Þá er smíði skjólveggsins mikla lokið (reyndar á eftir að setja stál-/álhatt ofan á, bæði upp á lúkkið og til að styrkja böndin). Síðasta spýtan skrúfuð í undir kvöld, smiðshöggið hefur verið rekið. Nú vantar ekkert – nema góða veðrið.
Ýmislegt
Svalaveggur # 6
Í dag var unnið að því að klæða vegginn að utan hinum megin frá. Þar er fura (pallaefni) sem á eftir að bera á og gera huggulega. Lagt var rafmagn í vegginn (hvít snúra á myndinni) svo nú er hægt að huga að og hanna smart lýsingu . Verkið gekk hratt og vel enda veður gott og allar græjur við höndina, þökk sé Eiríki og Gumma. Um miðjan dag var boðið upp á nýbakaða köku en seinnipartinn var allur vindur úr ráðskonunni og Nings sá um kvöldmatinn.
Svalaveggur # 5
Þá er risinn virkisveggurinn mikli, vantar ekkert nema skotraufarnar. Vinnumenn voru hraktir og kaldir í rigningunni í dag en létu það ekkert á sig fá. Nú er bara eftir að klæða hinum megin á vegginn með pallaefni og setja svo harðvið í litla bilið við stofuna. Það verður rafmagn í veggnum og næst á dagskrá er að velja smart útiljós og skipuleggja reisugillið.
Svalaveggur # 4
Inga.15
Svalaveggur # 3
Miklar og nákvæmar mælingar hafa átt sér stað á svölunum. Í ljós hefur komið að veggir eru skakkir og gólf hallandi og hefur reynt á mælingamennina. En nú er fyrsta fjölin lögð og stefnir í að þetta fari að skotganga. Ráðskonan er sveitt að elda handa vinnumönnunum, hún var með lasagna að hætti hússins í gær og í kvöld verður spænskur saltfiskréttur að hætti Soffíu frænku.
Svalaveggur # 2
Svalaveggur # 1
Aska
Í gær rigndi ösku yfir okkur og mældist langt yfir öllum skráðum og leyfilegum heilbrigðismörkum. Þetta var bara þunnt lag, ekkert á við það sem Sunnlendingar hafa mátt þola síðustu vikur. Askenasí brá sér á svalirnar og smúlaði þær með garðslöngu svo Öskubuska gæti sest út í sólbað með te og bók. Þá hefur verið settur upp hitamælir á stofuglugga og sýndi hann 24 gráður síðdegis. Á næstu dögum verða birtar myndir hér af framgangi og upprisu svalaveggsins langþráða en smíði hans hefst í vikunni þar sem okkur hefur borist liðsauki. Fylgist með frá byrjun!
Júróvisjón
Partí hjá Ingu og vinkonunum. Dansað úti á svölum við lagið góða frá Þýskalandi sem vann: Can´t go að minute without your love (Satellite). Fjörugt og gott lag, óvænt úrslit en lagið greip mig strax um daginn þegar ég heyrði það fyrst. Hera var frábærlega flott og gerði allt tipptopp. En Norðurlandaþjóðirnar, vinir okkar og grannar, splæstu varla á okkur nema örfáum stigum, erum við alls staðar hötuð og fyrirlitin meðal siðaðra þjóða?










