Haustverkin

Algjört frelsi

Algjört ferðafrelsi

Nú er kominn tími til að ganga frá húsbílnum og gera hann kláran fyrir veturinn en hann mun standa í þurri og fínni skemmu á Suðurlandi þar til fer að vora á ný. Allt var þrifið og skúrað út úr dyrum í gær. Ég hafði lengi veika von um að hægt væri að fara eina haustferð í október er veðurútlitið er ekki bjart. Við fórum víða í sumar og ferðasagan mun birtast hér á síðunni innan skamms. Svimandi hátt olíuverð gerir reisu um Ísland álíka dýra og mánaðardvöl á sæmilegu hóteli á heita Spáni en að ferðast um okkar fagra land er bara svo miklu skemmtilegra.

Tivoli, tivoli, tivoli-li-li

Tivoli i haustmyrkrinu

Tivoli í haustmyrkrinu

Við Þura systir fórum saman á ráðstefnu. Við vorum saman í herbergi á Hotel Centrum og skemmtum okkur mjög vel. Ráðstefnan fór vel fram. Þess utan fórum  við á alla dæmigerðu staðina, s.s. H&M, Hviids, Café Europa, Café Norden, Riz Raz, restaurant Bali og La Piccatio og þræddum líka gömul, þröng stræti þar sem andi fortíðar lék um hvern rennustein. Ég gæti alveg hugsað mér að vera búsett í Köben, Danir eru svo skemmtilegir. Og sjáið öll hjólin í baksýn! Frábært!

Skrattans móðurinn

Lágmynd

Ég var í Kóngsins Kaupmannahöfn, dagana 10.-14. september. Mér fer að mörgu leyti líkt og Tómasi Sæmundssyni forðum en hann skrifar Jónasi svo:

Kaupmannahöfn, 30. sept. 1827

„…Hér er að mörgu gaman, ef maður hefur nóga peninga til að nota sér það, en ekki get ég fundið smekk í því sem fólk hefir sér hér til lystisemda. Mest fær á mig hljóðfærasöngurinn, og að heyra hann undir eikigreinunum, sem yfirskyggja á allar síður, gerir mann næstum frá sér numinn fyrst í stað. Alt getur maður haft hér, sem upphugsað verður, með peningum, og séu þeir (til), takmarkar ekkert manns frjálsræði nema flugurnar og flærnar, sem hvorki gefa um kopar né seðla. Fólkið hérna er fjarskalega glaðlynt og þægilegt og strax til reiðu með alls kyns þénustu, en alt verður að kosta peninga. Verst af öllu kann ég við skrattans móðinn og get ég aldrei liðið sjálfan mig, þegar ég lít utan á mig…“

Bréf Tómasar Sæmundssonar, 1907:19

Úr gömlu sendibréfi

Svo ritar Geir biskup góði:

„Lambastöðum, 1. apríl 1803

Veturinn byrjaði hér strax með Mikkaelsmessu með norðanveðri, frosti og snjó, svo heiðar urðu ófærar, og mörgum, sem á ferð voru, lá við stórslysum. Margir áttu þá enn hey úti, sem allt varð að litlum eða engum notum…

Svo var stór grasbrestur á Ströndum í sumar eð var, að tún urðu víða ekki ljáborin, og margir flúðu með gripi sína inn að Ísafjarðardjúpi og fengu þar leyfi að slá fyrir þeim, það sem aðrir ekki vildu nota, svo þessi sveit sýndist framar öðrum stödd í dauðans kverkum. Þar skal annars í Hælavík, skammt frá Horni, vera enn nú einu sinni strandað skip frá Skagaströnd, hlaðið með kjöt, tólg og ull. Menn meina menn komizt hafi lífs á land, en drukknað í forvaða einum, sem þaðan er yfir að fara til mannabyggða. Þingeyjar- og Norður-Múlasýsla eru og í mestu þrenging, í þeirri fyrri, einkum á Langanesi, Sléttu og allt að Reykjaheiði, skal fólk vera farið að ganga frá heimilum sínum og sumir að eta hordautt hrossakjöt, svo allir segja þar mannfelli óumflýjanlegan…“

(Íslensk sendibréf 1966:33. Geir biskup góði í vinarbréfum, 1790-1823)

Góðverk dagsins

Ég gekk 10 kílómetra í dag ásamt fjölda fólks (750 manns). Það var ganga til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini á vegum Göngum saman. Gengið var frá Árbæjarkirkju á messutíma sem leið lá um Elliðaárdalinn í sæmilegu veðri. Ég þrammaði með Heiðrúnu Kristjáns og vinkonu hennar og það var ekkert gefið eftir, gengið heldur rösklega, vorum klukkutíma og þrjú korter. Þetta var hressandi, svo hressandi að þegar heim kom svaf ég í klukkutíma eftir heitt baðið og sporðrenndi síðan 10 amerískum pönnukökum með sýrópi, einni fyrir hvern kílómetra.