Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli

Afi minn, Einar Kristjánsson rithöfundur, var fæddur 26. október á Hermundarfelli í Þistilfirði árið 1911 og lést þann 6. júlí 1996. Hann var bóndi á Hermundarfelli og Hagalandi og starfaði síðan sem húsvörður við Barnaskólann á Akureyri. Hann og amma, Guðrún Kristjánsdóttir, f. 16. ágúst 1917, giftu sig 11. september 1937. Ritstörfum sinnti hann meðfram fullu starfi sem húsvörður og hann og amma áttu fimm börn en þau eru: Angantýr, Óttar, Bergþóra, Hildigunnur og Einar Kristján. Hildigunnur lést árið 1987 og Einar Kristján 2002. Barnabörnin urðu 15 en Einar Angantýsson lést 1983, fjögurra ára gamall. Barnabarnabörnin eru 36. Afi var hagyrðingur góður, mikill músíkant og lék m.a.s. inn á hljómplötu. Hann var vinsæll upplesari og skemmtikraftur á árshátíðum og samkomum af ýmsu tagi. Lengi sá hann um vinsælan útvarpsþátt á rás eitt, Mér eru fornu minnin kær.

Platan hans afa

Platan hans afa

Eftir hann liggja eftirtalin skáldverk (smásögur o.fl.):

Septemberdagar 1952
Undir högg að sækja 1955
Dimmir hnettir 1959
Gott fólk 1960
Metnaður og mannvirðingar 1960
Blóm afþökkuð 1965
Eldrauða blómið og annarlegar manneskjur 1975
Þorraspaug og góugleði 1978

Einnig ritaði hann ævisögu sína (Skjaldborg gaf hana út ásamt safni verka hans):

Fjallabæjarfólk 1979
Ungs manns gaman 1980
Lengi væntir vonin 1981

Afi segir í niðurlagsorðum síðasta bindis ævisögu sinnar en þá er hann nýlega orðinn sjötugur:

„Æviár  mín hafa liðið með óðfluga hraða, að mér finnst. Vera má að það sé vegna þess hversu tilveran hefur verið mér veitul á lífsgæði þau, sem mestu máli skipta, en til þeirra telst hamingja í hjúskapar- og fjölskyldulífinu. (…) Þó að mín skráða ævisaga sé ekki misfelllulaus af minni hálfu, þykir mér vænt um hana. Ég horfi með eftirvæntingu til þess að lifa þá ævisögu, sem ég á enn óskráða, og mun aldrei kvíða endalokum hennar“.

Nú er ég að reyna að skrá hann á Wikipediu. Á einhver góða mynd af afa?

Ólafur

Hugsuður og handboltakappi

http://galerie.best4sports.de. Photpgrapher: Armin Kübelbeck

Mikið var gaman að hlusta (og ekki síður að horfa) á Ólaf Stefánsson í hinum frábæra þætti Sunnudagskvöldi með Evu Maríu. Pælingar hans um heiminn og okkur sjálf eru svo skemmtilegar og vitrænar og vöktu áhuga hjá mér á að lesa mér meira til, m.a. um fjórða valdið og tilvistina yfirleitt, reyna að hugsa sjálfstætt og hætta að láta segja mér hlutina, blekkja mig og deyfa með fjölmiðlafári og bulli. Áfram Ólafur!

Sláturhúsballið

Nú líður að árshátíð Átthagafélags Þórshafnar og nágrennis sem oft er nefnd „Sláturhúsballið“ manna á meðal. Stuðið verður annað kvöld og hefst með fordrykk kl. 19. Miðasala hefur gengið vel að sögn fulltrúa skemmtinefndar og verður mikið um dýrðir eins og vanalega. Þriggja rétta kvöldverður og flott hljómsveit. Hápunktur kvöldsins er jafnan hátíðarræðan og fréttapistill frá Þórshöfn sem Heiðrún Óladóttir sér um síðan Jóna Þorsteins flutti. Þá er veglegt happdrætti og ýmis skemmtiatriði. En skemmtilegast er þó að hitta gamla Þórshafnarbúa og nærsveitunga. Þetta er sautjánda skiptið sem þessi samkoma er haldin og alltaf mæta um og yfir 100 manns. Það sýnir vel samstöðuna sem ríkir meðal brottfluttra Þórshafnarbúa, stoltið af upprunanum leynir sér ekki.

Fagurt um að litast

Fagurt um að litast í þorpinu

Sektin og skömmin

Nú eru margir Íslendingar reiðir og bitrir. Sem vonlegt er, hér á landi er allt í tómu tjóni í efnahagsmálum. Öllu er snúið á haus, hinir ráðdeildarsömu tapa sparnaði og lífeyri en fjárglæframennirnir stinga af með þýfið og þurfa hvorki að skila einni einustu krónu eða bæta skaðann á nokkurn hátt. Þeir sem höfðu lágu launin og voru trúir yfir litlu borga brúsann næstu 150 árin og hafa enga von um kjarabætur á næstunni meðan peningasukkarar á ofurlaunum og makráðir stjórnmálamenn með feitan eftirlaunadíl setja upp sakleysissvip, halda því hiklaust fram að þeir séu ekki sökudólgar og vilja engar nornaveiðar. Og við látum þetta yfir okkur ganga með gamla viðhorfinu „þetta reddast, við komumst í gegnum þetta“.

Hér er þrusugott blogg sem allir ættu að lesa: Lára Hanna, skrifar um mótmæli og íslenska þjóðarsál.

Ég er hætt að hlusta á þreyttar klisjur  og undanbrögð stjórnmálamanna í fjölmiðlum en er að átta mig á því að ef enginn af þessum glæponum er látinn taka ábyrgð eða sæta refsingu fyrir prettina og hrun íslenska fjármálamarkaðarins er ég meðsek í augum heimsins, stimpluð svikari eins og gróðapungarnir. Íslenskir námsmenn og ferðamenn erlendis hafa fengið að finna fyrir því á síðustu vikum, þeir mæta fjandskap og fyrirlitningu. Ímynd lands og þjóðar hefur beðið óbætanlegt tjón, sennilega meiri en við gerum okkur almennilega grein fyrir núna. Ég er ekki bara neydd til að borga reikninginn með erfiði mínu og striti það sem eftir er ævinnar heldur sit ég líka uppi með skömmina.

Helgi Hóseason, mótmælandi Íslands
Helgi Hóseason, mótmælandi

Dómar um bækur

Nú er ég að gera tilraun með að setja inn ritdómana mína sem birst hafa í Mbl undanfarna daga. Það er ástæðan fyrir því að ég sit sveitt yfir ráðgátum wordpress.com þótt blogspot sé hundrað sinnum einfaldara. Allt snillingnum Dreng að þakka, hann benti mér á undraforritið OpenOffice.org og aldrei kemur maður að tómum kofanum hjá honum. Hér er s.s. þrír nýjustu dómarnir sem birst hafa í Mogganum undanfarna daga: Um eðlisfræðireyfarann Uppgötvun Einsteins, metsölubók sem heitir Saga ástarinnar og þykka ameríska og dramatíska skáldsögu, Dóttir myndasmiðsins (bókin er rúmar 500 síður). Getiði opnað þetta?

Blandað í svartan dauðann

„Þetta kvenfólk, kvað það er skrýtið. Að hún skuli geta látið hann vera að hnoða sig. Svei mér ef mann klígjar ekki. Sjá hann þjóta upp bryggjuna eins og lífið lægi við. Sá held ég hafi komið við hana! Ég vildi bara að ég ætti annað eins atkvarf. Maður hefur ekki svo sjaldan maðkað sig á beddanum hjá henni í landlegum, látið fara vel um sig hjá henni í velgjunni og drukkið úr mörgum bollanum. Ég man þegar ég var þar um jólaleytið að glápa á hana. Það var notalegt og hlýtt hjá henni eins og vant var. Flugnasuð og snark í eldavélinni og ýngsti króinn var að skríða fram á gólfið hjá henni. Já, gott væri að vera eins og maður og eiga kvinnu og nokkra gríslinga. Það er munur en að vera alltaf í suddanum. Kvað um það, kötturinn var að mala undir eldavél og maður var eins og um borð, þurfti aldrei að vera með pjatt hjá henni og hrækti í kattarskálina, velti sér svo á beddanum hjá konunni, horfði á hana framí ráskinu og Stjáni hafði skroppið eittkvað frá í bili. Skyldi hann nú hafa komið nálægt henni! Alveg gengur fram af manni að hugsa um kvað þetta kvenfólk er tjúllað öðrum þræði, þótt þetta séu fremur englar en mannlegar verur. Að hún skuli leggja elsku á hann Stjána, það gengur alveg fram af mér. En það er nú samt ekki um að villast…“

Steinar Sigurjónsson 2008. Blandað í svartan dauðann, bls. 40

Ég kem af fjöllum

Veðrið var svo gott á laugardaginn að við Brynjar ákváðum að fara í enn eitt ferðalag á húsbílnum (japönsk jen og svissneskir frankar). Við ákvaðum að fara stutt, ókum upp í Mosfellssveit og þaðan í Móskarðshnjúka,  líparítfjöll austan við Esjuna, vinsæl gönguleið og fjallganga. Við gengum upp bratta hnjúkana í sól og blíðu (ca 800 mys), sveitt og móð en afskaplega ánægð með okkur. Enginn var þarna á ferli, náttúrufegurð mikil og útsýni gott auk yndislegrar kyrrðarinnar. Í fjallshlíðunum var krökkt af berjum og rjúpur flögruðu um í hópum. Um kvöldið voru grænmetisbuff hituð á pönnu og saffranhrísgrjón soðin og matnum var skolað niður með einstaklega góðu rauðvíni, Glen Carlou 2005 Tortoise Hill Red. Í myrkrinu blikuðu stjörnur og norðurljós en ljóssúlan í Viðey reis þráðbeint upp í loftið og minnti okkur á mikilvægi ástar og friðar í heiminum.

Ást og friður

Ást og friður

Jákvæðni

Ég vona að jákvæðar breytingar verði hér á landi og í heiminum öllum í kjölfar kreppunnar. Að efnis- og neysluhyggjan fjari út og inn komi önnur gildi, manneskjuleg og fjölskylduvæn. Að mennta-, heilbrigðis- og velferðarkerfi blómstri og áhersla verði lögð á að skila góðum og heilbrigðum þegnum út í samfélagið. Að öllu fólki líði vel og komi vel saman burtséð frá stétt og stöðu, trú eða þjóðerni. Að við áttum okkur á því hvað heilsan er dýrmæt og fjölskyldu- og vinabönd mikilvæg. Að gömul gildi verði aftur höfð í heiðri. Að samlíðan með öllu sem lífsanda dregur breiðist út. Að samvinna komi í stað samkeppni, nýjar hugmyndir fæðist, menn horfi inn á við, taki til í sálarkirnunum og finni hjarta sitt slá í takt við alheiminn. Þá er þetta kreppufargan ekki til einskis.