Hér er fólkið sem ég vinn með við stjórn MK og eru þetta allt snillingar. F.v. Helgi, Baldur, ég og Sigríður G.
Ýmislegt
Pabbahelgi
Árshátíð
Frændur og fóstbræður
Hér hafa verið góðir gestir sl. þrjár vikur, þeir Siggi Magg og Eiríkur Arnar, frændur Brynjars. Þeir bræður hafa verið með risaskómarkað í Molduhrauni. Siggi og Brynjar hafa verið vinir og fóstbræður frá blautu barnsbeini en eru samt ekki alltaf eins klæddir þótt þeir séu það á þessari mynd. Það er búið að vera mjög gaman að hafa þessa góðu gesti. Í gærkvöldi fórum við öll á Sushi í Iðu og átum fisk af færibandi.
Lokað í Bláfjöllum
Mér finnst það góð hugmynd hjá „predatornum“ / geimverunni Jóni Gnarr að loka Bláfjöllum í tvö ár í sparnaðarskyni. Þótt það geti hugsast að mann langi til að bregða sér á skíði einhvern daginn þá er það vissulega munaður sem hægt er að vera án. Í lúxusnum eigum við að spara og skera miskunnarlaust niður þar til betur árar, en minna i í t.d. heilbrigðis- og menntamálum. Ég horfði á Kastljósið í gær og er hrifin af því hvernig Jón gefur pólitísku froðusnakki langt nef og beitir öðru tungutaki og fersku myndmáli. Ég vona að hann falli aldrei ofan í skotgrafirnar eða leggi fyrir sig nöldur og hæðnisglósur eins og tíðkast meðal stjórnmálamanna, heldur hafi alltaf heiðarleika og almannaheill í öndvegi. Þá getum við kannski einhvern tímann vænst endurreisnar.
Áfram stelpur
Leikritið Ertu nú ánægð kerling? var sett upp af Leikfélagi Þórshafnar á níunda áratugnum við góðar undirtektir. Stykkið var sýnt í félagsheimilinu, flottur söngur og frábær hljómsveit, sungin voru lögin af hinni stórskemmtilegu baráttusöngvaplötu Áfram stelpur og textarnir voru á hvers manns vörum. Platan fékkst svo í kaupfélaginu og var auðvitað spilað gat á hana. Efni plötunnar er jafnrétti kynjanna og staða kvenna, bæði lög og textar í hæsta gæðaflokki. Ég ætla því ekki að missa af Áfram stelpur í kvöld.
Föt
„Ég á engin föt til að fara í“ er oft mín fyrsta hugsun á morgnana og þegar eitthvað sérstakt stendur til. Við Inga tókum fataskápinn minn í gegn um helgina, fylltum svartan ruslapoka af fötum sem ég hef ekki klæðst sl. 2-4 ár en hafa bara hangið og safnað ryki og verið fyrir mér þegar ég hef verið að gramsa eftir einhverju til að vera í. Nú hefur öllu verið raðað fallega í skápinn og eru þar núna m.a. 7 pils og 5 kjólar, 17 langerma efripartar, 11 peysur, tvær buxnadragtir og þrjú vesti, 12 stuttermabolir og 5 pör af buxum. Svo ég ætti að geta fundið eitthvað til að vera í á morgun.
Afmælisbörnin
Gamlar myndir
Óttar Einarsson sjötugur
Pabbi minn heittelskaður er sjötugur í dag og hélt glæsilega veislu í Haukaheimilinu í gærkvöldi. Atli á Jarðbrú (í hinum ægifagra Svarfaðardal þar sem pabbi var skólastjóri á Húsabakka til ársins 1972) sendi okkur myndir sem hann tók og lýsti þessu öllu saman á flickr-síðu sinni. Margir lögðu hönd á plóg til að gera veisluna sem best úr garði og kunnum við systur þeim öllum bestu þakkir. Ræður og skemmtiatriði frá gestum voru á heimsmælikvarða, maturinn frábær og stemningin afar góð. Margir komu um langan veg til að heiðra afmælisbarnið og afar gleðilegt var að amma mætti og var eins og drottning, 93 ára. Í tilefni afmælisins gaf hann út bók með vísum eftir sig sem gestum gafst kostur á að kaupa á vægu verði en hann frábað sér allar afmælisgjafir.




