Pabbi minn heittelskaður er sjötugur í dag og hélt glæsilega veislu í Haukaheimilinu í gærkvöldi. Atli á Jarðbrú (í hinum ægifagra Svarfaðardal þar sem pabbi var skólastjóri á Húsabakka til ársins 1972) sendi okkur myndir sem hann tók og lýsti þessu öllu saman á flickr-síðu sinni. Margir lögðu hönd á plóg til að gera veisluna sem best úr garði og kunnum við systur þeim öllum bestu þakkir. Ræður og skemmtiatriði frá gestum voru á heimsmælikvarða, maturinn frábær og stemningin afar góð. Margir komu um langan veg til að heiðra afmælisbarnið og afar gleðilegt var að amma mætti og var eins og drottning, 93 ára. Í tilefni afmælisins gaf hann út bók með vísum eftir sig sem gestum gafst kostur á að kaupa á vægu verði en hann frábað sér allar afmælisgjafir.
Til hamingju með pabba þinn!
Hjartanlegar hamingjuóskir með pabba þinn. Berðu honum kveðju mína.
Er hægt að fá keypta bók? Áritaða?
Ég skal útvega þér bók, kostar 3.500, þetta er algjörlega jólagjöfin í ár. Hann áritar með gleði.
Hamingjuóskir með pabba þinn og til hamingju með fimmtudaginn, viltu útvega mér bók?
Hjartanlegar hamingjuóskir með snillinginn pabba þinn.
Ég panta hér með áritaða bók.
Ég panta hér með bók!
Heiðrún, Solla og Drengur, ég kem pöntun ykkar á framfæri. Þetta er heitasta jólabókin.
Hurðu heldur þú að ég hafi ekki fengið bókina með póstinum í gær, alger snilld..
Ooooog, já til hamingju með daginn!
Já Heiðrún , – þú pantaðir hana yfir púrtvínsglasi í sumar:-)
Verð líka að eignast þessa bók, áritaða. Steinunn?
Bókin á leiðinni í pósti ásamt greiðsluseðli. Held hún sé komin á metsölulista.