Himinninn yfir Þingvöllum

Lauk í gær við Himininn yfir Þingvöllum eftir Steinar Braga. Þrjár langar smásögur sem snúast um einmana  fólk, firrt og geggjað. Flottar sögur um vonleysi, heimsendi, glötun. Einkum var ég hrifin af síðustu sögunni sem birtir myrka framtíðarsýn, sjórinn er gufaður upp, borgirnar auðar og varla nokkurt líf að sjá. Þrjár manneskjur þrauka á borpalli í miðri eyðimörk, týndar og tröllum gefnar. Miðsagan er um kærustuparið Davíð og Önnu, átakanleg saga, full af tilvistarspeki og furðum. Fyrsta sagan er um hinn einræna Emil sem fær ókunna stelpu í heimsókn til sín og hún setur líf hans úr skorðum. Þetta er flottur texti, persónurnar vel útfærðar og spennan á milli þeirra mögnuð, andinn drungalegur og ógnvekjandi. Sannkallaðar hryllingssögur.

Gamla árið

2010, ár tígursins skv. kínversku tímatali

Árið 2009 var mörgum þungt í skauti. Þegar ég lít um öxl er mér efst í huga erfið veikindi foreldra minna á árinu. Svo er kreppan að  herða takið og áhrifa hennar farið að gæta verulega í samfélaginu. Ég sé soldið eftir að hafa ekki verið duglegri að halda sambandi við vini og ættingja á árinu. En það gerðist margt gott 2009. Fermingardagur Ingu var frábær og Óttar sneri heim frá útlöndum. Húsbílareisan í sumar var skemmtileg, endalaus sól og sumar á hinum fögru Vestfjörðum, Snæfellsnesi og víðar. Endurfundir nemenda í Barnaskóla Íslands á haustdögum voru stórskemmtilegir, Budduleikar með frænkum mínum lifa lengi í minningunni, stórafmæli vina og ættingja bar upp á árið,  sumarbústaðaferðir, matarboð og leikhús lyftu andanum ásamt miklum bóklestri, samveran við systur mínar er góð og mikilvæg. Tíkin Arwen varð heimilisföst hjá okkur og er mikill gleðigjafi. Ég hlakka til ársins 2010. Eftir því sem aldurinn færist yfir verður manni ljósara að mikilvægast af öllu í lífinu er góð heilsa, fjölskylda og vinir. Gleðilegt nýtt ár tígursins!

Maður er manns gaman

Í kveld er samkvæmi. Börn barna ömmu og afa á Akureyri ætla að hittast ásamt mökum sínum og skemmta sér saman. Við erum ss systkinabörn. Allt er þetta bæði fallegt og skemmtilegt fólk. Það er mikilvægt nú sem aldrei fyrr að halda tengslum við ættingja sína og vini, rækta sambandið og njóta samvistanna. Þann 3. janúar er svo annað samkvæmi þar sem afkomendur ömmu og afa í Ásgarði gera sér glaðan dag. Það er líka bæði fallegt og skemmtilegt fólk. Svona er maður af góðum ættum.

Jólahundurinn

Arwen hefur staðið sig vel á jólunum, notið félagsskaparins við familíuna og útiverunnar en hún hefur m.a. farið í Heiðmörk og  Laugardalinn til að viðra sig og okkur. Endalaust matarstúss finnst henni samt doldið þreytandi þar sem hún fær bara reykinn af réttunum og svo sitt hundafóður… að vísu hafa dottið ofan í hana rjúpnalæri, strútssneið og andarbringubiti auk annarra kræsinga þegar enginn sér. En hvernig á maður að haga sér með hana á áramótunum, verður hún ekki ægilega hrædd við flugeldana, elsku litla músin?

Avatar

Brugðum okkur í bíó á Avatar, teikni/tölvu/leikna mynd sem gerist í fjarlægri framtíð á plánetunni Pandóru þar sem Navi-þjóðin hefur búið öldum saman í sátt og harmóníu við náttúruna en grimmir og gráðugir jarðarbúar vilja komast yfir auðlindir hennar. Mögnuð mynd frá James Cameron sem klikkar ekki, fær klikkaðar hugmyndir og gerir klikkaðar myndir. Frábær skemmtun, vísindi og rómantík, furðudýr og geimverur, sprengingar og bardagar, flottar persónur, skemmtilegt handrit (sennilega mikið klippt út því sums staðar voru gloppur) og hvílíkt hugmyndaflug.

Engin jól eru án jólaboða

Við systur skiptumst á að halda  jólaboð á annan í jólum fyrir stórfjölskylduna þar sem mamma og pabbi eru heiðursgestir. Í ár var boðið hér í Hrauntungu og var glatt á hjalla. Gunna sá um glæsilegan forrétt, Brynjar eldaði dýrindis nautasteik með eðalsósu eftir kúnstarinnar reglum og Þura bauð uppá berjaís undir heitum marenshjúpi. Svo var farið í pakkaleikinn fræga og gantast fram á kvöld. Allir voru mættir nema Óttar V sem er í vellystingumí sveitinni en Arnþór Brynjarsson sá um að halda uppi stuði í hans stað. Hér er uppskrift af kartöflumús sem var í boðinu og er einstaklega jólaleg (sjá fremst á myndinni í ferköntuðu eldföstu móti):

JÓLALEG KARTÖFLUMÚS MEÐ PEKANHNETUM

3-4 meðalstórar sætar kartöflur (1 kg), 70 g smjör, 1 msk púðursykur, 1 tsk kanell, negull á hnífsoddi og slatti af pekanhnetum. Aðferð: Skræla kartöflurnar og skera í bita, sjóða í léttsöltu vatni í 10-15 mín. Stappa með gaffli eða hræra örstutt í Kitchen Aid. Blanda saman bræddu smjöri, púðursykri, kanel og negul (kanli og negli?) og hræra útí kartöflumúsina. Setja í eldfast mót, strá pekanhnetum yfir og baka í 10-15 mín, ca. 200°C.

Aðventa

Í dag komu góðir gestir í Hrauntungu. Magnús „litli“ og Inga átu og skreyttu piparkökur og við Sossa þömbuðum glögg, pabbi kom með vísnagátur og gamanmál og Gunna og fjölskylda litu inn en þau voru í kaupstaðarferð. Ég var búin að baka áströlsku bombuna sem var étin upp til agna. Svo skruppum við Inga um sjöleytið til Steinunnar Har og Grétars í dýrindis kjúklinga- og grænmetissúpu. Um kvöldið var afmæliskaffi á Vatnsenda hjá Bryndísi Heiðarsdóttur. Svona er aðventan, allir á ferð og flugi, líf og fjör.

Mæðgur á góðum degi

Þá er búið að skrifa jólakortin í ár, við kertaljós og jólasálmasöng.  Þeir ættingjar og vinir sem eru í náðinni fá risastórt kort með fermingarmynd af Ingu, glóandi af gleði og bjartsýni. Þegar ég var á hennar aldri var ég frekar týnd og vissi ekkert í hvorn fótinn ég átti að stíga. Veit það varla enn…