Við frænkur og vinkonur, Unnur, Odda, Sossa og Hella, gengum á Helgafellið í dag í blíðskaparveðri, 4,25 km alls og tók tæpa tvo tíma. Íþróttaafrekum mínum fer fjölgandi, á skírdag gengum við Brynjar alllengi með hundinn við Kleifarvatn og á annan í páskum fórum við systur í Elliðaárdalinn og þrömmuðum 5 km. Svo löbbum við Arwen á hverjum degi a.m.k. 1-2 km. Í mínum uppvexti var ekki mjög hvatt til íþróttaiðkunar en öllu meira til bóklestrar og menntunar. Pabbi var alltaf léttur á sér og liðugur þegar hann var ungur, lék sér að því að ganga á fjöll, renna sér á skautum og skíðum og keppa í fótbolta án þess að blása úr nös. Mamma stundaði aldrei neina markvissa líkamsrækt en var alltaf vel á sig komin en sjálf var ég alltaf rýr og föl, kýrstirð og léleg í leikfimi. Ég var hrædd við bolta, óttaðist að beinbrotna við að stökkva yfir kubbinn/kistuna eða hestinn (sem er fáránleg og hreinlega hættuleg leikfimiæfing), mér fannst dýnan hörð og vond lykt af henni, gat ekki klifrað í köðlum og fannst óþægilegt að svitna. Alltof lítil fjölbreytni og sveigjanleiki er í íþróttakennslu á Íslandi enn þann dag í dag, amk. í þeim skólum sem ég þekki til, en ég held samt að hesturinn sé úr sögunni og ekki er vel séð lengur að láta foringja kjósa í lið þar sem hinir feitu og einmana voru alltaf kosnir síðastir, niðurlægingin algjör.
Ýmislegt
Afmæli

Réttsýn og rökföst
Jónína Ingibjörg, vinkona mín til margra ára, á afmæli í dag. Til hamingju með daginn, gamla, ég vona að örugglega allra kerlinga elst og ern til hinsta dags.
Svona hljóðar stjörnuspáin þín í dag:
„HRÚTUR 21. mars – 19. apríl. Láttu ekki óþolinmæði ná tökum á þér, þótt hlutirnir gangi ekki jafn fljótt fyrir sig og þú vilt. Lofaðu ekki upp í ermina á þér“.
Páskalamb með adrenalíni
Meðan maður japlar á ólseigum lambaskanka sem fékkst á útsölu í Krónunni, útslitinn og pískaður, í langþráðu páskafríi (sem er rammíhaldssamri þjóðkirkju að þakka, hei, það er kannski sparnaðarhugmynd, að skera niður helgidagana ?)… samanherptur af áhyggjum, sligaður af vaxtabulli og stjórnmálakjaftæði, þá kemur nýtt svindl fram í fjölmiðlum á hverjum degi, mútur og spilling, – sem „btw“ ewnginn ber ábyrgð á. Og borgarfundir á rúv þar sem frasarnir um bjargráð fyrir heimili og atvinnulíf vella fram, Jesús Pétur Jósefsson… Er það furða þótt maður hafi enga trú á pólitíkusum lengur?
Inga fermd
Inga var fermd í gær og lýsti því yfir í kirkjunni að hún ætlaði að leitast við að gera Jesú að leiðtoga lífs síns. Takk allir sem komu í veisluna í Víkingasalnum og glöddu hana með nærveru sinni og góðum gjöfum. M.a. fékk hún myndavél og saumavél, bækur og lausafé. Það var örþreytt dama sem sofnaði í gleym-mér-ei-rúmfötunum frá Diddömmu og dætrum um miðnætti í gær, enn með krullurnar í hárinu.

Fermingarmyndin
Kæruleysi

Bátshræ á Vatnsleiðsluströnd...
Það gengur alltof mikið á. Ég held ég taki Títanikk á þetta allt saman. Ég bara stend í stafninum og breiði út faðminn meðan allt er að fara til helvítis.
Óttar á afmæli
Óttar minn á afmæli í dag, sama dag og Quentin Tarantino og Mariah Carey. Það var fyrir 22 árum sem ég var send í snarhasti með sjúkraflugvél frá Þórshöfn á Langanesi til Akureyrar þar sem drengurinn fæddist, kl. 17.02, 47 cm og 2730 gr eða um 10 merkur. Yndislegur drengur og gleðigjafinn hennar mömmu sinnar. Eldklár húmoristi sem fer sínar eigin leiðir, hann er hrútur.
Landsfundir

Fleiri svona á þing?
Nú funda stóru stjórnmálaflokkarnir hver um annan þveran og svokölluð kosningabarátta er að komast í algleyming hjá öllu batteríinu. Það þarf að tryggja völdin, halda sinni þægilega innivinnu og þeim bitlingum sem rekið hafa á fjörurnar. Þegar ég sé þetta fólk, með hvítþvegnar ásjónurnar, gömlu þreyttu stefnumálin og úldna frasana verður mér bara illt.
Árskort í Hreyfingu
Við Sossa keyptum árskort í Hreyfingu og höfum spriklað þar til málamynda. Nú er árið liðið í aldanna skaut og ég sá í hillingum að ég mundi losna við tæpan 6000 kall af vísakortinu um mánaðamótin. En nei, þá er smátt letur í samningnum og þrír mánuðir bætast við nema ég rifti samningi og greiði riftunargjald! Þetta segir í bréfi frá þessum ræningjum: „Samningur þinn við Hreyfingu er undirritaður: 31.03.08 til 12 mánaða og með 3 mánaða uppsagnarfrest. Binditíminn er til : 31.03.09. Berist uppsögn fyrir 14. dag mánaðar gildir hún frá 1. degi næsta mánaðar á eftir. Telst sá mánuður sá fyrsti af þrem. Uppsögn þín telst frá og með 01.04.09 og verður kortinu þínu lokað 30.06.09. Ef þú kýst að rifta samningi þínum áður en binditíma er lokið þarf að greiða kr. 5.279,- í riftunarkostnað í síðasta lagi 17.03.09. Þá verður korti þínu lokað 31.03.09. … Þegar gengið hefur verið frá riftun munt þú fá staðfestingu á tölvupósti frá samningar@hreyfing.is. Við viljum líka benda þér á að hægt er að framselja samninginn til annars aðila fyrir 5000 kr.“
Hvað finnst ykkur um þetta? Ég er náttúrulega sauður að lesa ekki samninginn almennilega en hvernig á maður að búast við þessu? Hefði ekki verið lágmarkskurteisi og gúddvill við kúnnann að vekja athygli hans á þessu og benda honum á í tíma að segja þyrfti upp árssamningi eftir 9 mánuði? Að árskort sé óvart rukkað í 15 mánuði? Er ekki bara verið að ræna mann og féfletta?
Fúl prófkjör
Ég verð að taka undir með Dreng frænda mínum með vonbrigði vegna niðurstaðna í prófkjörum stjórnmálaflokkanna. Þetta er allt sama, gamla liðið, fúlir uppvakningar og múmíur með sömu lummurnar: taka á vanda heimilanna, koma hjólum atvinnulífsins í gang, krefjandi verkefni, mörg tækifæri og bla bla bla. Þetta fyrirkomulag, flokkar, prófkjör, listar, kosningarbarátta og kjaftæði, er algjörlega úrelt.
Óttar mætir

Einkasonurinn