Klovnen í gær, hann getur nú alveg drepið mann!
Í kvöld er ég að fara á námskeið um Faust, þann glóp og trúð sem seldi sálu sína.
Klovnen í gær, hann getur nú alveg drepið mann!
Í kvöld er ég að fara á námskeið um Faust, þann glóp og trúð sem seldi sálu sína.
Ævisaga Vigdísar Finnbogadóttur er hátt á fimmta hundrað síður, með myndum og heimildaskrá. Það er gaman að lesa hana, hún er vel skrifuð og skemmtileg. Bókarkápan er hins vegar hræðileg, afar vond ljósmynd hjá JPV. Gleðilegt að fyrirmyndarkonan og forsetinn ástsæli skuli hafa verið með minnimáttarkennd sem unglingur og þjáðst af freknum og feimni, óöryggi og fullkomnunaráráttu og sem ung kona hafi henni fundist hún hafa klúðrað öllu lífi sínu, hætti í skóla og skildi við eiginmanninn. Þetta er samt eins konar glansmynd, ekki fær maður neitt að vita t.d. um uppruna dótturinnar, leyndarmálið bak við eilífa æsku Vigdísar (lýtaaðgerðir?) eða um ástarlíf hennar – enda kemur manni þetta náttúrulega ekkert við þótt mann blóðlangi að vita það. Ritdómur á leiðinni í mbl en birtur hér fyrir mína dyggu lesendur.
Mig hefur langað í þennan kertastjaka í nokkur ár en alltaf fundist það bruðl að spandera í hann, ekki síst eftir að kreppan skall á. Svo á ég líka fullt af kertastjökum. En nú þegar ég hef fengið nokkra þúsundkalla útborgaða fyrir ritdóma og nefndarstörf ákvað ég að láta það eftir mér að kaupa mér hann, á uppsprengdu verði í Epal. Nú trónir hann í stofunni og ég hef ekki af honum augun.
Mér finnst Ásdís Rán algjört æði í Lottó-auglýsingunum. Hún gengst upp í ímyndinni og gerir botnlaust grín að henni um leið. Þetta kemur snilldarvel út.
Þá hefur dómnefndin góða lokið störfum í bili. Fimm bækur voru tilnefndar í dag um leið og íslensku bókmenntaverðlaunin. Það má heyra hér (undir lok Víðsjár).
Tilnefningar:
Elísa Björg Þorsteinsdóttir – Málavextir
Guðbergur Bergsson – Öll dagsins glóð
Kristján Árnason – Ummyndanir
María Rán Guðjónsdóttir – Kirkja hafsins
Sigurður Karlsson – Yfir hafið og í steininn
235g döðlur
1 tsk matarsódi
120g mjúkt smjör
5 msk sykur
2 stk egg
3 dl hveiti
½ tsk salt
½ tsk vanilludropar
1 1/3 msk lyftiduft
Þeytið smjör og sykur vel saman og bætið eggjunum í, einu í senn. Þeytið vel og blandið síðan hveitinu, saltinu og vanilludropunum saman við. Bætið lyftiduftinu út í. Setjið döðlurnar í pott og látið vatn fljóta yfir. Látið suðuna koma upp, slökkvið á hitanum og látið döðlumaukið standa í pottinum í 3 mínútur. Bætið matarsódanum útí. Hellið ¼ bolla af döðlusoðinu út í og hrærið varlega. Blandið öllu döðlusoðinu útí að lokum. Smyrjið u.þ.b. 8 cm hátt lausbotna form, sem er 24 cm í þvermál, og setjið deigið í formið. Bakist í 30 – 40 mín við 180°C. Berið fram með þeyttum rjóma og karamellusósu:
120g smjör
115g púðursykur
½ tsk vanilludropar
¼ bolli rjómi
Soðið við vægan hita í 3 mínútur. Hrærið í á meðan.
Ég fór á hinn stórskemtilega vef Hagstofunnar og fann út eftirfarandi:
Á Íslandi búa 886 sem eiga afmæli þann 7. október, þar af 17 sem fæddust þann 7. október 1963
Hverjar eru líkurnar á að 2 x 071063 hittist og felli hugi saman?
Safn portúgalskra ljóða frá 1900-2008 í snilldarþýðingu Guðbergs Bergssonar:
ÞAÐ ÞARF ENGINN AÐ SEGJA MÉR
Það þarf enginn að segja mér
að aspir veki veruleikann með nekt sinni
þegar sólin umvefur þær, stoltar, einmanalegar,
hnarreistar við vatnborðið.
Úr fjarlægð nálgast menn með báta
Og vaða fljóið upp í klyft.
Folarnir hlaupa frjálsir um eyjarnar
en fara síðan um stíga
með ólar gyrtar um kviðinn
João José Cachofel (1920-1982)
GEITURNAR
Alls staðar þar sem er hálent og jörðin hrjóstrug eru geitur, svartar, afar kvenlegar að skoppa af einum steini á annan. Frá því ég var lítill hef ég verið hrifnn að þessum gálum. Ég átti eina, afi gaf mér hana og kenndi mér að nota hana þegar ég væri þyrstur, þrútnu volgu júgrin sem hendurnar léku við mjúklega áður en munnurinn færðist nær, svo mjólkin spýttist ekki um andlitið, hálsinn, brjóstið, og jafnvel, eins og stundum gerðist, hver veit nema að ásettu ráði, um litla ilmandi gatið. Geitin hét Malta og var hesturinn minn og hver veit nema fyrsta konan.
Eugénio de Andrade (1923-2005)