Höfundur: Steinunn Inga Óttarsdóttir

"Maður hélt útsýni valda víðsýni, en endurtekningin er þrengri en mjór fjörður..." Guðbergur Bergsson, Anna 1969

Bella og svarta kaffið

Nýja platan (diskurinn) hennar Ragnheiðar Gröndal, Bella and her black coffe, er einstaklega ljúf og falleg. Ég þurfti að hlusta á hana nokkrum sinnum til að meðtaka hana en ég er mikill aðdáandi Vetrarljóða. Ragnheiður slær á milda jazztóna og syngur með sinni afskaplega fallegu rödd (allt á ensku…) og Guðmundur Pétursson, snillingurinn sæti með flottasta nef og krullur sem til eru, spilar undir. Meiriháttar kósístemning í skammdeginu.

image

Kiljan

Ég var í smá viðtali í Kiljunni í gær. Mætti í förðun fyrst og var eins og filmstjarna frá 9. áratugnum. Förðunin tók hálftíma en viðtalið hálfa mínútu. Bunaði einhverju út úr mér og þegar ég kom út sá ég að ég hafði ekki sagt það mikilvægasta sem ég hafði verið búin að æfa mig í fyrir framan spegilinn… Vona að ég verði ekki klippt út.

Öldungis bit

Pabbi sendi þessa kreppuvísu í þáttinn. Hún er eftir Hjálmar Freysteinsson, lækni á Akureyri.

Eitt hefur gert mig öldungis bit,

á því mig svekki:                                                            

Þeir sem töldust með viðskiptavit

voru það ekki!

Tilnefningarnar

Þá eru það tilnefningar til bókmenntaverðlaunanna,  í 19. sinn. Bókaútgefendur borga hver öðrum og verðlauna svo hver annan eða sjálfa sig, ansi sniðugt. Af þeim sem eru tilnefndar í ár hef ég lesið Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugs (ritdómur á leiðinni í mbl.). Mjög vandlega byggð saga, vel stíluð, gott drama en lítið um samtöl eða djúpa karaktera, fann td aldrei neina samkennd með Rán, konu á gamals aldri sem ráfar um Barselónu í leit að sjálfri sér. Ég hlakka til að lesa Rökkurbýsnir, sú bók hljómar vel. Það er smá kafli um Þórshöfn og nágrannaplássin í bók Óskars Árna, Skuggamyndir úr ferðalagi, sem ég gluggaði í þegar ég var í Eymundsson um daginn. Hún er fallega skrifuð og eiguleg.

Hansahillur?

Það var aldeilis tekið til hendinni heima um helgina. Herbergi sonarins var málað og settar upp dýrindis hansahillur sem mér áskotnuðust (takk Ester!). Þær eiga sér sögu frá nýliðinni öld en þær prýddu um árabil heimili Jónu frænku í Þverholti á Þórshöfn og síðast veggi bernskuheimilis míns að Víðilundi 14 a á Akureyri þar sem Ester býr nú rausnarbúi. Hillur þessar eru svo snilldarlega einfaldar, úthugsaðar og sígildar að það er leitun að öðru eins. Veit einhver hvaðan nafnið „hansa“ er komið og hver á  heiðurinn af hönnuninni? Ég finn ekki einu sinni mynd á netinu.

Konur eftir Steinar Braga

Steinar Bragi

Steinar Bragi

„… Hún át töflurnar kvöldið áður, sólarhring áður en komið var að henni. Og það hefur gerst að konum tekst að drepa sig, sjáðu til. En þetta er auðvitað rétt hjá þér, okkur er yfirleitt ekki treyst til að drepa okkur almennilega, ekki einu sinni það.“ Hún brosti. „Við étum töflurnar, hringjum grenjandi í kærasta sem hringir í lækni til að pumpa upp úr okkur. Við erum kynið sem vill björgun, ekki dauða. Grenjum svo á geðdeild í nokkra mánuði, tökum okkur saman í andlitinu, látum barna okkur og höldum að allt verði betra, en deyjum í staðinn hægt og bítandi í Smáralindinni með feitu, freku krökkunum okkar og nöldrandi karlinum, sem er eins og stórt barn eða þá nægilega sjálfstæður til að yfirgefa okkur fyrir yngri konu. Ég segi svona…“ (83-84)

Flott bók hjá Steinari Braga. Dularfull og miskunnarlaus hryllingssaga. Hér er konan bókstaflega lokuð inni, býr við allsnægtir en er misþyrmt andlega og líkamlega. Tímabært að staða kvenna sé krufin svona hressilega. Spurningar vakna um mörk og eðli lista, þjáningar og firringar. Í bókinni segir furðufuglinn og listamaðurinn Novak eitthvað á þá leið að fyrir hverja konu sem kemst til valda eða áhrifa í samfélaginu séu gerðar þúsund klámmyndir þar sem konan er sett aftur á sinn stað: valdalaus, undirgefin og niðurlægð. Alveg magnað!

Sjá grein eftir kallinn.

Bylting

Hvernig er hægt að bjóða fólki upp á það sem lausn að fá að „leigja“ húsið sitt áfram eftir að maður er kominn með húsnæðislán í greiðsluþrot? Hvernig er hægt að láta viðgangast að fólk skuldi í árslok heilum árslaunum meira í húsnæðinu þótt það hafi borgað af því í hverjum mánuði? Hví líta stjórnvöld á vísitölu og verðtryggingu sem náttúrulögmál? Er ríkisstjórnin ekki núna orðin leppstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Svei mér þá, ég held ég vilji kosningar eftir allt saman- nei, byltingu!

Vafstur og hjóm

Það er að bera í bakkafullan lækinn að væla um þennan borgarafund í gær. Ég get samt ekki orða bundist yfir því hvað stjórnmálamenn sögðu  lítið af viti, klisjurnar, mælskutrixin og undanbrögðin með ólíkindum. Og tuggan um kosningar núna, ég er ekki að kaupa hana. Allt verður þetta þó hjóm hjá því að sautján ára piltur, nemandi í MK, féll fyrir eigin hendi í gær.

Hálfmánar

frá Magneu E

 

500 gr hveiti (má skella má spelti saman við)

1 1/2 dl mjólk ca.

200 gr mjúkt smjörlíki

200 gr sykur (hrásykur með)

1/2 tsk kanill

1 tsk lyftiduft (vínsteins)

1/2 tsk hjartasalt

vanilludropar

1 egg

rabarbarasulta 

 

Smjörlíki mulið saman við þurrefnin. Eggi og vanilludropum bætt við. Deigið er síðan hnoðað (í hrærivél) uns það er slétt og sprungulaust. Má bíða í ísskáp yfir nótt ef vill ef maður er orðinn þreyttur eftir þetta. Deigið flatt út og stungið út með glasi, ca. 6-8 cm í þvermál. Sultuskeið á hverja köku (helst rabarbara), brotnar saman um miðju og lokað með gaffl (eða fingrunum). Bakað við ca.120-150°C þar til þeir verða ljósgullnir.