Þá er sautján daga árlegu úthaldi í húsbílnum lokið. Að þessu sinni var það hið fagra Snæfellsnes og Landmannalaugar. Þessa staði er hægt að heimsækja aftur og aftur. Veðrið var gott mestallan tímann (jákvæðnin í öndvegi). Planið um að hreyfa sig á hverjum degi gekk ekki alveg eftir en það eru nokkrir dagar eftir af sumarfríinu og kortið mitt í Hreyfingu hefur verið alveg óhreyft alllengi. Ferðin var frábær en það var gott að komast heim í mjúka bólið sitt, í heita sturtu og sjónvarpssófann, þrátt fyrir flögrandi húskanínur, andfúlan ísskáp og skrælnuð sumarblóm. Nú er að söðla um, bara útsölur, pinnahælar og gloss, heimsóknir og kaffihúsahangs framundan. Ferðasagan 2011 birtist hér bráðlega, reynið að hemja ykkur, lesendur góðir, meðan ég græja hana og set inn myndirnar.
Ýmislegt
Ójafn leikur
Mér finnst undarleg þróun hafa orðið á þessu Strauss-Kahn-máli. Það er auðvelt að koma fyrir fölsuðum sönnunargögnum og gera andstæðing ótrúverðugan ef maður á peninga og volduga vini. Er hér ekki ójafn leikur, annar vegar ríkur og frægur hvítur karl í valdastöðu og hins vegar fátæk herbergisþerna, dökk á brún og brá? Á hún nokkra möguleika gegn karlinum?
Sigga
Undir berum himni
Í Grásteinsholti
Heimsókn til Gunnu og Halla er alltaf ánægjuleg, heilmikið hægt að hjálpa til í húsinu sem þau eru að byggja, höfðinglegar móttökur og skemmtileg samvera í sveitinni. Arwen nýtur frelsisins, skottast úti allan daginn, snuðrar og hnusar, hrellir köttinn og leggst í sólbað. Boðið var til veglegrar veislu í borðstofunni að loknu dagsverki og á meðfylgjandi mynd má sjá að engan bilbug er að finna á þeim hjónum (bilbugur er sveigja á fylkingu, undanhald eða undanlátssemi, hik eða ótti, t.d. í bardaga (sbr. Mergur málsins, Jón G. Friðjónsson:63).
Inga (16)
Útskrift
Rússkí
Brátt held ég á slóðir Dostojevskís í Pétursborg. Hef verið að lesa mér til í ferðabókum (Lonely Planet) og þar kennir ýmissa grasa. Ef maður er þar á ferli að vetri til þarf að passa sig sérlega vel á grýlukertum sem hanga fram af þakskeggjum. Snemma á vorin er mikið um moskítóflugur og þær eru bæði ágengar og stórvaxnar. Síðla hausts, áður en kveikt er á kyndingunni, skríða flær upp milli gólfborðanna í leit að yl og viðbiti. Ekki er ráðlegt að taka ómerktan leígubíl og alls ekki fara upp í bíl þar sem annar farþegi er fyrir. Og alltaf á að vera á verði gagnvart vasaþjófum sem eru alls staðar. Þrátt fyrir ógnir Pétursborgar hyggst ég slíta mig úr hópnum um stund og heimsækja Dostojevskí-safnið, vopnuð skordýraeitri, regnhlíf með eitruðu oddi og með öryggishjálm.
Tíu bestu
Í morgun voru „tíu bestu framhaldsskólarnir“ listaðir upp í Fréttablaðinu eftir því hversu vel þeir standa sig í Morfís, Gettu betur, eðlisfræðikeppni, frammistöðu í íþróttum og menntun kennaranna. Í sjónvarpinu í kvöld var spjallað við fólk á elliheimili. Í ljós kom að margir þjást af þunglyndi og að aðbúnaður er mjög misjafn. Mér þætti gaman að sjá lista yfir 10 bestu elliheimilin á landinu í blaðinu á morgun.
Sýn
Í dag fór ég í laseraðgerð á augum hjá Lasersjón. Ég fékk fyrstu gleraugun mín þegar ég var 13 ára og hef því notað gleraugu og linsur í 35 ár. Nú er ég frjáls!




