Ýmislegt

ja hérna

Gömlu dansarnir

Ég hef verið að fara í gegnum myndasafnið í tölvunni í leit að alls konar fjölskyldumyndum til betri varðveislu og sýningar. Þá fann ég m.a. þessa mynd sem tekin var á ættarmóti Ásgarðssystkinanna 2005 ef ég man rétt. Það eru ekki margar myndir til af okkur tveimur saman þar sem hann ef alltaf á bak við myndavélina og þessi er sú eina þar sem við erum að dansa,  enskan vals sýnist mér.

63, alltaf flottar

Við hittumst aftur um daginn nokkrar hressar konur frá Akureyri, f. 1963, sem vorum allar í Barnaskólanum sællar minningar. Kristín  Gunnlaugs bauð okkur heim og kom hver kerla með veitingar sem lagðar voru á veglegt veisluborð. Svo var spjallað, rifjað upp, gantast og hlegið. Hrikalega gaman.  Fram kom hjá Kristínu stjörnuspekingi að við erum allar með rísandi mars í ljóni sem skýrir hvað við erum skemmtilegar. Uppi eru fögur fyrirheit um að hittast sem fyrst aftur.  Daginn eftir skrönglaðist ég á hjólinu og náði í bílinn minn, það voru rúmlega 10 km skv borgarvefsjá og var ég ansi stolt af sjálfri mér á leiðarenda.

Til fjármálaráðherra

Jæja Steingrímur. Nú er komið að þvi að standa með fólkinu sínu og breyta lánskjaravísitölunni.  Kannski er ég bara barnaleg en ég spyr: Hví hangir hún á vöruhækkunum, verðlagi og neyslu? Væri ekki nær að tengja hana við framfærslukostnað, gengi og stöðuna í þjóðfélaginu? Ætti hún ekki að lækka þegar framfærslan hækkar svo fólk nái endum saman? Taktu bensín, brennivín og rafmagns- og kyndikostnað út úr vísitölunni. Láttu ekki líðast að lánin hækki hjá fólki um leið og einhverjir tilteknir vöruflokkar (hvernig voru þeir valdir á sínum tíma?) skrúfast upp í verði. Vísitala er bara mannanna verk og ekki klöppuð í stein. Sýndu að þú meinir eitthvað af því sem þú segir og stattu með þínum skattpíndu og aðþrengdu þegnum.

Vinnan

Það er rosalega gaman í vinnunni þessa dagana. Stundatöflubreytingar standa yfir og þá koma nemendur í hópum með margvísleg erindi og það er svo gaman. En annað hvort er ég farin að gamlast og farin að heyra illa eða unga fólkið farið að tala svo hratt og þvoglulega að ég skil ekki neitt. Bæði Haugringi, Manushreyr og Siujónaddni þurftu að segja nafnið sitt nokkrum sinnum áður en ég náði því.

Brauðgerð

Mér gengur þrusuvel að halda mig við breytt mataræði, þ.e. enga mjólk, engan sykur og ekkert hvítt hveiti. Hef t.d. bakað bæði möffins og vöfflur án sykurs og smjörlíkis. Nota bara spelt, vínsteinslyftiduft, vínberjakjarnaolíu og agavesýróp. Og þrisvar hef ég bakað mitt eigið brauð síðustu daga sem telst mikið afrek þar sem ég hef ekki komið nálægt brauðbakstri frá því ég bjó á Þórshöfn í gamla daga en þá var það neyðin sem rak mig til þess, brauðið kom úr Kristjánsbakaríi á Akureyri  í Kaupfélag Langnesinga a.m.k. 2-3ja daga gamalt. Það er ótrúlega einfalt að baka úr vínsteinslyftidufti, ekkert heferí og vesen. Deigið hjá mér hefur reyndar verið soldið blautt og brauðið klesst en afar bragðgott  og ég er að vinna í úrbótum. Og ég er búin að komast að því að smá kókosmjöl og hálf rifin gulrót gera kraftaverk í brauðgerð.

Glossinn eða glossið?

Ég fór með Ingu tískulöggu í Kringluna til að kaupa mér snyrtivörur en augnskuggarnir mínir molnuðu í sundur í hringferðalaginu og glossið mitt er uppurið. Inga hefur numið förðun og hárgreiðslu á Youtube og vissi hvað hún söng. Leiðin lá í MAC í Kringlunni og þar fengum við frábæra þjónustu, athygli, áhuga og alúð, sem er nú frekar sjaldgæft í verslunum hérlendis. Í MAC er hægt að kaupa sér box (palettu) og safna svo í það þeim litum sem hentar, mjög sniðugt og eg skellti mér á eitt svoleiðis. Hef margoft keypt mér augnskuggabox þar sem ég nota suma litina aldrei. Ég fékk mér, eftir miklar pælingar, mosagrænan augnskugga („sem dregur fram bláa litinn í augunum“) og er strax komin með augastað á öðrum gylltum sem ég ætla að kaupa í næsta mánuði, svo keypti ég æðislegan varalit og varablýant í stíl. Ég hætti alveg við glosskaup og fékk mér mjúkan og rakagefandi varalit,  hluti af andvirðinu rennur í sjóð til styrktar alnæmisrannsóknum í heiminum. Það vakti athygli mína að bæði Inga og afgreiðslustúlkan nota orðið gloss í karlkyni: „Þessi gloss er æðislegur…“ Ekki var þetta sérlega hagkvæmt eða ódýrt, kostaði rétt rúmar 11.000 kr. en ég er afar ánægð með kaupin og var búin að mála mig með nýja góssinu fyrir níu í morgun.

Sumardagar

Veðrið hefur verið svo gott undanfarna daga. Inga hefur þrælað í unglingavinnunni en ég hef legið í sólbaði, lesið og hlustað á bæði stuðið á grooveshark.com og rúv: KK, Samfélagið í nærmynd, Á sumarvegi, Víðsjá… allt mjög vandaðir og fínir þættir. Lífið er ljúft þegar maður er í fríi, ef planið er ekki of stíft eins og mörgum hættir til. Það er á dagskránni að hitta vini og ættingja, klára sólpallinn, taka til í fataskápnum, hengja upp myndir, hjóla og hreyfa sig á hverjum degi. Kannski alltof stíft plan þegar að er gáð!

Kvennahlaup

Við Arwen tókum á sprett í dag í Kvennahlaupinu. Fórum fimm kílómetra að þessu sinni og hlupum mestallan tímann, ekkert rölt eða gauf. Alltaf gaman að skokka í góðu veðri og hitta fullt af skemmtilegum konum. Arwen var till fyrirmyndar, margar kvennanna voru með hunda sína með sér, sumir jafnvel í kvennahlaupsbolum. Svo var heilsukaffi hjá Oddu á eftir, ekki amalegt.