Spil með handunnum myndum Katrínar Björgvinsdóttur. Myndirnar, sem eru um 2 m á hæð í frumgerðinni, eru af Katrínu og eiginmanni hennar og eru tileinkaðar þeim Íslendingum sem með iðjusemi hafa byggt þetta land.
Ýmislegt
Sumarmynd
Landakot
Faðir minn dvelur nú á Landakotsspítala sér til hressingar og heilsubótar. Þar er starfsfólkið afar alúðlegt og umhverfið notalegt og mikið lagt upp úr að fólki líði vel. Hann er í góðu herbergi með útsýni yfir vesturbæinn.
Fimmtugur
Sumarfríið búið
Sushi
Dalvíkin er draumablá
Nú þegar verslunarmannahelgin nálgast rifjast upp fyrir mér ferðalög með fjölskyldunni forðum daga, í vw-bjöllu sem alltaf var troðfull af farangri, vegaryki og sígarettureyk. Við þrjár systurnar vorum alltaf bílveikar en til að hressa okkur við voru ýmsir leikir í boði, gátur, sögustundir og landafræðikennsla og alltaf var mikið sungið í bílnum. Meðal þess vinsælasta var einn af fjölmörgum lagatextum sem pabbi hefur samið í gegnum árin. Þessi texti er um Dalvík við lagið Love me tender, en þá var hann skólastjóri við Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. Í hvert sinn sem farið var í kaupstaðarferð út á Dalvík frá Húsabakka var þetta lag alltaf sungið hástöfum og margoft síðan og það minnir mig á ljúfa bernskudaga.
:;:Dalvíkin er draumablá
og dýrðleg til að sjá:;:
Ofar stendur Upsafjall
eins og gamall kall
:;:Sólin skín á stein og stekk
og stúlku í fyrsta bekk:;:
Sjóferð
Gullkorn
Ég sakna stundum míns fyrra starfs sem kennari en það líður hjá þegar ég hugsa til ritgerðasmíða nemenda. Ég rakst um daginn á nokkur gullkorn úr ritgerðum fyrrum nemenda minna:
…meðan faðir hennar liggur rænulaus í gröfinni
Höfundur talar í þriðju persónu eins og myndavél
Þá festist hann milli steins og sleggju
Danir sviku Íslendinga með mauróttu mjöli
Svo fór hann á eigin fótum í skóla á Bessastöðum
Þegar Salka Valka og Sigurlína komu til Óseyrar voru allar eigur þeirra í einum plastpoka







