Loksins gafst mér tími til að fara í bíó og sjá Stúlkuna sem lék sér að eldinum. Í myndinni var stiklað á mjög stóru úr bókinni og margt vel gert en auðvitað er ekki hægt að hafa allt með úr 700 síðna bók. Ekki nýtti leikstjórinn sér nógu vel t.d. að leika sér með möguleikana í íbúð Lisbeth á Lundagatan eða dramatisera endurfundi hennar við föður sinn en sá var ekki nándar nærri nógu afskræmdur þótt ljótur væri. Þá var Niedermann ekki alveg nógu ógnandi fannst mér. Það gladdi mig að Miriam Wu er nauðalík Steinunni vinkonu minni Haralds! Myndin var fín og nú er bara að bíða eftir þeirri þriðju og síðustu og vona að reyfarar framtíðar verði jafngrípandi og Millennium-syrpan.
Kvikmyndir
„Sveivirðileg skítsauði“
Inglourious Basterds (Tarantino) er hörkuspennandi, þrælfyndin, blóðug og ofbeldisfull. Fullt sem kemur á óvart, engar klisjur nema til að gera grín að þeim. Hópur morðingja gerir út á að drepa nasista og safna höfuðleðrum þeirra. Stóra planið er að drepa allt herforingjaráðið og Hitler líka. Hrikalegur suðurríkjahreimur hjá Brad Pitt orkar etv. tvímælis og líka ýktur ofurtöffarasvipurinn sem er á honum allan tímann og leikstjórinn hefur efalaust fyrirskipað. En Pitt missir aldrei kúlið. Christopher Waltz (sem hefur oft leikið þýska hermenn og njósnara, m.a. í Bond) leikur Hans Landa, stormsveitarmann og Gyðingaveiðara. Hann sýnir snilldartakta, algjör stórleikur hjá manninum. Aðrir leikarar skila sínu líka mjög vel, gaman að sjá þýska og franska leikara sem maður hefur ekki séð oft áður. Skemmtilegar tökur og töfrandi senur, frábær samtöl og drama, allt flott í þessari mynd.
Menn sem hata konur – bíómyndin
Ég fór í fimmbíó og myndin var búin rétt fyrir átta (hún er tæpar 150 mín.). Þetta er ansi góð bíómynd, flottar senur, smekkleg birta og klippingar, dramatísk notkun á t.d. gömlum ljósmyndum sem eru haglega notaðar í myndinni, og fín tónlist. Sænskan er ótrúlega krúttlegt mál og gaman að hlusta á hana. Það er auðvitað ekki hægt að hafa allt úr bókinni með í myndinni, t.d. fær Erica Berger, sem er mikilvægur hluti af lífi Mikaels og mjög skemmtileg persóna, ekkert pláss í þessari mynd. Mikael Nyquist, þekktur leikari i Svíþjóð, leikur nafna sinn Blomquist og er doldið eldri en ég bjóst við (49), ég hafði séð hann fyrir mér aðeins yngri og fríðari, en Nyquist er mikill sjarmör, ekki spurning. Lisbeth Salander er bara flott, vel leikin af Noomi Rapace og ein áhugaverðasta kvenpersóna sem sést hefur lengi í bókmenntum. Ég varð strax sátt við hana sem Lisbeth. Leikstjóri er Niels Arden Oplev sem m.a. leikstýrði dönsku öndvegisþáttunum Örnen, Rejseholdet og Taxa. Myndin er hörkuspennandi og persónurnar verða manni hjartfólgnar, sérstaklega Lisbeth en þó þarf að varast í framhaldinu að gera hana grínaktuga. En hvernig á maður að geta beðið eftir næstu 2 myndum? Mér skilst að þær verði ekki sýndar í bíó heldur aðeins í sænska sjónvarpinu og dreift á dvd. Ég er ekki alveg búin með þriðju og síðustu bókina en það stefnir í svaðalegt uppgjör.
Kvennahlaup og Bjólfur
Þá er enn ein helgin liðin í aldanna skaut. Ég mætti eins og vanalega í kvennahlaupið með Sossu, rúlluðum upp fimm kílómetrum án þess að blása úr nös. Hvar voruð þið, Þura, Nína, Hella og allar hinar, mínar frábæru systur, frænkur og vinkonur? Arwen hljóp með okkur, hún var án efa stærsti hundurinn í hlaupinu og sá sem vakti mestan ugg (og aðdáun) en þarna voru alls konar hundar samankomnir með eigendum sínum, sumir voru íklæddir kvennahlaupsbol, aðrir í bleikum burberry-regnkápum og nokkrir í heimaprjónuðum lopapeysum.
Nú er Bjólfskviða loksins komin á dvd, þar má sjá Brynjari bregða fyrir ef maður rýnir vandlega en hann lék í myndinni síðsumars 2004.

Ekki alveg nógu gott handrit hjá Sturlu og Óttar hefði mátt komast í klippigræjurnar

Til hvers að hafa Gerard Butler í aðalhlutverki þegar völ er á svona glæsibringu?
Star Trek

Spock og Kirk
Bíómyndin StarTrek sem nú er sýnd í bíóhúsum er ansi skrautleg. Ég fylgdist með þáttunum í sjónvarpinu forðum daga og furðaði mig á þessum geimi þar sem alls konar verur skutu upp kolli með margvíslegt og sérkennilegt útlit. Svo var barist um völd og yfirráð í geimnum, stjörnuskip svifu um og alls konar plánetur voru byggðar misjafnlega siðmenntuðum þjóðum. Í bíómyndinni er róið á sömu mið, Rómúlar hyggja á geimsyfirráð og hefndir og sprengja plánetuna Vúlkan í loft upp. Þeir ætla næst að snúa sér að Jörðinni. Kirk er sonur heimsfrægs geimfara en er óstýrilátur og kærulaus og á einu djamminu er hann manaður í Stjörnuflotann. Þar bíður hans erfitt verkefni, að forða Jörðinni frá tortímingu og bjarga mannkyninu. Hann er fljótur að vinna sig upp í stöðu geimskipstjóra í harðri samkeppni við Spock, sem er hálfur Vúlkani og hálfur maður, heiðarlegur og rökfastur. Ef horft er fram hjá amerískri þjóðrembu og nokkrum illa hugsuðum senum (aðallega þessum í snjónum) er myndin hörkuspennandi þótt hún sé auðvitað bölvað rugl. Eftirminnilegar aukapersónurnar eru rússneski liðsforinginn Pavel Chekov, undrabarn í vísindum með hrikalegan hreim, og Spock á gamals aldri sem var með alltof stóran falskan tanngarð.
Spaghettívestri
Sjá hér: http://vimeo.com/3411985
5. LOST serían hófst í gær
Tveir af mínum uppáhaldskarakterum:
CAR HOP: [to Sayid] Here’s your order sir.
[Sayid hands the bag to Hurley and turns to hand the car hop money.]
SAYID: Keep the change.
CAR HOP: [to Sayid] Thank you.
[Sayid starts the vehicle while Hurley looks in the bag.]
HURLEY: [to Sayid] Ah, awesome! Want a fry?
SAYID: No, thank you.
HURLEY: You know maybe if you eat more comfort food, you wouldn’t have to go around shooting people.
[As Hurley pops a French fry into his mouth, Sayid drives out of the parking lot. They pull into the parking lot of a large motel and park. As they ascend to the level their room is located, Hurley is eating a hamburger.]
HURLEY: So that dude you popped outside Santa Rosa, who’s he?
SAYID: I don’t care. He was armed and he was watching you. That made him an enemy.
HURLEY: Ya think he was gonna kill me?
SAYID: I’m not taking any risks after Bentham died.
HURLEY: Ya mean Locke?
SAYID: Yes, I mean Locke.
HURLEY: I need a cool code name…
Doldið orðnir flóknir þættir og margt dularfullt á ferð.

Hammari á góðum degi
Sólskinsdrengurinn
Ég fór í bíó í gær að sjá Sólskinsdrenginn, frábæra heimildarmynd Friðriks Þórs og Óttars Vignissonar… Myndin er stórskemmtileg, hjartnæm og persónuleg, stórskemmtilegir karakterar, furðulegir prófessorar, einhverfur húmor, tilfinningaskalinn allur undir. Dr. Soma er pínulítil indversk kona sem eignaðist einhverfan son og hefur á undraverðan og furðu einfaldan hátt hjálpað börnum að komast út úr einangrun einhverfunnar. Húm hefur þróað svokallaða hraðhvatameðferð og Keli litli, sólskinsdrengurinn hennar mömmu sinnar, fær loksins rétta meðhöndlun og kraftaverkin gerast. Algjört must-see!
Australia

- Á hverfanda hveli?
Þruman og múrinn
Það var eins konar kvikmyndahátíð hjá okkur á föstudagskvöldið, fórum fyrst í bíó og leigðum okkur svo 2xdvd. Við fórum á Tropic Thunder, stórfurðulega karlrembu-víetnam-grínmynd með þyrlum, blóði og sprengingum. Mér leist ekkert á byrjunina en svo rættist úr þessu og ég skemmti mér stórvel. Í myndinni er einvalalið leikara, Ben Stiller leikstýrir og leikur aðalhlutverkið en auk hans fer Robert Downey jr á kostum og var kominn tími á að hann risi úr öskustó. Tom Cruise sýnir á sér nýja hlið í myndinni og gaman var að sjá Nick gamla Nolte á hvíta tjaldinu, hann var nú aldeilis sjarmur í Gæfa og gjörvileiki í ríkissjónvarpinu forðum daga (1976) . Næsta mynd, Das Leben der Anderes (2006), var meira fyrir minn fágaða smekk. Falleg og dramatísk mynd eftir þýska leikstjórann Florian von Donnersmarck (f. 1973). Myndin gerist í Austur-Þýskalandi nokkrum árum áður en múrinn féll. Persónufrelsi er ekkert, íbúðir fólks eru hleraðar, ritskoðun ríkir á sviði bókmennta og lista og einkabréf fólks eru opnuð við gufu og lesin í leit að einhverju misjöfnu um kommúnistastjórnina . Síðasta myndin á þessari heimagerðu kvikmyndahátíð var 10.000 BC sem var alveg ótrúlega hallærisleg. Svo er víst alþjóðleg kvikmyndahátíð í bænum en þá þarf maður víst að fara út fyrir túngarðinn…
