maður oft áminntur sem krakki um að hugsa til barnanna í Bíafra þegar maður fúlsaði við hafragrautnum sínum.

Ræsisrakkinn

Fór að sjá Slumdog Millionaire  í gærkvöldi. Skemmtileg mynd, margar flottar tökur  og  sjónarhorn, góður leikur, innsýn í framandi menningarheim. Gríðarlegt ríkidæmi og hrikaleg örbirgð, börn misnotuð, seld og þrælkuð. Svo endaði allt með indverskum bollywood-fíling í lokin. Gaman, gaman.

Þreytt tugga

Slæmt þykir mér þegar umræður fólks um yfirstandandi ríkisstjórnarmyndun snúast um persónulegt skítkast á stjórnmálamenn (geðheilsu þeirra, útlit, menntun o.fl.), logandi ótta við nýtt eða annað þjóðskipulag ásamt þeim fúla áróðri og eilífu fordómum um hægri og vinstri öflin þar sem hægri = stöðugleiki og einkaframtak en vinstri = sundrung og ríkisforsjá osfrv. sem hver étur upp eftir öðrum eins og páfagaukur. Er þetta ekki doldið þreytt tugga? Er þetta svona einfalt?

Bóndadagurinn

Til hamingju með bóndadaginn!

Til hamingju með bóndadaginn, elskan!

 Á bóndadegi er miður vetur. Veturinn er hálfnaður! Þorri er fjórði mánuður ársins í gamla norræna tímatalinu. Þorri hefst í þrettándu viku vetrar (18.-24. janúar) miðað við Gregoríanska tímatalið) og alltaf á föstudegi. Fyrsti dagur þorra er nefndur bóndadagur en þann dag var sú hefð að bóndinn hoppaði í kringum bæinn á nærhaldinu einu fata. Einnig var hefð að húsmóðirin færi út kvöldið áður og byði þorranum inn í bæ.  Síðasti dagur þorra er nefndur þorraþræll. Þorri er nefndur í heimildum frá miðöldum sem persónugervingur vetrarins og þar er einnig minnst á þorrablót,  en ekki er vitað um hvað þau snerust. Þorrablót eru svo tekin upp sem veislur „að fornum sið“ undir lok 19. aldar.

Þjóðráð

Ég er ekki pólitíkus en ég er hagsýn húsmóðir og mér dettur ýmislegt í hug sem gæti orðið okkur að liði til að komast út úr þessu ófremdarástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu. T.d.

1. Skipta inná á alþingi, þjóðnýta ýmsa hagfræðinga og spekinga  í 100 daga til að koma skikki á hlutina, t.d. menn eins og Pál Skúlason, Agnesi Bragadóttur, Guðmund Ólafsson o.fl. Fá óháða lögmenn, endurskoðendur og rannsóknaraðila til starfa ásamt óhlutdrægum upplýsingafulltrúa sem miðlaði jafnóðum til almennings fréttum að því sem er að gerast. Gera upp skuldir og eignir og fá á hreint hver staðan er, forgangsraða og semja við lánardrottna um hagstæð lán og greiðslukjör.

2. Rekja og frysta allar eignir auðmanna, bankastjórnarmanna og þeirra sem fært hafa stórar upphæðir milli reikninga, banka eða landa á undanförnum 6 mánuðum. Draga fram hverja einustu vísbendingum um spillingu, hagsmunatengsl og sukk og draga menn fyrir dóm sem hafa fórnað  almenningsheill fyrir eiginhagsmuni. Selja allar eignir erlendis sem hægt er að selja.

3. Fara vandlega  yfir öll „vafasöm“ hlutabréfakaup þar sem ekkert veð er annað en bréfin sjálf og augljóslega verið að hygla innherjum og einkavinum. Gera menn ábyrga fyrir svoleiðis skuldum, gera eignir þeirra upptækar og bjóða þeim greiðslukjör til eilífðar.

4. Frysta verðtrygginguna í nokkra mánuði meðan öldurnar lægir, lækka vextina svo fólki verði gert kleift og hafi lyst á að búa áfram í eigin húsnæði, það er ódýrara og betra til langframa en vanskil, landflótti og gjaldþrot. Frysta laun samhliða en ekki lækka þau, tryggja atvinnulausum mannsæmandi bætur, námskeið, hlutastörf, störf við hæfi í þágu samfélagsins sem skila arði til framtíðar. Tryggja velferð barna og unglinga með námskeiðum, niðurgreiðslum á skólamat, tannlækna- og sálfræðiþjónustu og skipulögðu æskulýðs- og tómstundastarfi, styrkja ríkisútvarpið, heilbrigðis- og skólakerfið.

5. Skera niður allt bruðl, setja framkvæmdir í salt í bili, ss. hönnun mislægra gatnamót og nýrrar miðbæjargötumyndar, stöðva byggingu verslunarmiðstöðva og hátæknisjúkrahúss,  hætta við virkjanir og olíuhreinsunarstöðvar en styrkja ferðaþjónustu og íslenskt hugvit og nýsköpun, sleppa júróvisjón og Feneyjatvíæringnum, leggja niður eða sameina sendiráð, fara yfir skattaupplýsingar og klófesta þá sem hafa himinháar tekjur en skila ekki tilskildum hluta þeirra til samfélagsins. Setja skorður við stofnun nýrrar kennitölu fyrir aðila í fyrirtækjarekstri sem hafa farið í þrot og skilið eftir sig sviðna jörð.Hætta öllu utanríkisvináttubrölti sem kostar stórfé en skilar sáralitlu eða engu en setja öfluga nefnd í að kanna ESB-málið á hlutlausan og faglegan hátt með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.

Sjálfsagt má gera fleira og betur en einhvers staðar verður að byrja.

Án titils

Í blöðunum okkar
sem við lesum daglega
er nú varla nema um tvennt að velja:
vitleysu eða óþverra.

Brátt rennur upp nýtt árþúsund.
– Að líkindum hið síðasta.
Óþverrinn hrannast upp hvarvetna.

Við því mun og þurfa að búast
að vitleysan ómenguð
nái þá fullum undirtökum
á blöðunum okkar

sem við hljótum að sönnu
halda áfram að lesa
ótrauð hvern dag
sem Guð kann
að hafa ætlað þeim aldur.

(Sigfús Daðason, Og hugleiða steina, 1997)

Pamuk og Málfríður

Ég gafst upp á Nafn mitt er rauður eftir Orhan Pamuk, tyrkneskan rithöfund og nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum 2006. Ekki það að bókin sé leiðinleg eða óskiljanleg, hún er bara hæg og langdregin og ég ekki í stuði fyrir hana þótt hún fjalli um morð og ástir og fornar bókmenntir. Sögumaður er einn í hverjum kafla og sömu atburðum lýst frá mismunandi sjónarhorni, skyldi Einar Kárason hafa fengið hugmyndina þarna að sögumönnum Ofsa? Í staðinn fór ég að lesa Auðnuleysingja og Tötrughypju eftir Málfríði Einarsdóttur sem samtals skrifaði sex bækur um ævina og sú fyrsta kom út þegar hún var komin á áttræðisaldur.  Kannski aldalöng innræting kvenlegrar hógværðar og hlédrægni spili þar inn í? Merkilegur rithöfundur, margir kannast við Samastað í tilverunni eftir hana. Au. og T. fjallar um tvær guðsvolaðar manneskjur, sárafátækar og utangarðs. Skemmtilega hæðnisleg frásögn, fornt mál, frábær stíll og frjálsleg saga.
„Hann vaknaði við það að hún bar honum volgt sull í bolla og glerharða tvíböku frá Laugavegi tuttugu, því hana hafði hún fundið í neðsta horni í einum af sínum tuttugu bréfpokum, aldrei áræddi hún að biðja um plastpoka í búðinni. Þessu kom hún ofan í manninn hálfsofandi með draum í reifum inni í brjóstinu. „Áttu ekki meira?“ sagði maginn, svo feginn sem hann varð. „Það er víst ekki, nema þú viljir hana Tötrughypju,“ svaraði hann af bölvun sinni því honum var orðið illa við maga sinn svo oft sem hann hafði haldið vöku fyrir honum galtómur…“

Sérkennileg saga

Sérkennileg saga

Dubbeldusch

Stuð i sumarbústaðnum

Stuð í sumarbústaðnum

 

 

 

 

 

 

 

 

Við stormuðum í Hafnarfjarðarleikhúsið á föstudagskvöldið að sjá Dubbeldusch, íslenskt leikrit um týpíska Íslendinga að grilla og njóta lífsins í sumarbústaðnum sem verið er að gera upp. Einfalt plott, skemmtilegt og fyndið, farsi og pælingar í bland, beittara grín og meiri sársauki hefðu þó dýpkað stykkið. Harpa Arnardóttir fór á kostum í skemmtilegu hlutverki (aðeins ofleikur í restina), enda alveg frábær leikari. Ég gleymi ekki hvað hún var góð í Dauðasyndunum sem ég sá Borgarleikhúsinu í fyrra, snilldarleikrit og spuni í bland (gestasýning hjá LA á þessu leikári). Í Dubbeldusch fara ráðsett hjón í taugarnar hvort á öðru í sumarbústaðnum, hann skrifar söluvænar sjálfshjálparbækur þótt hann geti ekki hjálpað neinum, allra síst sjálfum sér, og gengur með skáldsögu í maganum, hún sötrar te og borðar speltbrauð, pælir í slúðri og smámunum. Bæði eiga sér leyndarmál, vonir og þrár sem þau deila ekki hvort með öðru. Þegar einkasonurinn kynnir þau fyrir tilvonandi tengdadóttur fara hjólin að snúast og örlög að ráðast. En hápunkturinn var þó þegar gemsinn hjá Soffíu byrjaði að hringja oní tösku. Ekki sleppa svona góðri kvöldskemmtun, lifi Hafnarfjarðaleikhúsið og Vesturport!