Höfundur: Steinunn Inga Óttarsdóttir

"Maður hélt útsýni valda víðsýni, en endurtekningin er þrengri en mjór fjörður..." Guðbergur Bergsson, Anna 1969

Öll dagsins glóð

Safn portúgalskra ljóða frá 1900-2008 í snilldarþýðingu Guðbergs Bergssonar:

ÞAÐ ÞARF ENGINN AÐ SEGJA MÉR

Það þarf enginn að segja mér

að aspir veki veruleikann með nekt sinni

þegar sólin umvefur þær, stoltar, einmanalegar,

hnarreistar við vatnborðið.

Úr fjarlægð nálgast menn með báta

Og vaða fljóið upp í klyft.

Folarnir hlaupa frjálsir um eyjarnar

en fara síðan um stíga

með ólar gyrtar um kviðinn

João José Cachofel (1920-1982)

 

GEITURNAR

Alls staðar þar sem er hálent og jörðin hrjóstrug eru geitur, svartar, afar kvenlegar að skoppa af einum steini á annan. Frá því ég var lítill hef ég verið hrifnn að þessum gálum. Ég átti eina, afi gaf mér hana og kenndi mér að nota hana þegar ég væri þyrstur, þrútnu volgu júgrin sem hendurnar léku við mjúklega áður en munnurinn færðist nær, svo mjólkin spýttist ekki um andlitið, hálsinn, brjóstið, og jafnvel, eins og stundum gerðist, hver veit nema að ásettu ráði, um litla ilmandi gatið. Geitin hét Malta og var hesturinn minn og hver veit nema fyrsta konan.

Eugénio de Andrade (1923-2005)

Djúpið

Við Sossa fórum í Borgarleikhúsið í gær að sjá Djúpið, eftir Jón Atla Jónasson. Þetta er einleikur sem gerist á hafi úti svo Sossa var á heimavelli. Það eru furðu fá íslensk leikverk sem fjalla um eða tengjast sjómennsku og útgerð, einn af aðalatvinnuvegum þjóðarinnar (Brim, Hart í bak, Hafið…). Ingvar E. Sigurðsson (E-ið stendur fyrir Eggert) var algjörlega frábær, það sem maðurinn getur leikið! Fyrir utan hvað hann er fallegur, með frábæra framsögn og rosalega útgeislun þá leikur hann svoleiðis af lífi og sál að maður sat í lokin skjálfandi með gæsahúð í nokkrar mínútur áður en klappið braust út.

Flugstöð og fjárdráttur

Eru menn í alvöru að tala um að byggja nýja flugstöð í Reykjavík? Á forsíðu Fréttablaðsins í dag segir að hún muni kosta einn milljarð. Hann mætti nota í margt nytsamlegra. Í blaðinu segir að „aðstaða innanlandsflugsins sé óviðunandi“ og að stöðin verði létt og síðar megi auðveldlega fjarlægja hana. Til hvers þá að byggja hana fyrir alla þessa peninga?  Og hvernig er aðstaðan óviðunandi, ætlar einhver að dunda sér  þessari flugstöð meira en hann þarf? Er þetta ekki bara bruðl og óráðsía? Og annað af forsíðunni: „Fyrrverandi starfsmaður Kaupþings kærður fyrir hundruð milljóna fjárdrátt. Hafði fé af viðskiptavinum“. Hvernig er glæpur starfsmannsins öðruvísi en bankastjóranna sem engum kærum sæta? Voru þeir ekki líka að ræna viðskiptavinina?

Knús

Um helgina verður aðallega lesið í  bókum enda þarf ég að standa skil á tveimur ritdómum og nokkrum þýðingum fyrir mánudag. Það verður smá tími gefinn fyrir gönguferð, góðan mat,  tiltekt og kannski smá knús. Myndin var tekin í Heiðmörk um síðustu helgi í sól og skítakulda, við Arwen skemmtum okkur vel. Hún er mikið knúsuð, þessi elska.

Kirkja hafsins

Kirkja hafsins er margverðlaunuð skáldsaga eftir Ildefonso Falcones. Ég opnaði þessa bók full fordóma (nafnið er klént) en hún kom skemmtilega á óvart. Sagan gerist á 14. öld, lénsherrarnir arðræna leiguliða sína, halda þeim í lífstíðaránauð, hirða arðinn af striti þeirra og nauðga kvenfólkinu. Feðgarnir Barnet og Arnau komast til Barcelona við illan leik og þá upphefst mikil og soldið langdregin hörmungarsaga af baráttu við óréttlætið. Það voru ekki færri illmenni á fjórtándu öld en nú, alls staðar verið að svindla, græða og svívirða. María Rán Guðjónsdóttir þýddi þennan doðrant beint úr spænsku og gerir það bara býsna vel.

Yfir hafið og í steininn

Furðu gamaldags bók eftir svo ungan mannÞetta er soldið skondin saga um landabrugg og leynilega fólksflutninga. Persónurnar eru skemmtilega æðrulausar og heilsteyptar, prinsippfólk sem er ekki að eltast við eitthvað rugl. Minnir doldið á Heinesen finnst mér.  Höfundurinn Tapio er Íslandsvinur og þýðing Sigurðar Karlssonar bara býsna góð. Hér er bókin á finnsku fyrir áhugasama.

Býfluga

Áhrifamikil sagaBýfluga(Little Bee í USA, The Other Hand í UK) er mögnuð saga um samnefnda stúlku sem hefur flúið frá heimalandi sínu, Nígeríu, til Bretlands. Hún leitar á náðir Söru, blaðakonu sem nýlega hefur misst mann sinn vegna atburða sem tengjast Býflugu og er þar að auki í tómu tjóni vegna framhjáhalds o.fl. Víð á Vesturlöndum höfum ekki grænan grun um allan þann hrylling sem viðgengst í Afríku, mannréttindabrot, morð og nauðganir eru daglegt brauð. Samt eiga Vesturlönd sök á þessu með botnlausri græðgi sinni, þau hafa sölsað undir sig auðlindir Afríkubúa, t.d. olíu og demanta, og ala á ófriði til að geta selt þeim vopn. Sorgarsaga, hörkuspennandi, ekki fyrir viðkvæmar sálir.