Ég var í smá viðtali í Kiljunni í gær. Mætti í förðun fyrst og var eins og filmstjarna frá 9. áratugnum. Förðunin tók hálftíma en viðtalið hálfa mínútu. Bunaði einhverju út úr mér og þegar ég kom út sá ég að ég hafði ekki sagt það mikilvægasta sem ég hafði verið búin að æfa mig í fyrir framan spegilinn… Vona að ég verði ekki klippt út.
Öldungis bit
Pabbi sendi þessa kreppuvísu í þáttinn. Hún er eftir Hjálmar Freysteinsson, lækni á Akureyri.
Eitt hefur gert mig öldungis bit,
á því mig svekki:
Þeir sem töldust með viðskiptavit
voru það ekki!
Hansahillur, 2
Tilnefningarnar
Þá eru það tilnefningar til bókmenntaverðlaunanna, í 19. sinn. Bókaútgefendur borga hver öðrum og verðlauna svo hver annan eða sjálfa sig, ansi sniðugt. Af þeim sem eru tilnefndar í ár hef ég lesið Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugs (ritdómur á leiðinni í mbl.). Mjög vandlega byggð saga, vel stíluð, gott drama en lítið um samtöl eða djúpa karaktera, fann td aldrei neina samkennd með Rán, konu á gamals aldri sem ráfar um Barselónu í leit að sjálfri sér. Ég hlakka til að lesa Rökkurbýsnir, sú bók hljómar vel. Það er smá kafli um Þórshöfn og nágrannaplássin í bók Óskars Árna, Skuggamyndir úr ferðalagi, sem ég gluggaði í þegar ég var í Eymundsson um daginn. Hún er fallega skrifuð og eiguleg.
Hansahillur?
Það var aldeilis tekið til hendinni heima um helgina. Herbergi sonarins var málað og settar upp dýrindis hansahillur sem mér áskotnuðust (takk Ester!). Þær eiga sér sögu frá nýliðinni öld en þær prýddu um árabil heimili Jónu frænku í Þverholti á Þórshöfn og síðast veggi bernskuheimilis míns að Víðilundi 14 a á Akureyri þar sem Ester býr nú rausnarbúi. Hillur þessar eru svo snilldarlega einfaldar, úthugsaðar og sígildar að það er leitun að öðru eins. Veit einhver hvaðan nafnið „hansa“ er komið og hver á heiðurinn af hönnuninni? Ég finn ekki einu sinni mynd á netinu.
Konur eftir Steinar Braga
„… Hún át töflurnar kvöldið áður, sólarhring áður en komið var að henni. Og það hefur gerst að konum tekst að drepa sig, sjáðu til. En þetta er auðvitað rétt hjá þér, okkur er yfirleitt ekki treyst til að drepa okkur almennilega, ekki einu sinni það.“ Hún brosti. „Við étum töflurnar, hringjum grenjandi í kærasta sem hringir í lækni til að pumpa upp úr okkur. Við erum kynið sem vill björgun, ekki dauða. Grenjum svo á geðdeild í nokkra mánuði, tökum okkur saman í andlitinu, látum barna okkur og höldum að allt verði betra, en deyjum í staðinn hægt og bítandi í Smáralindinni með feitu, freku krökkunum okkar og nöldrandi karlinum, sem er eins og stórt barn eða þá nægilega sjálfstæður til að yfirgefa okkur fyrir yngri konu. Ég segi svona…“ (83-84)
Flott bók hjá Steinari Braga. Dularfull og miskunnarlaus hryllingssaga. Hér er konan bókstaflega lokuð inni, býr við allsnægtir en er misþyrmt andlega og líkamlega. Tímabært að staða kvenna sé krufin svona hressilega. Spurningar vakna um mörk og eðli lista, þjáningar og firringar. Í bókinni segir furðufuglinn og listamaðurinn Novak eitthvað á þá leið að fyrir hverja konu sem kemst til valda eða áhrifa í samfélaginu séu gerðar þúsund klámmyndir þar sem konan er sett aftur á sinn stað: valdalaus, undirgefin og niðurlægð. Alveg magnað!
Sjá grein eftir kallinn.
Bylting
Hvernig er hægt að bjóða fólki upp á það sem lausn að fá að „leigja“ húsið sitt áfram eftir að maður er kominn með húsnæðislán í greiðsluþrot? Hvernig er hægt að láta viðgangast að fólk skuldi í árslok heilum árslaunum meira í húsnæðinu þótt það hafi borgað af því í hverjum mánuði? Hví líta stjórnvöld á vísitölu og verðtryggingu sem náttúrulögmál? Er ríkisstjórnin ekki núna orðin leppstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Svei mér þá, ég held ég vilji kosningar eftir allt saman- nei, byltingu!
Vafstur og hjóm
Það er að bera í bakkafullan lækinn að væla um þennan borgarafund í gær. Ég get samt ekki orða bundist yfir því hvað stjórnmálamenn sögðu lítið af viti, klisjurnar, mælskutrixin og undanbrögðin með ólíkindum. Og tuggan um kosningar núna, ég er ekki að kaupa hana. Allt verður þetta þó hjóm hjá því að sautján ára piltur, nemandi í MK, féll fyrir eigin hendi í gær.
Hálfmánar
frá Magneu E
500 gr hveiti (má skella má spelti saman við)
1 1/2 dl mjólk ca.
200 gr mjúkt smjörlíki
200 gr sykur (hrásykur með)
1/2 tsk kanill
1 tsk lyftiduft (vínsteins)
1/2 tsk hjartasalt
vanilludropar
1 egg
rabarbarasulta
Smjörlíki mulið saman við þurrefnin. Eggi og vanilludropum bætt við. Deigið er síðan hnoðað (í hrærivél) uns það er slétt og sprungulaust. Má bíða í ísskáp yfir nótt ef vill ef maður er orðinn þreyttur eftir þetta. Deigið flatt út og stungið út með glasi, ca. 6-8 cm í þvermál. Sultuskeið á hverja köku (helst rabarbara), brotnar saman um miðju og lokað með gaffl (eða fingrunum). Bakað við ca.120-150°C þar til þeir verða ljósgullnir.
10 ráð til að hætta að drepa fólk
Hallgrímur Helgason er ofarlega á listanum yfir íslenska nútímahöfunda sem ég er hrifin af. Bækur hans eru ekki fullkomnar að byggingu og oftast aðeins of langar, en í þeim er góður húmor, nýsköpun og leikur í tungumálinu og beitt samfélagsrýni sem heilla mig. 101 Reykjavík, Þetta er allt að koma og Rokland eru alveg frábærar og Hella, fyrsta skáldsaga Hallgríms, er algjör snilld. Ég var rosa spennt að lesa nýju bókina, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp. Hún er um króatískan leigumorðingja frá NY sem lendir hér á Íslandi fyrir tilviljun, dregst inn í sértrúarsöfnuð (Gunnar í Krossinum), kynnist gettói innfluttra verkamanna og verður ástfanginn af „smjörljósku“ um leið og hann gerir upp við blóðuga fortíð sína. Þetta er rakið dæmi hélt ég, að lýsa Íslendingum með augum gestsins, gera stólpagrín að þjóðinni, láta okkur horfast í augu við nesjamennskuna í okkur. En Hallgrímur er aldeilis ekki á því. Bókin er fyndin og skemmtileg en hún er ekki nógu beitt, ég vil meiri brodd! En hér er einn stubbur:
„Hún hlýtur að vera að grínast. Dómkirkjan er á stærð við hundakofa guðs. Þinghúsið álíka stórt og sveitabýli afa míns í Gorski Kotar. Ég er staddur í Putalandi. Ég reyni að gleyma mér í miðborginni en hún er ekki stærri en 3 x 3 húsalengjur. Það er auðveldara að týna henni en týna sér í henni. (…) Hvað er eiginlega málið með þessa Íslendinga? Enginn her. Engar byssur. Ekkert af engu. Bara gargandi fagrar konur á lúxus-kerrum, rúntandi um kuldaborgina í sínum legvolgu vögnum, í þeirri von að rekast á atvinnumorðingja með prestakraga“ (54-55).

