Bréf til föðurins

 

Kafka, snillingur

Snillingur

 

Franz Kafka (3. júlí 1883 – 3. júní 1924) dvaldi á heilsuhæli í nóvember 1919 og skrifaði þá langt bréf til föður síns sem nú er komið út á íslensku í frábærri þýðingu feðganna Eysteins og Ástráðs (sem rita góðan eftirmála að vanda). Í bréfi þessu gerir Kafka upp bernsku sína, uppeldi og samband við föður sinn (skrifar undir: Franz).

Bréfið er í senn sjálfskrufning Kafka, þroskasaga hans, ákæruskjal og bón um sátt. Snilldartexti, tilfinningaríkur og myndrænn, eins og Kafka er von og vísa. „Ég ítreka í tíunda sinn: ég hefði sennilega hvort eð er orðið mannfælinn, kvíðafullur maður, en þaðan og hingað sem ég er kominn í raun, er langur, dimmur vegur“ (49).

Australia

Á hverfanda hveli?
Á hverfanda hveli?
Í bíómyndinni Australia er margt sem gæti skapað stórmynd, s.s. heimsfrægir leikarar (Jackman og Kidman sem bæði eru áströlsk), flott söguefni og glæsilegt landslag. Margir spennandi þræðir eru í gangi, ástarsaga bresku hefðarkonunnar og kúrekans, ill meðferð á frumbyggjum Ástralíu (fordómar, þjóðarmorð, misnotkun) og heimstyrjöldin síðari. En leikstjórinn, Baz Luhrman (Moulin Rouge m.a.), spilar ekki nógu vel úr þessum þráðum eða handritið er ekki nógu gott. Hér hefði aldeilis mátt sleppa, skerpa og klippa. Tilfinningasemin er líka yfirgengileg, persónurnar grunnar og sólarlagssenurnar aðeins of margar. Jackman, sem er alltaf vampírubani í mínum augum, er frábær hestamaður og hasarkroppur og Kidman er ægifögur en hreyfingar hennar og svipbrigði öll eru ýkt og tilgerðarleg og minna mest á teiknimyndapersónu. Kynblendingurinn Nullah, sem leikinn er af hinum bráðlaglega 12 ára gamla Brandon Walters, er algjört sjarmatröll og vekur mikla samúð með málstað frumbyggja. Myndin Australia er ágætis afþreying en líka sorglegt dæmi um það hvernig fé og hæfileikum er sóað, Hollywood-formúlur og klisjur verða allsráðandi en gullnu tækifæri til að skapa listrænt stórvirki er kastað á glæ.

Rökkurbýsnir eftir Sjón

Smartasta bókarkápan

Smartasta bókarkápan

Þetta er mögnuð bók um Jón Guðmundsson lærða sem uppi var á 17 .öld, ógnvænlegri galdraöld og hjátrúartíma  sem einkenndist af flóknu hugsunarkerfi líkinda og samhverfu manns og náttúru, sárri fátækt alþýðu og yfirgangi hinna ríku, hörðum dómum kirkju og embættismanna og grimmum refsingum. Hér fara bölbænir „Jónasar Pálmasonar lærða“ þegar hann hefur misst konu sína og þrjú barna sinna, ofsóttur og útlægur og  allar bjargir bannaðar:

„Góður Guð, taktu fúlmennið Náttúlf Pétursson, skilaðu mér aftur Hákoni litla sem alltaf var blíður sem stúlka, náðugi Alfaðir, taktu Ara Magnússon í Ögri, skilaðu mér Berglindi handskörpu sem erfði útskurðargáfu föður síns, himneski Skapari, taktu rógmennið séra Guðmund Einarsson, skilaðu mér smádrengnum Klemensi með annað auga mosagrænt og hitt blátt, dýrlegi Herra, taktu þennan skara dusilmenna sem dag hvern lifa fórnarlömb sín, sitjandi í húsbóndastólum og hásætum, kýlandi vömbina með löðrandi feitu kjöti af bústofni sem ól sig á grængresi á engjum sem hirt voru af iðnu, saklausu og trúræknu fólki; hælandi sér af því að hafa haft lífsbjörgina af þessum manninum og hinum og fyrirvinnuna af einni konu og annarri, milli þess sem þeir mega vart mæla fyrir illa fenginni munnfyllinni; njótandi fram í hæstu elli voðaverkanna sem þeir frömdu  á þessum jarðardögum…“ (163-4)

Sissel Kirkebo heillar mig

Mér finnst svo hátíðlegt á jólum að horfa/hlusta á tónleika og messur. Í gær naut ég þess að Sissel Kirkebo söng nokkur jólalög með norskum mormónakór (eru mormónar virkilega svona margir í Noregi? Hvað er málið?). Þegar hún syngur þarf hún ekkert að rembast eða þenja sig, silkimjúk röddin streymir fram algjörlega áreynslulaust að því er virðist og hún brosir sínu blíðasta á háu tónunum. Ótrúlega falleg og góð söngkona.

Alveg frábær

Bráðum koma…

Jólastússið er að ná hámarki. Ég á eftir að kaupa 2 jólagjafir, eitt jólatré, fylla ísskápinn og búa til toblerone-ís og hrísgrjónarönd með karamellusósu sem verið hefur eftirréttur á jólum á mínu heimili frá því ég fæddist (uppskrift frá mömmu). Svo eru smá þrif, tiltekt og skreytingar, bara gaman. En svo eru bara 2 rjúpur komnar í hús við illan leik, mig vantar helst 1-2 í víðbót ef vel á að vera. En veiðitímabilið er víst búið. Ég er búin að fara á bókasafnið og birgja mig upp af bókum og dvd svo ég býst við huggulegum jólum þótt spáð sé rigningu og meiri kreppu.

Vilhjálmur, að eilífu

Sú rödd var svo fögur

Sú rödd var svo fögur

Karl minn færði mér að gjöf tónleikadiskinn með Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Haldnir voru fjölsóttir minningartónleikar um hann í Laugardalshöllinni í október sl. en þá voru liðin 30 ár frá því að hann fórst í bílslysi i Lúxemborg. Hann var fæddur 11. apríl 1945 en er síungur og sígildur. Ég hef verið aðdáandi Vihjálms í áratugi og fór á tónleikana í Salnum sem voru ógleymanlegir. Þessi diskur hefur verið í spilaranum síðustu daga og að öðrum flytjendum ólöstuðum slær Egill Ólafsson í gegn hjá mér með kynþokka og sprengikrafti, dásamlegri rödd og ómótstæðilegri útgeislun. Sjáið og heyrið hann taka Jamaica með stæl, aðeins fýlupokar geta setið kyrrir.

Allt að koma

Sigga min á afmæli í dag. Hún er mikil heimskona og ævintýragepill og setur lit á tilveruna.

Það styttist í jólin. Hér eru jólakortin í ströngu hönnunarferli og  nokkrar jólagjafir hafa verið keyptar (búnar til – not). Búið að kveikja á kertum og fá sér púrtvín, þetta er allt að koma. Annað kvöld verður ýsa með hömsum og á föstudaginn er súpa og kósíheit með vinkonum, svona á þetta að vera.

Mr. Skallagrímsson

Í gær lauk ég við  Móðurlaus Brooklyn eftir Edward Norton. Aðalpersónan Lionel Essrog er móðurlaus og með tourette. Rosalegir kækir og togstreita, bæði andleg og líkamleg. Sagan er hæg og soldið tyrfin en vel og skemmtilega skrifuð, tourettið fær skilning og samúð hjá mér. Við Þura systir skelltum okkur svo í kæruleysiskasti í Borgarnes að sjá Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu þar sem Benedikt Erlingsson endursegir Egils sögu með glæsibrag. Hann er algjört sjarmatröll með kúlurass og stóð sig eins og hetja, hafði áhorfendur í vasanum og fléttaði þá inn í söguna þar sem hentaði. Ég hafði samt á tilfinningunni að hann hefði oft gert betur en í gær. Svo var hið hugljúfa Sommer  á RÚV lokahnykkurinn á menningarneyslu helgarinnar.

Tyrfið tourette

Tyrfið tourette

Frábær ráð

Óvissa er alltaf vond og skapar mikla streitu. En nú er henni eytt og loksins orðið ljóst hvernig stjórnvöld ætla að bregðast við kreppunni. Þjóðráðið er s.s. að almenningur borgi brúsann með lakari lífskjörum, hærri sköttum, rýrari velferð og vaxandi skuldabyrðum. Að hækka verð á matvælum, bensíni og brennivíni (sem hækkar húsnæðislánin í leiðinni), skera niður í menntastofnunum og sjúkrahúsum, þetta eru aldeilis frábær ráð! Þetta er það eina sem þeim dettur í hug þótt setið hafi verið yfir þessu á löngum fundum og menn hafi varist allra frétta íbyggnir á svip. Þurftu  menn virkilega 3 mánuði til að finna þetta út,  var þetta ekki fyrirsjáanlegt? Þessi niðurstaða hlýtur að kalla á að þeir stóðu að öllu klúðrinu verði kallaðir til ábyrgðarinnar sem þeim var treyst til og fengu greitt fyrir að bera á sínum tíma, eignir þeirra teknar upp í kreppuskuldir og þeir sinni síðan samfélagsþjónustu í nokkur ár. En hvernig á að knýja það fram? Hafa stjórnvöld styrk og ekki síst sómatilfinningu til þess? Höfum við, almenningur, þor og dug til þess að heimta það? Eða sitjum við svekkt og fúl við eldhúsborðið og röflum, og höldum svo áfram að láta fara illa með okkur?

Bella og svarta kaffið

Nýja platan (diskurinn) hennar Ragnheiðar Gröndal, Bella and her black coffe, er einstaklega ljúf og falleg. Ég þurfti að hlusta á hana nokkrum sinnum til að meðtaka hana en ég er mikill aðdáandi Vetrarljóða. Ragnheiður slær á milda jazztóna og syngur með sinni afskaplega fallegu rödd (allt á ensku…) og Guðmundur Pétursson, snillingurinn sæti með flottasta nef og krullur sem til eru, spilar undir. Meiriháttar kósístemning í skammdeginu.

image