Höfundur: Steinunn Inga Óttarsdóttir

"Maður hélt útsýni valda víðsýni, en endurtekningin er þrengri en mjór fjörður..." Guðbergur Bergsson, Anna 1969

Votlendi

Votlendi

Las óvenjulega bók um daginn, Votlendi (Feuchtgebiete) eftir þýska skáldkonu, Charlotte Roche. Bjarni Jónsson þýddi, sennilega úr ensku. Þetta er hressilega hispurlaus saga, botnlaus ádeila og geðveiki, en þó er smáglóra í ruglinu. Algjörlega kynósa saga en ekki samt klám. Líkaminn til umfjöllunar, með öllum sínum opum, úrgangi og vessum og engin fjöður dregin yfir það. Er þetta femínistabók, kvenfrelsisbók? Tja það er spurning. Konur hafa verið óhreinar frá dögum Adams og Evu, þær eru undir endalausri pressu með að verða hreinar, fallegar, ungar, stæltar og kynþokkafullar, þær eiga að líta vel út og ilma vel. Sjá ágætis umfjöllun hér. Bókin er skrifuð gegn öllu hreinlætinu, sótthreinsuninni, sýklahræðslunni, dauðhreinsuninni. Tíðablóðið er mas blátt í auglýsingunum en hér lekur það um allt, til höfuðs dömubindaiðnaðinum. Hér er enginn tepruskapur, hressilegt talmál, tekið á tabúum. Hispursleysið skilar sér í þýðingunni, engin væmin orð eins og samfarir, bakhluti og sköp heldur eru hlutirnir kallaðir sínum réttu nöfnum. Bullandi gróteska, líkamsvessar, öll op í gangi! Frábært! En er söguhetjan fórnarlamb líkamsdýrkunar eða frjáls (snargeggjaður) gerandi? Hún er lítil, óörugg og einmana þrátt fyrir allt fjörið í kynlífinu og þráir innst inni sameiningu fjölskyldunnar. Gaman að þessu.

Laura og Julio

Móderne bókarkápaEftir Juan José Millás (2006).  Hermann Stefánsson þýðir bókina, sennilega úr spænsku en það kemur ekki fram á saurblaði. Millás er þekktur spænskur rithöfundur, margverðlaunaður og viðurkenndur en ekki hef ég lesið annað eftir hann. Laura og Julio er friðsöm bók um firrtar, líflausar og  hversdagslegar  manneskjur en ástin deyr í tilbreytingarleysinu. Hnökralaus þýðing á íslenskunni, virðist mér, stundum eru tyrfnir og heimspekilegir kaflar  sem erfitt hefur verið að þýða. Mér fannst flott sagan í sögunni um kassadömuna, fötin í fatahreinsuninni og um skuggana. Sjálfur er Julio einskonar skuggi, lifir skuggalífi í íbúð vinar síns (íbúðin er spegilmynd af íbúð þeirra Lauru), fer í föt hans og notar rakspírann hans, og njósnar um Lauru sem vill skilnað enda hefur hún þegar snúið sér annað. Raunsæið er hér í botni, fjarlægð og skilningsleysi. Alls staðar eru tvennur og skipting, andstæður; raunverulegt og gervi/plat, sbr. vinnu Julios sem felst í að búa til líkön af veruleikanum. Eftirminnileg bók, fínn ritdómur í DV hér.

Tónleikar

Læknisstaðasvipurinn leynir sér ekki

Faðmast í hléinu. Læknesstaðasvipurinn leynir sér ekki

Það voru frábærir tónleikar í Salnum í kvöld undir yfirskriftinni  Tónsnillingar morgundagsins.

Sæunn Þorsteinsdóttir Skúlasonar Þorsteinssonar lék á selló og einhver hávaðaseggur á píanó (Kristinn Örn Kristinsson).  Leiknar voru sónötur og stef eftir Debussy, Beethoven o.fl. Selló er eitthvað svo smart með djúpum og seiðandi tóni og Sæunn alveg frábær, svo falleg, geislandi og gefandi og töfraði fram englatóna úr hljóðfærinu einhver veginn áreynslulaust. Svo var mjög gaman að hitta stolta foreldrana, þau Þorstein og Ólöfu, sem maður sér í mesta lagi einu sinni á ári.

Rex og pex

Mikið finnst mér sjónvarpauglýsingarnar frá Intersport eitthvað hallærislegar. Ungmenni kklæðir sig í útivistarfatnað eða hleypur á bretti í myrkri og svo allt í einu kviknar ljós og þá er eins og viðkomandi hafi brotist inn í búðina og verið staðinn að verki. Hvað á það að þýða? Er þetta einhver vísun í að þjófnaður á Íslandi sé bara töff, líka þegar maður er gripinn glóðvolgur? Og hvernig er það, er þetta ekki Útsvars-stefið sem hljómar undir þessari púkalegu auglýsingu, er því stolið líka? Svo fannst mér eitthvað verulega ógeðfellt við fréttina á baksíðu Fréttablaðsins í fyrradag um Audda og Sveppa að sæða kýr og myndin með fréttinni afar ósmekkleg. En hallærislegast og ósmekklegast af öllu er að skuldsetja lítil börn fyrir hlutabréfaláni, hirða milljónaarð af bréfunum og láta svo allt ganga til baka (nema gróðann).

Hvíti tígurinn

Rosa töff, bókin sjálf er með tígrisröndumAllmargar bækur sem koma út um þessar mundir eru úr framandi menningarheimum (t.d. Hús moskunnar, Tilræðið, DeNiro og ég, allt fínar bækur og vel þýddar). Í morgun lauk ég við Hvíta tígurinn  (Bookverðlaunin 2008), sem gerist í Indlandi, Ísak Harðarson þýðir hana úr ensku (oftast ágætlega). Stórskemmtileg saga, söguhetjan Balram fæðist í litlu þorpi sem er fast í fornum siðum, stéttaskiptingu og  barnaþrælkun, hann gerist þjónn og bílstjóri hvíts auðmanns og fer til í Delhí, brjálæðislega spilltrar og kaótískrar borgar þar sem frumskógarlögmálið ræður. Balram tilheyrir neðsta lagi samfélagsins og þarf að þola margvíslega kúgun og niðurlægingu uns hann tekur til sinna ráða. Boðskapurinn er sá að fátæktin geti af sér grimmd og ofbeldi, geri menn vonda. Balram trúir þvi staðfastlega að þegar hvíti maðurinn verður búinn að ganga frá sjálfum sér með farsímanotkun og eiturlyfjum muni tími hinna brúnu og gulu manna renna upp. Er það svo ósennileg kenning?

Harmur englanna

Hrikalega ljót bókarkápaÉg hef verið að lesa og skrifa um Harm englanna eftir Jón Kalman. Hún er alveg frábær, full af snjó og myrkri. Set ritdóminn hér þegar hann hefur birst í Mbl. Þetta er í senn heimspekileg, pólitísk og söguleg skáldsaga sem er engu síðri en Himnaríki og helvíti sem var algjör snilld. Brugðið er upp margvíslegum myndum af íslensku þjóðlífi eins og það var fyrir um hundrað árum,  karlar eru úttaugaðir af erfiðisvinnu, sjóvolki og búandhokri, en börn, sérstaklega munaðarleysingjar, eru svelt og barin, og konur hugga, líkna og fórna:

„… því þannig hefur það alltaf verið, menn koma slæptir heim, blautir, kaldir af sjó eða engjum, hlamma sér ofan i fletin og konur draga af þeim klæðin og ganga síðan frá meðan þeir hvíla sig, þurrka fötin meðan þeir sofa, þær sofna seint en vakna á undan öllum, undirbúa og þjónusta meðan þeir hvíla sig, meðan þeir lesa, læra að skrifa, meðan þeir mennta sig og ná forskoti, vald kallar alltaf á óréttlæti og þó lífið sé hugsanlega fagurt þá er manneskjan ófullkomin…“ (249).

Michael, maðurinn í speglinum

Þegar ég heyrði fyrst í  Michael Jackson, Off the Wall (1979), varð ég mikill aðdáandi tónlistar hans. Svo eltist ég en ekki hann svo leiðir skildu. Nú er ég komin með Man in the Mirror á heilann. Hér er vídeóklippa sem einhver jútjúbnörd hefur límt saman með svipmyndum frá tónleikum með tilheyrandi múgæsingu og yfirliðum unglingsstúlkna:

Smellið HÉR til að lesa  grein um goðið úr Mogganum, frá 15. febrúar 2003.

Stúlkan sem lék sér að eldinum

Sjarmatröllin Nyquist og RapaceLoksins gafst mér tími til að fara í bíó og sjá Stúlkuna sem lék sér að eldinum. Í myndinni var stiklað á mjög stóru úr bókinni og margt vel gert en auðvitað er ekki hægt að hafa allt með úr 700 síðna bók. Ekki nýtti leikstjórinn sér nógu vel t.d. að leika sér með möguleikana í íbúð Lisbeth á Lundagatan eða dramatisera endurfundi hennar við föður sinn en sá var ekki nándar nærri nógu afskræmdur þótt ljótur væri. Þá var Niedermann ekki alveg nógu ógnandi fannst mér. Það gladdi mig að Miriam Wu er nauðalík Steinunni vinkonu minni Haralds! Myndin var fín og nú er bara að bíða eftir þeirri þriðju og síðustu og vona að reyfarar framtíðar verði jafngrípandi og Millennium-syrpan.