Ég komst að því í gær að við Þura systir erum báðar svona týpur sem sjá um að skreyta fyrir jólin á kennarastofunni.
Djúpið
Við Sossa fórum í Borgarleikhúsið í gær að sjá Djúpið, eftir Jón Atla Jónasson. Þetta er einleikur sem gerist á hafi úti svo Sossa var á heimavelli. Það eru furðu fá íslensk leikverk sem fjalla um eða tengjast sjómennsku og útgerð, einn af aðalatvinnuvegum þjóðarinnar (Brim, Hart í bak, Hafið…). Ingvar E. Sigurðsson (E-ið stendur fyrir Eggert) var algjörlega frábær, það sem maðurinn getur leikið! Fyrir utan hvað hann er fallegur, með frábæra framsögn og rosalega útgeislun þá leikur hann svoleiðis af lífi og sál að maður sat í lokin skjálfandi með gæsahúð í nokkrar mínútur áður en klappið braust út.
Flugstöð og fjárdráttur
Eru menn í alvöru að tala um að byggja nýja flugstöð í Reykjavík? Á forsíðu Fréttablaðsins í dag segir að hún muni kosta einn milljarð. Hann mætti nota í margt nytsamlegra. Í blaðinu segir að „aðstaða innanlandsflugsins sé óviðunandi“ og að stöðin verði létt og síðar megi auðveldlega fjarlægja hana. Til hvers þá að byggja hana fyrir alla þessa peninga? Og hvernig er aðstaðan óviðunandi, ætlar einhver að dunda sér þessari flugstöð meira en hann þarf? Er þetta ekki bara bruðl og óráðsía? Og annað af forsíðunni: „Fyrrverandi starfsmaður Kaupþings kærður fyrir hundruð milljóna fjárdrátt. Hafði fé af viðskiptavinum“. Hvernig er glæpur starfsmannsins öðruvísi en bankastjóranna sem engum kærum sæta? Voru þeir ekki líka að ræna viðskiptavinina?
Knús
Um helgina verður aðallega lesið í bókum enda þarf ég að standa skil á tveimur ritdómum og nokkrum þýðingum fyrir mánudag. Það verður smá tími gefinn fyrir gönguferð, góðan mat, tiltekt og kannski smá knús. Myndin var tekin í Heiðmörk um síðustu helgi í sól og skítakulda, við Arwen skemmtum okkur vel. Hún er mikið knúsuð, þessi elska.
Kirkja hafsins
Kirkja hafsins er margverðlaunuð skáldsaga eftir Ildefonso Falcones. Ég opnaði þessa bók full fordóma (nafnið er klént) en hún kom skemmtilega á óvart. Sagan gerist á 14. öld, lénsherrarnir arðræna leiguliða sína, halda þeim í lífstíðaránauð, hirða arðinn af striti þeirra og nauðga kvenfólkinu. Feðgarnir Barnet og Arnau komast til Barcelona við illan leik og þá upphefst mikil og soldið langdregin hörmungarsaga af baráttu við óréttlætið. Það voru ekki færri illmenni á fjórtándu öld en nú, alls staðar verið að svindla, græða og svívirða. María Rán Guðjónsdóttir þýddi þennan doðrant beint úr spænsku og gerir það bara býsna vel.
Hárprúð afkvæmi
Þýðingar
Yfir hafið og í steininn
Þetta er soldið skondin saga um landabrugg og leynilega fólksflutninga. Persónurnar eru skemmtilega æðrulausar og heilsteyptar, prinsippfólk sem er ekki að eltast við eitthvað rugl. Minnir doldið á Heinesen finnst mér. Höfundurinn Tapio er Íslandsvinur og þýðing Sigurðar Karlssonar bara býsna góð. Hér er bókin á finnsku fyrir áhugasama.
Býfluga
Býfluga(Little Bee í USA, The Other Hand í UK) er mögnuð saga um samnefnda stúlku sem hefur flúið frá heimalandi sínu, Nígeríu, til Bretlands. Hún leitar á náðir Söru, blaðakonu sem nýlega hefur misst mann sinn vegna atburða sem tengjast Býflugu og er þar að auki í tómu tjóni vegna framhjáhalds o.fl. Víð á Vesturlöndum höfum ekki grænan grun um allan þann hrylling sem viðgengst í Afríku, mannréttindabrot, morð og nauðganir eru daglegt brauð. Samt eiga Vesturlönd sök á þessu með botnlausri græðgi sinni, þau hafa sölsað undir sig auðlindir Afríkubúa, t.d. olíu og demanta, og ala á ófriði til að geta selt þeim vopn. Sorgarsaga, hörkuspennandi, ekki fyrir viðkvæmar sálir.
Votlendi

Las óvenjulega bók um daginn, Votlendi (Feuchtgebiete) eftir þýska skáldkonu, Charlotte Roche. Bjarni Jónsson þýddi, sennilega úr ensku. Þetta er hressilega hispurlaus saga, botnlaus ádeila og geðveiki, en þó er smáglóra í ruglinu. Algjörlega kynósa saga en ekki samt klám. Líkaminn til umfjöllunar, með öllum sínum opum, úrgangi og vessum og engin fjöður dregin yfir það. Er þetta femínistabók, kvenfrelsisbók? Tja það er spurning. Konur hafa verið óhreinar frá dögum Adams og Evu, þær eru undir endalausri pressu með að verða hreinar, fallegar, ungar, stæltar og kynþokkafullar, þær eiga að líta vel út og ilma vel. Sjá ágætis umfjöllun hér. Bókin er skrifuð gegn öllu hreinlætinu, sótthreinsuninni, sýklahræðslunni, dauðhreinsuninni. Tíðablóðið er mas blátt í auglýsingunum en hér lekur það um allt, til höfuðs dömubindaiðnaðinum. Hér er enginn tepruskapur, hressilegt talmál, tekið á tabúum. Hispursleysið skilar sér í þýðingunni, engin væmin orð eins og samfarir, bakhluti og sköp heldur eru hlutirnir kallaðir sínum réttu nöfnum. Bullandi gróteska, líkamsvessar, öll op í gangi! Frábært! En er söguhetjan fórnarlamb líkamsdýrkunar eða frjáls (snargeggjaður) gerandi? Hún er lítil, óörugg og einmana þrátt fyrir allt fjörið í kynlífinu og þráir innst inni sameiningu fjölskyldunnar. Gaman að þessu.

