Franskur rithöfundur, Jean-Marie Gustave Le Clezio, var sæmdur bókmenntaverðlaunum Nóbels í dag. Þau nema 10 milljónum sænskra króna (£820,810). Le Clézio, sem er 68 ára (en ótrúlega unglegur) hefur sent frá sér um 30 bækur, smásögur, skáldsögur, þýðingar, ritgerðir og greinasöfn. Hann býr víst í Nýju Mexikó og hefur skrifað einhverjar ferðabækur. Ég hef aldrei lesið bók eftir þennan mann, hvað þá heyrt á hann minnst. Nú þarf að bæta úr fáfræðinni, kannski maður rifji upp menntaskólafrönskuna. Á einhver Linguaphone? Og best að hlusta á Víðsjá í dag.
Ananas- og gulrótarsúpa
Afmælissúpan var að hætti Sollu úr Grænum kosti Hagkaupa
2-3 msk ólífuolía, 1 blaðlaukur, 1-3 msk rautt karrímauk, 1-2 hvítlauksrif, 1 cm fersk engiferrót, 1 lárviðarlauf, 4 gulrætur, 1/4 sellerírót, 1/2 lítri vatn, 2 grænmetisteningar (helst gerlausir Rapunzel), 1 dós ananasbitar og safinn, 1 dós kókosmjólk (gjarnan lífræn), sjávarsalt og pipar, ferskt kóríander
Blaðlaukur skorinn smátt og hitaður í olíu í stórum potti í ca 3-5 mín. ásamt karrímauki, pressuðum hvítlauk, smátt skorinni engiferrót og lárviðarlaufi. Gulrótarstrimlum og litlum sellerírótarbitum bætt í og látið malla í 2 mín. Grænmetisteningar og vatn sett út í ásamt ananas og kókosmjólk. Sjóðið í um 15 mín. Salt og pipar, ferskt kóríander klippt yfir og borið fram. Gott að setja soðnar kjúklingabaunir og/eða rauðar linsubaunir út í til að gera súpuna matarmeiri og strá kókosflögum eða möndluflögum yfir.
Afmæli
Það er hasar víða
Bölsýni
Er það nú að koma á daginn sem ég hef lengi óttast, að seilst verði í eignir lífeyrissjóðanna? Er það ekki rétt skilið hjá mér að eignir lífeyrissjóðanna eru sparifé almennings, það sem dregið hefur verið af launum fólks til að leggja fyrir til elliáranna? Eyrir fyrir lífið? Styðja við sjúka og aldraða? Búa heldri borgurum áhyggjulaust ævikvöld? Að vísu hef ég heyrt að einhverjir séu að gambla ábyrgðarlaust með þessa peninga bæði hér og í útlöndum og hafi jafnvel grætt eitthvað smá. En gróðabissnessinn er hverfull og það á ekki að taka áhættufé af lifibrauðinu.
Einhvern veginn hef ég lengi haft á tilfinningunni að þegar kemur að mér að fá lífeyrinn minn eftir áratugalanga þjónustu og farsælt ævistarf, þá verði peningarnir búnir.
Sannleikurinn?
Sumir segja að nú muni bágborið efnahagslífið rétta úr kútnum fyrst ríkið keypti í Glitni og að nú munum við skattborgararnir græða. Aðrir segja að nú fyrst fari að halla undan fæti og að ríkið hafi tapað milljörðum. Hvort er satt? Kannski hvorugt? Mér kemur það náttúrulega ekkert við.
Misjöfn örlög bóka
„Af þeim tvö þúsund eintökum sem prentuð voru af Sögu ástarinnar voru sum keypt og lesin, önnur voru keypt og ekki lesin, sum voru gefin, sum stóðu óhreyfð og dofnuðu í bókabúðagluggum og urðu lendingarstaður flugna, sum voru merkt með blýanti og dágóður slatti var sendur í endurvinnslu þar sem þau voru rifin í tætlur ásamt mörgum ólesnum bókum sem enginn vildi, þar sem setningar þeirra greindust í sundur og hökkuðust saman í blöðum vélarinnar. Standandi við gluggann sá Litvinoff eintökin tvö þúsund fyrir sér eins og jafn margar dúfur sem blökuðu vængjum sínum og snéru aftur til hans með upplýsingar um tárin sem hefðu fallið, hversu margir hefðu hlegið, hversu mikið hefði verið lesið upphátt, hversu margir hefðu lokað bókinn eftir skammarlega stuttan tíma, hversu margar hefðu aldrei verið opnaðar“ (bls. 76-77).
Ég er að lesa og skrifa ritdóm fyrir Mbl. um Sögu ástarinnar eftir Nicole Krauss
Bekka snillingur
Bekka frænka veit hvað hún syngur. Sjá bloggsíðuna hennar sem er þrungin visku, þekkingu og reynslu og auk þess á gullaldarmáli.
Fávís kona
Nú er ég bara fávís kona, opinber starfsmaður og almennur launþegi. Ég vinn á skrifstofutíma alla daga sem ekki eru rauðir á dagatalinu, ég greiði mín launatengdu gjöld og legg mitt af mörkum til samfélagsins. Ég er svo gamaldags að ég legg áherslu á að standa í skilum, þrái að greiða niður skuldir mínar og langar að ávaxta mitt pund til að geta ornað mér við það í ellinni (mér sýnist eldri borgarar ekkert ofhaldnir). Svo heyri ég í útvarpinu að ríkið hafi skyndilega hlaupið til og keypt aftur mjólkurkúna sem sem var göbbuð út úr henni á spottprís í nafni einkavæðingarinnar og síðan blóðmjólkuð og útpískuð, á uppsprengdu verði. Mér skildist þegar var verið að gera kjarasamninga við almenning í landinu að engir peningar væru til. Ég bara sé ekki hvernig þessi „efnahagsaðgerð“ á að geta bætt hag minn og almennings í landinu (lækkað matarverðið, bensínið, heita vatnið…). Munu launin mín nú halda verðgildi sínu og hætta lánin að þenjast út? Það hélt ég að væri brýnast um þessar mundir. Hvað gerist ef banki fer á hausinn? Hvað gerist ef heimili eru í kröggum og fara á hausinn ? Kemur einhver og bjargar þeim? Eins og sjá má hef ég ekkert sérstaklega góða innsýn í efnahagsmál.
Þruman og múrinn
Það var eins konar kvikmyndahátíð hjá okkur á föstudagskvöldið, fórum fyrst í bíó og leigðum okkur svo 2xdvd. Við fórum á Tropic Thunder, stórfurðulega karlrembu-víetnam-grínmynd með þyrlum, blóði og sprengingum. Mér leist ekkert á byrjunina en svo rættist úr þessu og ég skemmti mér stórvel. Í myndinni er einvalalið leikara, Ben Stiller leikstýrir og leikur aðalhlutverkið en auk hans fer Robert Downey jr á kostum og var kominn tími á að hann risi úr öskustó. Tom Cruise sýnir á sér nýja hlið í myndinni og gaman var að sjá Nick gamla Nolte á hvíta tjaldinu, hann var nú aldeilis sjarmur í Gæfa og gjörvileiki í ríkissjónvarpinu forðum daga (1976) . Næsta mynd, Das Leben der Anderes (2006), var meira fyrir minn fágaða smekk. Falleg og dramatísk mynd eftir þýska leikstjórann Florian von Donnersmarck (f. 1973). Myndin gerist í Austur-Þýskalandi nokkrum árum áður en múrinn féll. Persónufrelsi er ekkert, íbúðir fólks eru hleraðar, ritskoðun ríkir á sviði bókmennta og lista og einkabréf fólks eru opnuð við gufu og lesin í leit að einhverju misjöfnu um kommúnistastjórnina . Síðasta myndin á þessari heimagerðu kvikmyndahátíð var 10.000 BC sem var alveg ótrúlega hallærisleg. Svo er víst alþjóðleg kvikmyndahátíð í bænum en þá þarf maður víst að fara út fyrir túngarðinn…




