ástarsaga

ÁSTIN Á TÍMUM ÞRIÐJU VAKTARINNAR

Ný jólabók eftir Ásu Marinu heitir Öruggt skjól á Eskifirði. Þetta er þriðja ástarsaga hennar sem tengist jólunum, þær tengjast lauslega og allar eru þær með skemmtilega stuðluðum titli.

Að þessu sinni er umfjöllunarefnið þriðja vaktin og áhrif hennar á hjónabandið, fjölskyldulífið og jafnréttið, ásamt ástinni auðvitað. Það má með sanni segja að þriðja vaktin sé í hámarki þegar líða fer að jólum.

„Á sama tíma og dagarnir fyllast af viðburðum er mikið álag í vinnunni og svo þarf að undirbúa sjálf jólin, kaupa í matonn, skreyta húsið, kaupa tré, skreyta bévítans tréð, sem við horfum svo á yfir hátíðardagana visna og deyja…“ (17).

Fyrsta vaktin er að vera í vinnu og fá fyrir það laun, önnur vaktin felst í heimilisstörfum og að sjá um börn og bú í sameiningu en þriðja vaktin felst í vera framkvæmdastjóri heimilisins. Sýna fyrirhyggju og hagsýni, redda pössun, sækja og skutla, hafa yfirsýn á fatastærðir heimilisfólks, muna eftir merkisdögum, starfsdögum, tilboðsdögum, tannlæknatímum, kaupa jólagjafir, skreyta, útbúa skógjafir, vita hvað er til í ísskápnum og svo endalaust framvegis. Þriðja vaktin krefst orku og einbeitingar, er launalaus og hún stendur allan sólarhringinn. Þetta er ósýnileg vinna og ósýnilegt álag, stundum kallað hugræn byrði (mental load) og oft er stundum stutt í meðvirknina (sá sem ekki veit hvað meðvirkni er, gerir sjálfum sér og heiminum stóran greiða með að gúgla það núna).

Svo vill til að oftast eru það konur sem taka þriðju vaktina. En er það útaf því að konur eru skipulagsfrík og karlar bara slakir? Er það svo einfalt? Ýmsar rannsóknir sýna að álag á konum vegna heimilisstarfa og ábyrgðar á heimili og fjölskyldu hefur áhrif á atvinnuþátttöku þeirra og framgang í starfi, veldur streitu og leiðir jafnvel til kulnunar. Svo þetta er samfélagslegt mál, eitt af lykilatriðum varðandi t.d. jafnrétti á vinnumarkaði. Það er gott að Ása Marin tekur þetta efni upp á sína arma.

Þriðja vaktin er að sliga Kristínu, fertuga þriggja barna móður, sem samhliða fjölskyldulífinu keppir um stöðuhækkun við „mannbarn“, tvítugan framapotara og auðvitað á hún þar engan sjens. Eiginmaðurinn Skúli tekur öllu létt og setur bumbuboltann og vinahittinginn í forgang enda er Kristín vön að sjá um allt. Pirringurinn á milli þeirra vex með degi hverjum og loks kemur að því að Kristín fær nóg og stingur af frá öllu gillimojinu, til æskuvinar síns á Eskifirði. Mjög er nostrað við lýsingar á Eskifjarðardvölinni og Kristín styrkist og hressist með degi hverjum og sér hlutina í skýrara ljósi. Hver hefur ekki gott af smá orlofi úti á landi?

Í framvindu sögunnar sést vel sú óheillaþróun sem varð í sambandi þeirra Kristínar og Skúla. Hún tók alla ábyrgðina á fjölskyldunn og heimilinu á sínar herðar og hlustaði ekki á neinar tillögur eða lausnir frá honum. Hann sá að hún hafði tekið stjórnina og ábyrgðina svo hann var stikkfrí að mestu, sinnti bara þeim verkefnum heimilisins sem honum voru falin og sumum ansi slælega. Smátt og smátt týndist ástin í öllum skyldunum, kröfunum og látunum. Kunnuglegt mynstur?

Tveir aðrir karlmenn koma við sögu ásamt vinkonum Kristínar og gegna því hlutverki að spegla tilfinningarnar og sýna fleiri hliðar málsins. Hrafnkell er æskuvinurinn góði sem sjálfur er nýskilinn og Flóki, einhleypur vinur hans, er afskaplega heillandi og lofar góðu. Umbreytingin á Skúla i seinni hluta sögunnar er hins vegar býsna skjót og ekki alveg sannfærandi. En ákvörðun Kristínar í lokin byggir á henni. Þarf virkilega að stinga af og hóta makanum öllu illu til að augun opnist og breytingar verði? Svo virðist vera:

„Þetta er ekkert í fyrsta sinn sem þú heyrir að mér finnst eitt og annað í ólagi við okkar samband, segi ég. Þú veist hvað sagt er, fyrst reynir fólk að ræða um hlutina, svo nöldrar það þegar ekkert breytist en að lokum þagnar það því það sér að það er enginn áhugi á breytingum…“ (177).

Í hnotskurn: Býsna hæg saga þar sem nostrað er við smáatriði en lýsir vel misskiptri ábyrgð kynjanna á þriðju vaktinni og afleiðingum þess á fjölskyldulífið og blessaða ástina. Ljóst er að bæði þurfa karlar að taka meiri ábyrgð og konur að treysta þeim fyrir henni til að allt verði betra í heimi hér.

Ást og eldgömul leyndarmál – Um Eyjar eftir Gróu Finnsdóttur

Eyjar heitir önnur skáldsaga Gróu Finnsdóttur (f. 1951). Gróa samdi ljóð og sögur áður en hún sendi frá sér bók og hafði þá lokið störfum á vinnumarkaðnum. Sum ljóða hennar hafa birst í blöðum, ss. í Tímariti Máls og menningar og Bókasafninu. Þá átti hún tvær smásögur í bókinni Jólasögur sem kom út árið 2015. Gróa hefur einnig skrifað fjölda greina, einkum um bókasafnsmál. Fyrsta skáldsaga Gróu, Hylurinn, kom út árið 2021 og fékk góðar viðtökur. 

Bókin Eyjar hverfist um togstreitu í fjölskyldu á bóndabæ þar sem Malla er einbirni. Móðirin Katrín er hippi, ástríðukokkur og grænmetisræktandi; hlý og opin manneskja; en pabbinn er dulur og bældur. Þau eru eins og tvær eyðieyjur (98). Eitthvað varð til þess að Malla fór að heiman fyrir mörgum árum og býr nú í borginni. Hún hefur fjarlægst foreldra sína og ekki er vert að ljóstra upp hvers vegna til að spilla ekki fyrir lesendum. En hún flýr úr ofbeldissambandi í sveitasæluna og þarf að endurskoða allt líf sitt.

Ekki er annað hægt en að heillast af sumum sögupersónanna, ekki síst Katrínu sem hlúir að öllu, og fögru umhverfi Breiðafjarðar. Malla er brotin og búin á því þegar hún snýr aftur til heimahaganna og þarf að horfast í augu við bresti sína, langrækni og dómhörku. Guðmundur á næsta bæ er hugstæður, einskonar afatýpa og jesúgervingur; boðberi þess að eldri kynslóðir búa yfir yfirvegun og visku sem þarf að berast sem víðast. Pabbinn Lárus á alla samúð skilið, hann reynir að gera sitt besta en stundum er það bara ekki nóg. Og öll eiga þau sín eldgömlu leyndarmál sem sagan hverfist um.

Þær mæðgur eru sögumaður til skiptis og lýsa stundum sömu atburðum hvor frá sínu sjónarhorni. Þær eru afar ólíkar svo þetta er skemmtileg aðferð sem gengur ágætlega upp. Það getur tekið á að fullorðnast og Malla fær sannarlega að reyna það á eigin skinni. Ástin kemur auðvitað við sögu og er mikilvægt hreyfiafl í framvindunni. Einkunnarorð bókarinnar koma m.a. frá Milan Kundera: Ástin er leit okkar að týnda hlutanum af okkur sjálfum.

Sjálf segir Gróa um bókina:

„Ég reyni að sýna fram á hvað það getur reynst alvarlegur hlutur að geta ekki rætt út um hlutina, gert upp sín mál og haldið áfram að lifa góðu lífi í stað þess að eyðileggja líf sitt og annarra í einhverri fáránlegri þráhyggju og kannski hroka án þess að geta fyrirgefið. Það mætti jafnvel setja það í stærra samhengi og heimfæra upp á heimsku þeirra sem heyja óskiljanleg stríð úti í hinum stóra heimi. En sjálfri finnst mér þetta vera fyrst og fremst hugljúf ástarsaga sem kannski einhverjir þekkja sig í“ (viðtal í Skessuhorni).

Eyjar fljóta vel á lygnum sjó og eru fínasta afþreying á rigningardögum þrátt fyrir undarlegan misskilning í restina.  Fram kemur í sögunni að Katrín lumar á handriti um blóðheitar Baska-formæður sínar, kannski verður það efni þriðju bókar Gróu? 

Bullandi kaldhæðin sýn á ástina

Bók um líf og hugsanagang dagdrekkandi menntaskóladroppáts (46), misheppnaðs maka og ömurlegrar móður, þarf ekki endilega að vera niðurdrepandi þótt þar beri mest á tortímandi sjálfsmynd og niðurrifshugsunum. Í Kópavogskróniku eftir Kamillu Einarsdóttur er fjallað um skuggahliðar ástarinnar, niðurlægingu, höfnun og einsemd á hressilega gráglettinn hátt. 

Vodka á Catalinu

Sagan er um unga konu sem á hrakningum sínum um viðsjálar lífsins götur virðist hafa glatað sjálfsvirðingunni og orðið bæði sár og varanleg sködduð eftir ömurleg ástarsambönd en hressir sig á Catalinu með vodka og Magic í hálfslítraglasi (87). (meira…)

Ástin, taflið og tungumálið

Astarmeistarinn-175x260

Anna og Fjölnir sem bæði hafa  lent í hrakningum á vegum ástarinnar rekast af tilviljun hvort á annað í hinni fögru Grímsey. Það væri kannski alveg tilvalið að þau þreifuðu fyrir sér en í staðinn veðja þau sín á milli um ástina, að þau hvort í sínu lagi finni ástarmeistara sem getur kennt þeim að elska, án ótta. Leiðir skilja og veðmálið gengur út á að í  hvert sinn sem þau hitta einhvern sem gæti verið meistari í ást skrifa þau hvort öðru bréf og í hverju bréfi er einn leikur í skák. En er einhver íþrótt eins langt frá því að vera sexí? Annað kemur á daginn, bókin löðrar í daðri og erótík, myndmálið er ferskt, textinn á fallegu tungumáli og snilldartaktar í hörkuspennandi  skák, sem svo sannarlega hefur aldrei verið tefld áður, kóróna verkið.

Ástarmeistarinn er fjórða skáldsaga Oddnýjar Eirar en hún hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir verk sín. Rauði þráðurinn í þessari bók er leitin að grundvelli ástarinnar, reynt er að skilja ástina í öllum sínum margvíslegu myndum og fjalla um sambandið milli ástar, valds og tungumáls. Fyrri hluti bókarinnar samanstendur af bréfum og skákleikjum og smátt og smátt kynnast skötuhjúin betur og takast á við bælingu sína, skömm, höfnunarótta og ástarfælni. Minningar streyma fram, draumar eru raktir og ráðnir, de Sade kemur m.a. við sögu ásamt ástkonunum frægu, þeim Önnu Karenínu og Önnu frá Stóru-Borg; Nietzsche og Simone de Beauvoir svífa yfir og heimsfrægar skákkonur skjóta upp kolli. Í seinni hlutanum dregur til tíðinda og ástarmeistararnir birtast með kenningar sínar og kynþokka. Öllu ægir saman í sjóðandi ástarpotti þar sem kynorkan vellur og kraumar svo úr verður ögrandi texti, heillandi persónur og hugljúf atburðarás.

Anna og Fjölnir birtast sem venjulegar og breyskar manneskjur. Fjölnir er bangsalegur útbrunninn sálfræðingur, grimmur „fræðarefur“ (20). Hann hefur unun af að leika sér með orð og hugmyndir, er jarðbundinn og leitandi og hefur farið illa út úr hjónabandi. Hluta sögunnar dvelur hann við rannsóknir og ritstörf í Odda en þangað barst einmitt skákin fyrst til Íslands (135)! Krísa hans felst m.a. í því að hann er í biðstöðu í lífinu og konur virðast elska hann annaðhvort bara sem elskhuga eða andlegan bróður. Hann er orðinn þreyttur á  að veita fagleg ráð og sýna skilning. Hann þráir að vera elskaður og að verða meiri karlmaður en menntamaður.

Anna er heilari, jógaiðkandi og nýaldarsinni, stöðnuð í einsemd og framan af sögu er hún ansi forn í háttum. Þegar hún heimsækir Fjölni í Odda hugsar hún með sér hvort hún sé hrifin af honum og hvers vegna „skyldi hún þá ekki gefast honum?“  sem er furðulega gamaldags hugsun. Hún óttast mest að geta aldrei elskað framar en þegar hún stígur yfir sín eigin mörk með hinum unga og graða Einari, verður hún frjáls, eins og laus undan aldagömlu oki. Tungumál kynlífs þeirra vísar í bókmenntir frá fyrri hluta síðustu aldar, hér er komin samfarasenan sem aldrei var skrifuð í Önnu frá Stóru-Borg. Myndmálið tengist allt smiðjunni þar sem ástarfundurinn fer fram, járnið er hamrað, kraftmikil kvika breytist í sindrandi gjall, „limurinn enn beinstífur eins og nýhert stál“ og snípurinn eins og nýsmíðaður koparhnappur (176-7).  Tungumálinu er beitt á óvenjulegan og skapandi hátt svo úr verður nýtt ástarmál. Fleiri kynlífssenur eru svona fallegar en spurning vaknar um hvort ekki megi segja typpi og píka í bók? Limur og sköp verða að teljast frekar tepruleg orð í frumlegri og ögrandi skáldsögu á 21. öld.

Tafl er líkt og ástin tveggja manna spil (114). Ástin er valdatafl og spennan milli Önnu og Fjölnis vex eftir því sem líður á söguna, getur þetta endað vel? Þegar Fjölnir býður Önnu jafntefli er hún með unnið tafl. Hún er drottning ástarinnar, hún hefur leyst orku úr læðingi og sigrast á óttanum.  En hver er þá kóngurinn? Það er nóg um að hugsa  eftir lestur þessarar afbragðsgóðu bókar. Er til ást án einurðar? Eru hugur og  hjarta eitt? Er hægt að elska án ótta? Ryður ástin sársaukanum burt? Ástarmeistarinn svarar  brennandi spurningum æstra lesenda á sinn hátt, látið hann ekki framhjá ykkur fara.