Það er ósmekklegt að tala um að Bin Laden hafi verð drepinn eða felldur eins og sagt er í fjölmiðlum burtséð frá hvaða voðaverk hann hefur drýgt. Ísbjörninn sem gekk á land fyrir vestan var drepinn / felldur en þessar sagnir notar maður ekki um manneskjur. Bin Laden var myrtur í rúmi sínu.
Ýmislegt
Frænkur
Prúðbúnar Buddur, hver annarri fegurri og skemmtilegri. Við erum 13 á myndinni, tvær frænkur vantar. Við erum afkomendur fimm systkina frá Þórshöfn á Langanesi, þeirra Skúla, Diddu, Óla, Jónu, og Lillu, og höfum alla tíð haft samgang okkar á milli. Við erum bestu frænkur og vinkonur sem hittumst af og til í heimahúsum og höldum svo veglega árshátíð saman ásamt bæði gömlu Buddunum og nokkrum heiðursbuddum. Þetta er óendanlega dýrmæt vinátta og frændsemi sem við ræktum af alúð ævina á enda.
Buddur
Þá er komið að hinum árlega hittingi hjá Buddum. Mikið er maður lánsamur að eiga svo margar fallegar og skemmtilegar frænkur og vinkonur um land allt. Við verðum 15 kellur saman í stanslausri gleði og geimi alla helgina.
Vinkonur
Uppdubbuð
DV
Við erum með DV í prufuáskrift. Sumt er beitt og annað heitt í blaðinu. Þar eru svaðalegar fréttir af einelti, vændi og ofbeldi, slúður af frægu fólki og æsisögur af venjulegu fólki sem er órétti beitt (fær ekki að taka dót úr gámi sem er ekki á nafni viðkomandi, sviptur bótum af því hann sendi hótunarbréf til vinnumálastofnunar o.fl.). Ekki eru allar fréttirnar vandaðar eða vel skrifaðar en þó eru gullmolar innan um. Safaríkustu fréttirnar eru uppljóstranir um sukk og svindl og nákvæmar útlistanir á hvernig nafngreindir menn sölsuðu undir sig og drógu að sér eignir og fé fyrir og í skjóli hrunsins en aðrir fjölmiðlar virðast ekki sinna því að neinu marki nú orðið. Og það sem verst er, margir eru orðnir dofnir fyrir fréttum af milljörðum sem gufuðu upp og hafa sætt sig við að borga reikninginn, orðnir svefngenglar og þrælar. Áfram DV!
Óttar (24)
Frumburður minn og einkasonur, Óttar, á afmæli í dag, hann fæddist á FSA kl. 17.02 fyrir tuttugu og fjórum árum og er alveg dæmigerður hrútur. Til hamingju!





