Höllin

„The Maddened, Lascivious Dogs of Assistants“. On Dehumanization and Regression in The Castle by Kafka

25709047322_c4fa20b157_o

Fyrir framan húsið sem amerísku stúdentarnir hafa til umráða í Prag

Þegar ég stúderaði við Univerzita Karlova í Prag var ég í námskeiði um Kafka. Þar sat ég í tímum með amerískum nemendum og fór drjúgur tími í að ræða forsetaframboðið í heimalandi þeirra sem þá var framundan og sýndist sitt hverjum.

Margir nemendanna höfðu aldrei heyrt Kafka nefndan fyrr og urðu mishrifnir af verkum hans. Prófessorinn gaf einkunn eftir virkni í tímum og margoft réttu nemendur upp hönd og lögðu bara eitthvað til málanna til að ná sér í stig, alltaf með þessari sérkennilegu hrynjandi sem endar á svo lágum nótum að lokaorð setningarinnar deyja út. Þessi ameríski framburður ryður sér æ meir til rúms og þykir mér bæði erfitt að heyra og vont að skilja hann en það segir kannski meira um mig.

Kennsluhúsnæði Kananna var á besta stað í miðbænum í glæsilegu húsi með innréttingum frá 19. öld, sponserað af stórfyrirtækjum og milljónamæringum. Hugvísindadeildin þar sem Tékkar hírðust ásamt evrópskum stúdentum var hinsvegar í úthverfi, í forljótri byggingu frá níunda áratugnum. Síðast þegar ég vissi stóð til að deildin flytti í miðbæinn en það hefur reyndar staðið til sl. 20 ár.

Ég skrifaði m.a. ritgerð í Kafka-námskeiðinu um dýrslega aðstoðarmenn K í Höllinni og aðra um kímnigáfu Kafka i Réttarhöldunum og hafði gaman af (sjá Óbirt efni).

Höllin

Er að stúdera þessa brellnu skáldsögu. Það endar í Midterm Essay í námskeiðinu Kafka in Prague við Charles University þar sem Kafka sjálfur stúderaði forðum. Góðar pælingar eru hér í Víðsjá, þeim vandaða útvarpsþætti.

https://player.fm/series/bk-vikunnar/hllin-eftir-franz-kafka

kafka_franz_obraz

Mynd af geographical imaginations . com