Sumardagur í Þórsmörk

Hvilik náttúrufegurð!

Mynd til að orna sér við á köldum vetrardegi

Í sumar kom ég í Þórsmörk í fyrsta sinn á ævinni (já, hvað með það?  Margir Sunnlendingar hafa aldrei komið í Ásbyrgi). Það er algjör paradís á jörð, allavega meðan sólin skín. Um nóttina voru hins vegar einhverjir  íslenskir fulltrúar ungu kynslóðarinnar sem tóku að sér að sjá um að leika danslög til klukkan fimm að morgni, s.s. með gettóblaster og risahátalara , allt í botni bæði aðfararnótt laugar- og sunnudags. Og ruslið sem þetta lið skildi eftir sig þegar það loksins skreið upp í jeppann hans pabba síns seinnipartinn á sunnudag til að  halda heim á leið, það var algerlega til skammar. Ég hvet alla unga sem aldna ferðamenn að ganga ávallt vel um landið okkar og sýna öðru fólki tillitsemi í allri umgengni.

Sólskinsdrengurinn

Ég fór í bíó í gær að sjá Sólskinsdrenginn, frábæra heimildarmynd Friðriks Þórs og Óttars Vignissonar… Myndin er stórskemmtileg, hjartnæm og persónuleg, stórskemmtilegir karakterar, furðulegir prófessorar, einhverfur húmor, tilfinningaskalinn allur undir. Dr. Soma er pínulítil indversk kona sem eignaðist einhverfan son og hefur á undraverðan og furðu einfaldan hátt hjálpað börnum að komast út úr einangrun einhverfunnar. Húm hefur þróað svokallaða hraðhvatameðferð og Keli litli, sólskinsdrengurinn hennar mömmu sinnar, fær loksins rétta meðhöndlun og kraftaverkin gerast. Algjört must-see!

Litla stúlkan og sígarettan

Marlboro?„Though ridiculous, with a narrator too misanthropic to be pitied, The Little Girl and the Cigarette is nevertheless a fascinating, albeit frustrating, fable of the terrifying power of public opinion“ segir á bookslut.com um Litlu stúlkuna og sígarettuna sem mamma gaf mér í jólagjöf (sennileg minnug þess að ég byrjaði alltof ung að reykja). Stórskemmtileg saga þar sem skrifstofublók lendir í hremmingum og almenningsálitið dæmir hann til dauða. Raunveruleikaþættir, fjölmiðlasirkus, kynferðisleg áreitni, reykingabann, dauðarefsingar, kvenréttindi, réttindi barna, allt er þetta sýnt í ljósi fáránleikans. Þýðing Friðriks Rafnssonar er örugglega trés bien en alltof mikið af prentvillum í bókinni (Skrudda gefur út).

Böðvarsvaka

Arnar sem Þorleifur Kortsson

Ég fór með föður mínum á Böðvarsvöku í íslensku óperunni í gær. Þar var margt um manninn enda Böðvar Guðmundsson ástsælt skáld og rithöfundur. Sungin voru m.a. lög við texta Böðvars og lesin gullfalleg ljóð eftir hann (Arnar Jónsson og Sólveig dóttir hans gerðu það listavel), einnig var leikið brot úr Híbýlum vindanna (frekar mislukkað) og Skollaleik. Sem barn á Akureyri (12, 13 ára) sá ég uppsetningar Alþýðuleikhússins á bæði Skollaleik, þar sem Arnar Jónsson fór á kostum sem Þorleifur Kortsson, og Krummagulli, og er það ógleymanleg leikhúsreynsla.  Þráinn Karlsson las stórskemmtilegt brot úr einleik um kvenmannsleysi í sveitinni ognafni hans Bertelsson flutti Böðvari hjartnæma og snjalla afmæliskveðju. Vönduð dagskrá og metnaðarfull og alltaf gaman að njóta menningar. Silja Aðalsteinsdóttir og Þorleifur Hauksson voru sögumenn með sínum sjarmerandi röddum. Kvöldverður hjá Bekku frænku á eftir var svo punkturinn yfir i-ið, dýrindis hnetusteik og eplakaka með náttúrutei frá Eyjó. Yndislegt!Böðvar Guðmundsson, sjötugur 9. jan.

Ýmsar leiðir færar

Góð grein eftir Benedikt Sigurðarson í Mbl. í dag. Hann segir m.a.:

„Forsendur verðtryggingar hafa til skemmri tíma fallið. Það er ekki hagfræðilega mögulegt að rökstyðja að verðtryggðar skuldbindingar í íslenskum krónum verði undanþegnar »kreppuleiðréttingu« þegar eignaverð fellur um allt að 50% að raunverðmæti og gengi krónunnar og innlend verðbólga fella gjaldmiðilinn sem við eigum okkar daglegu viðskipti í um 30-50%. Óskert vísitölumæling frá ársbyrjun 2008-ársloka 2010 mun hækka verðtryggðu lánin um a.m.k. 30%. Fyrir liggur að skuldsetning yngri fjölskyldnanna í landinu var þannig að nærri 70% af þeim höfðu meira en 60% veðsetningu á sínum húseignum í ársbyrjun 2008. Auk þess er hátt hlutfall unga fólksins með verðtryggð námslán – sem eru kannski á bilinu 6-14 milljónir á hverja fjölskyldu. Fyrir árslok 2010 mun höfuðstóll lána hjá öllu þessu fólki verða umtalsvert hærri en mögulegt söluverðmæti eignanna – jafnvel svo munar 10-15 milljónum í mörgum tilvikum. Að óbreyttu liggur fyrir að greiðslubyrði alls þessa fólks verður óbærileg, jafnvel þótt menn haldi vinnu sinni og verði fyrir hóflegri tekjuskerðingu. Hluti hópsins mun geta haldið eignum sínum og staðið undir greiðslum í 20-30 ár – og þannig lifað við rýran kost. Sala eignanna framkallar hins vegar óumflúið tap sem vega mun varanlega að fjárhagslegri afkomu fjölskyldnanna til lengri tíma og setja einhverja endanlega á hliðina. (…) Það er tæplega umdeilt að hér ríkja neyðaraðstæður – sem réttlæta óvenjulegar og tímabundnar aðgerðir af hálfu stjórnvalda. Neyðaraðstæður kalla á róttækar og einfaldar lausnir. Slíkar lausnir eru til en mega ekki dragast mikið lengur. Handstýra verður með löggjöf þeirri »kreppuleiðréttingu« sem verðtryggðar lánaskuldbindingar taka á sig – til jafnræðis við önnur peningaleg verðmæti. Neysluvísitalan og samsetning hennar er verulega umdeilanleg viðmiðun og ótækt að miða við slíkan grunn í gegn um kreppuna og gengishrunið. Sanngjarnar og færar leiðir út yfir skelfingartímabilið geta verið tvær. Frysting vísitölu húsnæðislána mv. 1. mars 2008 leiðir til þess að höfuðstóll lána heldur nafnverði þess tíma. Frystingin mun samt ekki ein og sér koma í veg fyrir að höfuðstóll fasteignaláns hækki umfram verðmæti hinnar veðsettu eignar eins og spár gera ráð fyrir, en frestar því hins vegar og fækkar verulega slíkum tilvikum.“

Benedikt bendir á einfaldar leiðir til að minnka efnahagsvandann (nýjar vísitölur) en enn bólar ekki á neinum vitrænum aðgerðum frá hendi íslenskra stjórnvalda. Það er engin lausn að skera niður rekstur og þjónustu í helstu stofnunum þjóðarinnar, segja upp fólki og senda það á guð og gaddinn og herða svo að launþegum og húseigendum að skuldabyrðin verði óbærileg og lífskjörin óviðunandi. Ekkert þjóðfélag virkar án þess að þegnarnir séu vinnufærir, hafi húsaskjól, eigi kost á læknisþjónustu, menntun o.s.frv. Er leið Benedikts ekki vel fær?

Ófriður

Mér skilst að á Gazasvæðinu svonefnda (e. Gaza Strip) hafi verið stríð síðan um miðja síðustu öld. Gyðingar og Arabar berast þar á banaspjót og hvorugur vill víkja. Arabar byggðu Gaza sem stendur við ylvolgt Miðjarðarhafið en Gyðingar voru landlausir og þjóðir heims sakbitnar eftir seinni heimstyrjöldina og létu þessa landspildu (sem er ekki nema 41 km að lengd og 6-12 á breidd) eftir í sárabætur, án þess að ræða það frekar við Arabana. Kynslóðirnar á svæðinu, 1.4 milljónir manna,  þekkja ekki annað en ófrið og sprengjugný, grimmd og hatur. Fólkið á Gaza er í herkví, umkringt skriðdrekum og hermönnum, vatn og nauðsynjar á þrotum. Hvað verða  margir drepnir í nótt?

Einhver hagnast á þessu striði

Einhver hagnast á þessu stríði

Afrek ársins

Þegar ég lít yfir árið 2008 stendur upp úr ferðalagið okkar um landið í húsbílnum í sumar, ekki síst hið mikla afrek að hafa staulast yfir Fimmvörðuháls (frá Skógarfossi yfir í Þórsmörk) á björtum júlídegi. Þetta er 22 km ganga og fyrsti hluti leiðarinnar er sagður ein fegursta gönguleið í heimi en farið er framhjá mörgum fögrum fossum. Heiðar Ingi stjórnaði leiðangrinum enda í fantaformi. Við vorum um 9 klst. að paufast þetta og vorum örþreytt en alsæl þegar við komum í Mörkina. Meiri háttar þrekraun!

Heiðar blæs ekki úr nös

Heiðar blæs ekki úr nös

Leitin að barninu í gjánni

„Borið saman við bækur með lesmáli og sðgum eru stílabækur nytsamir sakleysingjar sem leyfa öðrum ýmist að nota eða misnota sig“ (72).

Guðbergur er síungur og ferskur, klikkar ekki. Skólakerfið er tekið í gegn af ískaldri hæðni og fjallað um skáldskap, sköpunargáfu og ímyndunarafl. Skólinn forheimskar krakkana í tossabekk A og neitar þeim um kennslu og lærdóm.  Sagan er að vísu doldið þvælin og fantasían tjúlluð; fljúgandi (kulnaðir) kennarar, draugar og framtíðarandar; en fáránlegur húmorinn er algjörlega að hætti Guðbergs, alþjóðaþing tossa í Kanada, kúkalykt í bekknum og kona með skott! Frábær bók! Endalausar gullvægar setningar, snilldarkaflar og speki!

„Bækurnar nutu lífsins úti i garði og fannst gaman þegar vindurinn fletti blöðunum. Það var skemmtilegra en að krakkar væru að klóra í þær með blýanti. Þær létu feykja sér til og frá og hlustuðu ekki á hróp skólastjórans sem hét þeim fagurri forskrift, enda vissu þær að þótt þær fengju hana væri hún ekki eftirsóknarverð og enn síður það að einhver krafsaði í þær, kannski slefandi vegna þess að sumir halda að betur gangi að krota ef tungubroddurinn er látinn lafa út um annað munnvikið…“ (78).

Guðbergur, snillingur

Bókaþjófurinn

Í Bókaþjófnum (eftir Markus Zusak) er dauðinn sjálfur sögumaður, hann hefur yfrið nóg að gera við að safna saman sálum framliðinna í heimstyrjöldinni síðari og koma þeim á vísan stað. Lísella er stelpuskott sem býr hjá fósturforeldrum sínum í Himmelstræti í München. Hún er bókaþjófurinn og fjölskyldan felur Gyðing í kjallaranum sínum. Bókin fjallar um um lífið í Þýskalandi nasismans, stríð og grimmd og líka um ást og vináttu. Óborganlegar persónur og skemmtilegur frásagnarháttur. Ísak Harðarson þýddi og gerir það bara ágætlega, en hvernig datt honum í hug að segja „Það er alltaf slæmt þegar fólk grípur mig rauðhentan…“ (548)?

696 bls...

596 bls...

Ættingjar

Ég er svo heppin, ég á svo skemmtilega ættingja og frændsystkini í báðar ættir. Við frændsystkin í föðurætt hittumst í boði hjá Bergþóru milli hátíðanna og skemmtum okkur konunglega. Allir mættir nema Palli frændi. Í geiminu kom skýrt fram að á facebook („Facebook hjálpar þér að tengjast fólkinu í lífi þínu“) er aðalstuðið og allt að gerast, þar eru víst myndir úr boðinu. Kannski maður skrái sig… Gott sketsið um facebook í áramótaskaupinu!